Samskip - Fréttir
Samskip áfram einn af helstu stuðningsaðilum HSÍ
Samskip, sem hafa í mörg ár verið einn af helstu stuðningsaðilum Handknattleikssambands Íslands, hafa framlengt samstarfssamning félagsins við HSÍ um tvö ár, eða til ársloka 2011.
„Það er okkur hjá Samskipum bæði heiður og ánægja að styðja við bakið á HSÍ og strákunum okkar í landsliðinu sem hafa staðið sig frábærlega og gefast ekki upp þó á móti blási og ná frábærum árangri, segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa.
Framlag Samskipa til HSÍ er bæði í formi peninga og ýmiskonar þjónustu við HSÍ, með það að markmiði að efla enn frekar handknattleiksíþróttina á Íslandi. Knútur G. Hauksson stjórnarformaður undirritaði samstarfssamninginn fyrir hönd HSÍ.
„Nú, þegar verulega hefur dregið úr styrkveitingum almennt er samningur sem þessi okkur hjá handknattleikssambandinu afar mikilvægur og kunnum við Samskipum bestu þakkir fyrir. Verkefnin framundan eru bæði mörg og stór en þar ber auðvitað hæst þátttöku karlalandsliðsins í úrslitakeppni Evrópumóts landsliða í handknattleik sem hefst í Austurríki í næstu viku” er haft eftir Knúti.
Samningurinn var undirritaður í Laugardalshöll fyrir leik Íslendinga við Portúgal.
Áfram Ísland!

