Landflutningar-Samskip opna nýjan vef
Landflutningar-Samskip hafa opnað nýjan vef á slóðinni www.landflutningar.is Er nýi vefurinn léttari í útliti og hnitmiðaðri í uppbyggingu og hefur þjónustunni verið skipt upp eftir því hvort um einstaklinga eða fyrirtæki er að ræða. Mun þetta stytta leið viðskiptavina að upplýsingum. Einnig hafa nokkrar nýjungar bæst við og má helst nefna skráningu fylgibréfa í gegnum vefinn sem sendast nú rafrænt til Landflutninga áður en komið er með sendinguna. Rafræna skráningin styttir afgreiðslutíma hjá Landflutningum, því einungis þarf að staðfesta þyngd/ummál og ganga frá greiðslu.
Á vefnum er jafnframt hægt að fá beint samband við þjónustufulltrúa sem getur svarað margvíslegum spurningum viðskiptavina, fundið sendingar, veitt upplýsingar um brottarartíma, verð o.fl. Framsetning upplýsinga um brottfararstaði og áætlanir hefur auk þess verið einfölduð til muna.
Við hvetjum fólk til að kynna sér nýja vefinn!
Með kveðju,
Landflutningar

