Samskip - Fréttir

Tilkynning frá Samskipum vegna flutninga til Asíu

19.4.2010

Picture_072Í kjölfar efnahagshrunsins varð mikill samdráttur í flutningum í heiminum. Skipafélög drógu úr framboði til að mæta taprekstri. Mest urðu áhrifin á flutninga til og frá Asíu. Í dag er staða mála þannig að verð hefur hækkað gífurlega á flutningum frá Evrópu til Asíu ásamt því að eftirspurn hefur aukist umfram framboð. Þetta hefur í för með sér að erfitt getur reynst að fá gáma undir flutning til Asíu og einnig að fá pláss í skipum.

Viðskiptavinir eru hvattir til að hafa nægan fyrirvara og setja sig í samband við starfsfólk Samskipa til að fá nánari upplýsingar.

Samskip

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica