Samskip - Fréttir
Silver Sea og Green Reefers undirrita viljayfirlýsingu um samstarf
Silver Sea AS, norskt frystiflutningafyrirtæki í helmingseigu Samskipa, og fyrirtækið Green Reefers AS hafa undirritað viljayfirlýsingu um samstarf fyrirtækjanna.
Telja báðir aðilar að með samstarfinu sé hægt að veita betri þjónustu til viðskiptavina en jafnframt ná fram samlegðaráhrifum með aukinni skilvirkni í rekstri, lægri kostnaði við skip og hafnir.
Munu félögin leita eftir samþykki samkeppnisyfirvalda áður en lengra er haldið. Gert er ráð fyrir að samstarfið hefjist 1. júlí nk.

