Samskip - Fréttir

13 flutningatæknar útskrifast úr Flutningaskóla Samskipa

21.5.2010

Samskip_200510_JON5238Þrettán starfsmenn voru útskrifaðir sem flutningatæknar úr Flutningaskóla Samskipa við hátíðlega athöfn í gær að viðstöddum Kristjáni L. Möller,samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fleiri góðum gestum. Skólinn, sem starfræktur er í samstarfi við Mími-símenntun, er sérhæfður fyrir starfsfólk Samskipa í vöruhúsum, á gámavelli og bílstjóra félagsins og er þetta er í annað sinn sem útskrifað er úr skólanum.

Flutningaskóli Samskipa er fyrir metnaðarfullt starfsfólk Samskipa sem hefur náð 20 ára aldri og á stutta formlega skólagöngu að baki. Aðalmarkmið hans er að styrkja faglega hæfni starfsfólks, auka sjálfstraust þess og möguleika á starfsþróun. 

Samskip_200510_JON5346Skólinn er viðurkenndur af menntamálaráðuneytinu til allt að 23 eininga á framhaldsskólastigi. Kennt er samkvæmt námskrá Samskipa sem byggð er á viðurkenndri námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Námið tekur tvær annir, samtals 339 kennslustundir, og fer það fram á vinnutíma í kennslustofu Samskipa og á athafnasvæði félagsins við Kjalarvog. 

Samskip_200510_JON5214Kennarar á vegum Mímis-símenntunar kenna alla almenna áfanga í náminu en sérfræðingar Samskipa kenna flutningafræði og öryggismál ásamt vinnustaðanámi sem fer fram á athafnasvæði fyrirtækisins við Kjalarvog.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica