Silver Sea og Green Reefers í samstarf
Silver Sea AS,sem er í 50% eigu Samskipa, og Green Reefers AS munu hefja samstarf með stofnun fyrirtækisins Silver Green AS, en fyrirtækið er í helmings eigu hvors félags.
Hið ný stofnaða fyrirtæki, Silver Green AS, mun reka 14 frystiskip, sem munu aðallega sigla um Norður Evrópu, en að auki mun félagið hafa aðgengi að öðrum skipum úr flota Green Reefers og Silver Sea. Fyrirtækið mun einkum sinna flutningum á frystum sjávarafurðum frá Noregi, Íslandi, Færeyjum og Bretlandseyjum.
Megintilgangur samstarfsins er að tryggja viðskiptavinum félagsins enn og betri þjónustu með stærri skipaflota, og þannig bjóða upp á aukinn sveigjanleika og gæði þjónustu.
Framkvæmdastjóri félagsins verður Tormod Fossmark, en hann hefur verið framkvæmdastjóri Silver Sea frá stofnun félagsins.

