Fjölmenni á golfmóti Samskipa
Golfmót Samskipa 2010 var haldið á Urriðavelli 20. ágúst sl. Mótið var alveg fullt og komust færri að en vildu. Spilað var fjögurra manna Texas Scramble og voru 25 holl ræst út í einu. Leikurinn var afar jafn og skemmtilegur, veðrið nokkuð gott þó færi að blása þegar leið á daginn og allir komu sáttir og sælir í hús.
Það var góður gestur, Frímann, sem stjórnaði kvöldverðinum og afhenti verðlaunin. Góður rómur var gerður að málflutningi Frímanns og menn hafa nú á orði að rétt sé að taka upp reglur hans í golfinu, að minnsta kosti reglurnar hver heldur á hvaða tebolla!
Urriðavöllur er afar fallegur og skemmtilegur völlur og þar er öll aðstaða og starfsfólk til fyrirmyndar. Samskip þakka öllum þátttakendum og starfsfólki fyrir gott mót og skemmtilega keppni.

