Samskip - Fréttir
Björgunarbátur fluttur til Vestmannaeyja til æfinga
Á föstudaginn var fluttu Samskip Stefni, björgunarbát Hjálparsveitar Skáta í Kópavogi, til Vestmannaeyja með Arnarfellinu. Tilefni flutningsins var sameiginleg sjóæfing með Björgunarsveitinni í Vestmanneyjum og fleiri sveitum sem fór fram á laugardeginum í góðu veðri. Meðlimir hjálparsveitarinnar sigldu bátnum svo heim að lokinni æfingu.

