Um Samskip
Samskip eru alþjóðlegt félag sem býður flutninga og tengda þjónustu á sjó, landi og í lofti. Frá stofnun félagsins árið 1990 hefur starfsemin vaxið jafnt og þétt, bæði með kaupum á öðrum félögum og vegna innri vaxtar. Samskip bjóða upp á heildarþjónustu á Íslandi og í Færeyjum, fjölþátta flutningsþjónustu um alla Evrópu og frysti- og framhaldsflutninga um allan heim. Félagið starfrækir skrifstofur í yfir 20 löndum í þremur heimsálfum og eru starfsmenn um 1.000 talsins.
Stjórn Samskip Holding BV
Stjórnarformaður – Ólafur Ólafsson
Hjörleifur Jakobsson
Ragnar Þór Jónsson
Forstjóri Samskipa á Íslandi er Ásbjörn Gíslason.
Stjórn Samskipa hf.
Stjórnarformaður - Hjörleifur Jakobsson
Ragnar Þór Jónsson
Kristinn Albertsson
Ísland og Færeyjar
Þrjú skip sigla vikulega til og frá Íslandi; Arnarfell, Helgafell og Tongan. Viðkomustaðir eru Færeyjar, Bretland, meginland Evrópu og Skandinavía. Auk þess sér stórflutningadeild Samskipa um flutning á heilförmum vegna sérverkefna og annast umboðsþjónustu fyrir allar tegundir skipa sem hafa viðkomu hér á landi.
Samskip hafa byggt upp einstakt landflutningakerfi undir merkjum Landflutninga-Samskipa þar sem flestar sendingar ná á áfangastað innan sólarhrings. Höfuðstöðvarnar eru í Reykjavík og skrifstofur eru starfræktar í öllum landshlutum. Samskip annast rekstur ferjunnar Sæfara sem siglir milli Dalvíkur, Grímseyjar og Hríseyjar.
Vörumiðstöð Samskipa er staðsett í höfuðstöðvum félagsins við Kjalarvog í Reykjavík. Hún er búin öflugum gæða- og upplýsingakerfum sem auðvelda viðskiptavinum að fylgjast með birgðum sínum á hverjum tíma. Jónar Transport, dótturfyrirtæki Samskipa, sem einnig er staðsett í Samskipahúsinu við Kjalarvog, býður upp á flutninga til og frá Íslandi, bæði á sjó og í lofti, og aðstoðar við alla skjalagerð er tengist flutningum.
Fjölþátta gámaflutningsþjónusta
Fjölþátta gámaflutningsþjónusta Samskipa felur í sér margvíslega flutningsmáta á sjó og landi, jafnt með skipum, lestum og bílum, allt eftir aðstæðum hverju sinni. Með því að velja hagkvæmasta kostinn á hverjum tíma næst aukið hagræði sem skilar sér beint til viðskiptavina auk þess sem afgreiðslutími styttist verulega.
Gámafloti Samskipa inniheldur gáma af ýmsum stærðum og gerðum, bæði hefðbundna gáma sem og nýjustu tegundir, t.d. gáma sem er hægt að hlaða og afferma frá hlið sem skapar mikið hagræði.
Frystiflutningar
Samskip hafa fest sig verulega í sessi á frystiflutningamarkaðinum. Félagið býður heildarþjónustu á þessu sviði, þ.e. sjóflutninga, flugflutninga, landflutninga, lestun og losun og geymslu afurða í frystivörumiðstöðvum sem og skjalagerð. Til að geta veitt viðskiptavinum sem besta þjónustu starfrækja Samskip skrifstofur á stærstu markaðssvæðunum fyrir sjávarafurðir, kjötafurðir, grænmeti og ávexti, bæði á meginlandi Evrópu, í Bretlandi, Skandinavíu, Asíu og Norður- og Suður-Ameríku.
Frystivörumiðstöðvar Samskipa eru staðsettar í Kollafirði í Færeyjum og í Reykjavík en auk þess starfrækir dótturfyrirtækið FrigoCare geymslur í Rotterdam í Hollandi og í Álasundi í Noregi. Önnur tengd þjónusta, s.s. löndunarþjónusta, er einnig í boði. 45 feta Coolboxx frystigámar eru nýjung sem Samskip bjóða upp á í frysti- og kæliflutningum. Þeir eru fyllilega samkeppnishæfir í flutningsgetu við frystiflutningabíla en flutningskostnaður er lægri.
Á vegum Samskipa og Silver Sea eru frystiskip í siglingum, flest í flutningum frá Íslandi, Færeyjum, Noregi og Hjaltlandseyjum til meginlands Evrópu, Bretlands, Skandinavíu, Eystrasaltsríkjanna og Rússlands.
Samskip í tölum
Hjá Samskipum starfa um 1.000 manns og rekur félagið 47 skrifstofur í 23 löndum Evrópu, Asíu, Norður og Suður Ameríku.
Dótturfélög Samskipa eru Jónar Transport, FrigoCare, Van Dieren og Silversea.
Samskip hafa á að skipa myndarlegum og fjölbreyttum flota, þar á meðal:
- 9 gámaskip
- 12 kæliflutninga- og stórflutningaskip
Samskip eiga gáma af ýmsum gerðum:
- yfir 9000 45 feta gáma
- yfir 3000 40 feta gáma
- yfir 1700 20 feta gáma
- yfir 1000 kæliflutninga gáma
- yfir 800 opna gáma
- yfir 1900 gámafleti
- og 165 trailera
Samskip eiga og reka tvær stórar fyrstigeymslur og á FrigoCare einnig tvær geymslur sem eru á eftirtöldum stöðum:
- Kollafjordur, Færeyjum
- Reykjavík, Íslandi
- FrigoCare, Rotterdam, Hollandi
- FrigoCare, Alesund, Noregi
Company profile >

