Fræðslustarf Samskipa

Metnaðarfullt fræðslustarf er einn af lykilþáttunum í starfsemi Samskipa. Rík áhersla er lögð á að fræðsluferlið sé virkt út um allt fyrirtækið og nái til fræðslu allra starfsmanna. Fræðsla skal vera hluti af framtíðaráætlun hvers starfsmanns og skal hann hafa möguleika til að auka við þekkingu sína og færni í núverandi starfi og afla sér þekkingar á nýjum sviðum.
Boðið er uppá markvissa fræðslu fyrir starfsmenn, s.s. sérsniðna fræðslu fyrir ákveðna hópa sem mótast af þörfum félagsins, löglega réttindafræðslu, fræðslu um öryggismál, þjónustu, söluhæfni, sjálfseflingu, mannleg samskipti, þjálfun í tæknilegri færni, nýliðafræðslu, stjórnendafræðslu, tungumálanám, íslenskunám fyrir erlent starfsfólk og margs konar einstaklingsfræðslu. Einnig hafa Samskip stofnað Flutningaskóla Samskipa en þar fer fram sérhæft einingametið nám fyrir starfsmenn sem eiga stutta formlega skólagöngu að baki.
Almennt um fræðslustarfið
Samskip leggja áherslu á að starfsmenn þróist í starfi enda er það forsenda þess að fyrirtækið geti haldið áfram að stækka og styrkjast. Starfsfólkið þarf að vera vel að sér og skilja hvernig best er að framkvæma hlutina og taka ákvarðanir sem byggðar eru á faglegum skilningi á viðskiptavinum fyrirtækisins og þörfum þeirra.
Starfsfólkið er okkar auðlind og grundvöllur þeirra framtíðar sem við stefnum að. Fræðsla skal því vera hluti af framtíðaráætlun hvers starfsmanns. Viðkomandi þarf að hafa möguleika á að auka við þekkingu sína og færni í núverandi starfi, auk þess að afla sér þekkingar á nýjum sviðum. Fræðslan skilar sér í hærra menntunarstigi fyrirtækisins, eykur starfsánægju og færni starfsfólks og skapar þannig verðmæti fyrir báða aðila.
Við þarfagreiningu fræðslu er höfð til hliðsjónar stefna og gildi fyrirtækisins, áherslur, lög og reglugerðir sem fyrirtækið þarf að uppfylla, markmið sviða og deilda, upplýsingar frá forstöðumönnum, rekstrarstjórum og verkstjórum og einnig óskir starfsmanna úr starfsmanna-samtölum.
Í lok námskeiða/námsgreina eru matsblöð lögð fyrir þátttakendur sem fræðslustjóri rýnir með það að markmiði að gera fræðsluna enn betri.
Allur aðbúnaður til kennslu er til fyrirmyndar og fer kennslan að mestu fram í tveimur fullbúnum kennslustofum við Kjalarvog.
Sérstök fræðslusíða er á innra neti Samskipa þar sem m.a. fræðsludagskráin er birt, ásamt markmiðum með kennslunni. Allir starfsmenn félagsins hafa aðgang að tölvum og rík áhersla er lögð á að síðan sé ætíð lifandi og virk.
Flutningaskóli Samskipa
Í ársbyrjun 2008 samþykktu framkvæmdastjórar Samskipa að setja á stofn heildstætt, markvisst nám um flutninga fyrir starfsfólk með litla formlega menntun. Áður höfðu starfsmenn setið ýmis námskeið, en allir voru sammála um að slíkur skóli gæti enn frekar eflt fagþekkingu og færni starfsmanna. Undirbúningsstarf hófst strax með fullum krafti og var skólinn settur formlega þann 2. september s.l. Fjórtán nemendur fengu inngöngu, en fjöldi umsókna barst frá námsfúsum starfsmönnum. Nemendur skiptast þannig eftir deildum; sjö starfsmenn frá Vörumiðstöð, fjórir frá Gámavelli og þrír frá Landflutningum.
Flutningaskóli Samskipa er sérhæfður skóli sem býður upp á tvíþætt fagnám og starfsnám í vöruflutningum og er hann starfræktur í samstarfi við Mími símenntun. Kennt er samkvæmt námskrá Samskipa sem byggð er á viðurkenndri námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem heitir “Vöruflutningaskólinn”. Samkvæmt þeirri námskrá er heimilt að breyta og aðlaga einstaka þætti námskrárinnar að markmiðum og rekstri fyrirtækja, enda séu allar kröfur um markmið og tilgang námsins uppfylltar.
Námskráin er viðurkennd af menntamálaráðuneytinu til allt að 23 eininga í framhaldsskóla. Námið tekur tvær annir, og er samtals 339 kennslustundir. Kennt er í vinnutíma starfsmanna tvisvar til þrisvar í viku og fer kennslan fer fram í kennslustofu Samskipa og á athafnasvæði félagsins við Kjalarvog. Skólinn er á ábyrgð forstöðumanns mannauðsdeildar, en dagleg umsjón hans er í höndum fræðslustjóra í samstarfi við Mími símenntun.
Hópur 1

Samskip leggja ríka áherslu á að taka vel á móti nýjum starfsmönnum. Starfrækt er markviss og samræmd mótttaka nýrra starfsmanna í öllum deildum sem nefnist Mentorkerfi.
Markmiðið er að taka vel á móti nýjum starfsmönnum og kynna fyrir þeim ferlin, kerfin, verklag og menningu fyrirtækisins. Reyndari starfsmenn taka að sér hlutverk Mentors og greiða nýliðum leiðina, í færni og félagslegri aðlögun. Mikilvægt er að við þjálfun nýliða sé bæði lögð áhersla á að auka færniþátt starfsmanna, jafnframt því að sjá til þess að nýr starfsmaður falli vel inn í hópinn, eignist trausta vinnufélaga og honum líði vel í vinnunni.
Hlutverk Mentora er fyrirfram skilgreint og styðjast þeir við gátlista fyrir hverja starfsstöð (30 listar) til að tryggja að öll mikilvæg atriði komist til skila. Um 40 starfsmenn gegna hlutverki Mentora og sér fræðslustjóri um að að halda kynningarfundi með þeim og útskýra í hverju það felist að vera Mentor. Einnig er tryggt að þeir fái fræðslu við hæfi s.s. um jafningjastjórnun, samtalstækni og hvernig best er að veita og þiggja endurgjöf og umbun.
Nýliðar fá afhenta nýliðahandbók sem gefin er út á íslensku, pólsku og ensku og endurskoðuð árlega. Þar er farið yfir almenn atriði í starfsseminni m.a. starfsmannamál, öryggismál og flutningaferlið.
Íslenskukennsla fyrir erlent starfsfólk
Markvisst er stuðlað að íslenskunámi meðal starfsmanna af erlendum uppruna hjá Samskipum. Alls hafa um 70 starfsmenn stundað nám í íslensku á vegum félagsins síðustu þrjár annir (3 x 40 tímar). Námið, sem er í samstarfi við Alþjóðahús og styrkt af menntamálaráðuneytinu er að hluta til starfstengt og fer það fram í vinnutíma starfsmanna.
Markmiðið með náminu er að auka tjáskipti milli samstarfsfélaga, auka starfsánægju og möguleika þeirra á starfsþróun innan fyrirtækisins. Þekking á tungumálinu er lykilatriði þegar kemur að samskiptum við samstarfsmenn og viðskiptavini og auðveldar þeim jafnframt alla aðlögun í íslensku samfélagi. Alls starfa nú 99 starfsmenn af erlendum uppruna hjá Samskipum á Íslandi, frá 28 þjóðum. Stjórnendur hafa einnig setið námskeið í menningarfærni sem er þáttur í þessu sameiginlega átaki.
Samskip eru handhafar Starfsmenntaverðlaunanna 2008, en um þau segir í kynningu: "Starfsmenntaverðlaun Starfsmenntaráðs eru veitt þeim aðilum sem þykja vinna framúrskarandi starf á sviði starfsmenntunar á Íslandi. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum; flokki fyrirtækja, flokki skóla og fræðsluaðila og opnum flokki (félagasamtök og einstaklingar). Tilgangur Starfsmenntaverðlaunanna er að styðja við nýsköpun og framþróun starfsmenntunar á Íslandi ásamt því að vekja athygli á málefninu. Verðlaunin eiga að vera verðlaunahöfum hvatning til áframhaldandi starfa og öðrum til fyrirmyndar á þessu sviði."
Nánari upplýsingar veitir Auður Þórhallsdóttir, fræðslustjóri Samskipa

