Gæðastarf

Gæðastarf

HjólÁrið 1997 stofnuðu Samskip gæðaráð og hófu formlega gæðastjórnun. Gæðastarfið felst í því að halda almennt gæðanámskeið fyrir stjórnendur og starfsmenn. Að því loknu var hafist handa við vinnslu að gæðaverkefnum en tilgangur þeirra var að efla hópastarf innan fyrirtækisins. Haustið 1998 var ráðinn gæðastjóri og fjárfest var í hugbúnaði fyrir gæðakerfið. Í upphafi árs 1999 voru gæðaráð og gæðaverkefni lögð niður og einblínt á áhættugreiningu og skráningu ferla á skrifstofu og rekstrarsviði.  Í framhaldi af því var GÁMES-kerfið innleitt fyrir alla vöruhúsastarfsemi Samskipa og flutningastarfsemi Landflutninga-Samskipa.

Gæðakerfi Samskipa
Gæðakerfið lýsir stjórnskipulagi, skiptingu ábyrgðar og verklagi. Markmið Samskipa er að tryggja samræmd vinnubrögð í öllu flutningakerfinu. Innri úttektir eru framkvæmdar með reglubundnum hætti og árangur gæðastjórnunar metinn til að sannreyna virkni kerfisins.

Handbók verkferla
Gæðadeildin gefur út og ber ábyrgð á handbókum Samskipa. Handbækurnar eru gefnar út á tölvutæku formi sem auðveldar aðgengi fyrir starfsmenn og gerir það að verkum að ávallt er notast við nýjustu útgáfuna. Í handbókunum hafa verkferlar verið skilgreindir og skráðir.

Handbækurnar eru byggðar upp eftir aðferðafræði ISO staðlanna og GÁMES-kerfisins (Greining Áhættu og Mikilvægra Eftirlits Staða - á ensku: HACCP). GÁMES er viðurkennd aðferð til að koma á innra eftirliti í matvælaiðnaði sem er mikilvægt fyrir Samskip sem er skilgreint sem matvælafyrirtæki.

Starfsstöðvar Samskipa hafa fengið vottun frá heilbrigðiseftirlitinu sem tryggir eftirlit með matvælum, rekjanleika vörunnar og hreinlæti.

Mælingar/gæðaeftirlit
Gæðadeildin heldur utan um frammistöðumælingar á flutningakerfinu, frávik og kvartanir. Innri úttektir eru framkvæmdar á öllum starfsstöðvum nokkrum sinnum á ári .

Umbótastarf
Ef frávik eiga sér stað frá reglulegri starfsemi eða ef kvartanir berast skal það skráð og úrvinnsla fer fram eftir ákveðnum verkferlum. Yfirmaður viðkomandi deildar ber ábyrgð á umbótum en gæðadeildin fylgir þessu ferli eftir.

Gæðastefna Samskipa er:

  • að vera í farabroddi í flutningum og flutningatengdri þjónustu
  • að uppfylla væntingar viðskiptavina og veita framúrskarandi þjónustu
  • að hafa á að skipta hæfu, vel þjálfuðu og ánægðu starfsfólki
  • að vinna eftir einföldu og skilvirku gæðakerfi
  • að uppfylla þær opinberu kröfur sem gilda um reksturinn




Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica