Markaðsstarf

Markaðsstarf

strakur_stelpaMegin áherslur í markaðsstarfi Samskipa eru að byggja á upp heildstæða markaðsstefnu fyrir félagið sem tekur mið af markmiðum, stefnumótun og framtíðarsýn fyrirtækisins. Byggja þarf upp góða ímynd fyrirtækisins og dótturfélaga innanlands sem erlendis, með áherslu á viðskiptavini, fjárfesta og starfsmenn. Sérstök áhersla er lögð á ímyndaruppbyggingu og vörumerkjavitund.

Markaðsstefnan tekur mið af þörfum og væntingum viðskiptavinarins, stuðlar að traustri og góðri ímynd og hlúir að umhverfi starfsmanna fyrirtækisins. Lögð er áhersla á bæði innri og ytri markaðssetningu til að ná settum markmiðum.
Markaðsstefna Samskipa miðar að samræmingu á ímynd félagsins, ásamt því að tryggja að allir aðilar vinni eftir sömu hugmyndafræði og vinnustöðlum. 

Markaðsstefna Samskipa miðar einnig að því að koma upplýsingum og skilaboðum um félagið á framfæri með skipulögðum hætti og vekja þannig áhuga núverandi og væntanlegra viðskiptavina, núverandi og væntanlegra starfsmanna, núverandi og væntanlegra samstarfsaðila, fjárfesta, opinberra aðila og almennings. Stefna Samskipa er að upplýsingar og skilaboð sem félagið sendir frá sér gefi til kynna að það sé traust, framsækið og arðvænlegt félag í alþjóðlegu umhverfi, veiti persónulega þjónustu þar sem fagmennskan er í fyrirrúmi, sé vænlegur og leiðandi samstarfsaðili til að leiða öflugt flutninganet á meginmörkuðum og sé virtur og eftirsóknarverður aðili í alhliða þjónustu á sviði flutninga og flutningatengdrar starfsemi.

Félagið verði til fyrirmyndar í markaðsmálum, vinni faglega og markvisst að því að koma málefnum félagsins á framfæri og að afla sér upplýsinga úr umhverfi þess, starfseminni og viðskiptavinum til framdráttar.

Þeir sem vilja óska eftir auglýsingum og styrkum, vinsamlegast fyllið út form um auglýsinga- og styrkjabeiðnir.





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica