Öryggismál

Öryggismál Samskipa

HjálmurSamskip leggja mikla áherslu á öryggismál og hefur félagið mótað skýra öryggisstefnu. Innan félagsins er starfrækt öryggisdeild sem eingöngu sinnir þessum málaflokki. Öryggisstjóri hefur yfirumsjón með öllum öryggismálum Samskipa, ber ábyrgð á og hefur heildaryfirsýn yfir þá fjölmörgu málaflokka sem undir öryggismálin falla. Dæmi um þessa flokka eru:

  1. Lög og reglugerðir.
  2. Ráðningar.
  3. Öryggi upplýsinga.
  4. Neyðaráætlanir.
  5. Öryggi viðskiptavina Samskipa.
  6. Verklagsreglur vegna öryggismála.
  7. Aðgangsstýring.
  8. Hönnun og viðhald umhverfis með tilliti til öryggismála.
  9. Þjálfun, menntun og símenntun starfsmanna í öryggistengdum efnum.
  10. Regluleg endurskoðun og endurbætur á öryggisstefnu og reglum Samskipa.

Það er eindreginn vilji Samskipa að öryggi sé gert hátt undir höfði og að rekstrareiningar Samskipa vinni eftir öryggisstefnunni. 

Frekari upplýsingar veitir öryggisstjóri, Bergvin Þórðarson, í síma 458 8535 / 458 8535 beggi@samskip.is

Hjá Samskipum eru öryggisverðir á vakt allan sólarhringinn og svara þeir í síma 458 8538 / 858 8536.

Öryggisstefna Samskipa

Samskip eru alhliða flutningafyrirtæki sem veitir auk þess flutningatengda þjónustu.  Samskip líta á það sem skyldu sína að tryggja öryggi viðskiptavina og starfsfólks á sem bestan hátt. Samskip einsetja sér að haga rekstrinum þannig að öryggi viðskiptavina og starfsfólks verði tryggt á sem bestan hátt.

Samskip áforma að framfylgja ofangreindri stefnu á eftirfarandi hátt:

  • Með því að kanna með skipulegum hætti ástand öryggismála innan fyrirtækisins.
  • Með því að taka upp og viðhalda þeim vinnubrögðum og verklagsreglum sem öryggisstjórnunarkerfið krefst.
  • Með símenntun og þjálfun starfsmanna.
  • Með reglulegum starfsmannafundum.
  • Með úrbóta- og umbótaverkefnum þar sem við á.
  • Með reglulegri endurskoðun á starfsaðferðum og stefnu.

Árangur á sviði öryggismála er ekki síst háður jákvæðu viðhorfi starfsfólks og því er nauðsynlegt að tryggja að allt starfsfólk sé meðvitað um öryggisstefnu fyrirtækisins og markmið hennar. Samskip leggja áherslu á að upplýsa starfsfólk og skapa jákvætt viðhorf meðal þess gagnvart stefnu og markmiðum fyrirtækisins í öryggismálum.

Samskip fylgja þeim lögum og reglugerðum er lúta að öryggismálum á starfssvæði sínu þ.m.t. IMGD, ADR og ISPS-kóða.

Flutningur á hættulegum efnum

Öryggi í flutningum er eitt af forgangsverkefnum Samskipa og hefur verið um langt skeið. Sum efni sem flutt eru fyrir viðskiptavini eru ekki með öllu hættulaus og það er í verkahring Samskipa að ganga úr skugga um að farið sé að lögum og reglugerðum hvað varðar flutning á þeim.

Hagsmunir viðskiptavina Samskipa eru mikils virði og lögð er áhersla á að fyllsta öryggis sé gætt.  Einn þáttur í þeirri vinnu er að upplýsa viðskiptavini um sértæka meðferð á hættulegum efnum þar sem það á við.

Lög um hættuleg efni og flutning á þeim koma frá Evrópusambandinu og er þeim framfylgt í gegnum reglugerð nr. 984/2000 af Vinnueftirlitinu, kallaðar ADR-reglur. Reglur þessar hafa í mörg ár lagt ákveðnar skyldur á herðar flutningsaðilum, en frá og með 1. janúar 2003, leggjast einnig skyldur á sendanda hættulegra efna.

Samkvæmt reglugerð nr. 948/2000 og seinni breytingum sem á henni hafa verið gerðar, ber sendanda að hafa eftirfarandi í huga:

1.      Sendandi ábyrgist að afhenda ekki vöru til flutnings, sem er hættuleg, eldfim, geislavirk eða spillandi eðlis án þess að gefa Samskipum fyrirfram skriflega tilkynningu um eðli hennar og merkja vöruna og gáminn eða aðrar umbúðir að utan eins og krafist er í hverjum þeim lögum eða reglugerðum, sem kunna að gilda meðan á flutningi stendur.

2.      Sendandi skuldbindur sig til að sjá um að vörunni sé pakkað á þann hátt, sem nægir til að þola venjulega áhættu í flutningi með tilliti til eðlis hennar og þannig að farið sé að öllum lögum og reglugerðum, sem gilda kunna meðan á flutningi stendur.

3.      Verði kröfum málsgreina 1 og 2 ekki fullnægt ber viðskiptamanni að verja, bæta og halda Samskipum skaðlausum gegn hverskyns tapi, skemmdum eða kostnaði, sem til kemur vegna þess að varan er boðin til flutnings, meðhöndluð eða flutt af farmflytjanda.

4.      Vöru, sem er eða verður einhvern tíma hættuleg, eldfim, geislavirk eða spillandi, má hvar eða hvenær sem er afferma, eyða eða gera skaðlausa án bóta og ef viðskiptamaður hefur ekki tilkynnt farmflytjanda um eðli hennar samkvæmt 1. lið hér að framan skal farmflytjandi ekki skuldbundinn til að leggja neitt til samtjóna vegna slíkrar vöru.

5.      Sendandi skal framvísa við afhendingu efnis; Farmbréfi með eftirfarandi upplýsingum um vöruna, sbr. viðauka A í ADR-reglunum: SÞ-númer og heiti samkvæmt ADR-reglunum, flokkur, bókstafirnir "ADR", fjöldi eininga, gerð umbúða og þyngd eða rúmmál vörunnar. Fyrir sprengifim efni skal einnig rita söluheiti þegar það á við; einnig skal gefa upp nettóþyngd efnisins.

6.      Einnig skal sendandi láta Samskip í té Flutningaslysakort þar sem listað eru rétt viðbrögð ef um óhapp við flutning verður um að ræða.





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica