Umhverfismál
Umhverfisstefna
Samskip hf. eru fyrirtæki í alhliða flutningum og flutningatengdri þjónustu og lítur á það sem skyldu sína að taka tillit til og vernda hina viðkvæmu náttúru lands og sjávar. Samskip hf. einsetja sér að ganga vel um náttúruauðlindir jarðarinnar og haga rekstri sínum svo að sem minnst röskun verði á náttúrunni.
Samskip hf. áforma að framfylgja ofangreindri stefnu á eftirfarandi hátt:
- Með því að kanna með skipulegum hætti ástand umhverfismála innan fyrirtækisins.
- Með því að taka upp og viðhalda þeim vinnubrögðum og verklagsreglum sem gæðakerfi Samskipa, þar með talið umhverfisstjórnunarkerfið (ISM code), krefst.
- Með símenntun og þjálfun starfsmanna.
- Með reglulegum starfsmannafundum.
- Með úrbóta- og umbótaverkefnum þar sem við á.
- Með reglulegri endurskoðun á stefnu og leiðum til að framfylgja henni.
Þar sem árangur á sviði umhverfisverndar er ekki síst háður jákvæðu viðhorfi starfsmanna er nauðsynlegt að tryggja að allir starfsmenn séu meðvitaðir um umhverfistefnu fyrirtækisins og markmið hennar.
Samskip hf. leggja því áherslu á að upplýsa starfsmenn og skapa jákvæð viðhorf meðal þeirra gagnvart stefnu og markmiðum fyrirtækisins í umhverfismálum.
Samskip hf. fylgja þeim lögum og reglugerðum er lúta að umhverfismálum á starfssvæði sínu þ.m.t. alþjóðarsamþykkt til verndar höfum gegn mengun frá skipum (MARPOL), alþjóðlegum reglur um flutning á hættulegum efnum á sjó (IMDG code) og Evrópu samþykkt um flutning hættulegra efna á vegum (ARD code).
Til að leggja áherslu á umhverfisstefnu Samskipa hf. staðfestir yfirstjórn fyrirtækisins þá ákvörðun sína að koma á skilvirku umhverfisstjórnunarkerfi með undirritun sinni.

