Frystiflutningalausnir um allan heim
|
|
Aðalskrifstofa í Rotterdam:
Samskip Icepak Logistics BV
Reeweg 25
Postcode 3089 KM
Rotterdam
The Netherlands
Sími: +31 88 400 1000
Jens Holger Nielsen er forstjóri.
Samskip hafa fest sig verulega í sessi á frystiflutningamarkaðinum. Félagið býður heildarþjónustu á þessu sviði, þ.e. sjóflutninga, flugflutninga, landflutninga, lestun og losun og geymslu afurða í frystivörumiðstöðvum sem og skjalagerð. Til að geta veitt viðskiptavinum sem besta þjónustu starfrækja Samskip skrifstofur á stærstu markaðssvæðunum fyrir sjávarafurðir, kjötafurðir, grænmeti og ávexti, bæði á meginlandi Evrópu, í Bretlandi, Skandinavíu, Asíu og Norður- og Suður-Ameríku.
Frystivörumiðstöðvar Samskipa eru staðsettar í Rotterdam í Hollandi, Álasundi í Noregi, Kollafirði í Færeyjum og í Reykjavík og er önnur tengd þjónusta, s.s. löndunarþjónusta, einnig í boði.
45 feta Coolboox frystigámar eru nýjung sem Samskip bjóða upp á í frysti- og kæliflutningum. Þeir eru fyllilega samkeppnishæfir í flutningsgetu við frystiflutningabíla en flutningskostnaður minni.
Á vegum Samskipa og Silver Sea eru ellefu frystiskip í siglingum, flest í flutningum frá Íslandi, Færeyjum, Noregi og Hjaltlandseyjum til meginlands Evrópu, Bretlands, Skandinavíu, Eystrasaltsríkjanna og Rússlands.
Frystivörumiðstöðvar
Samskip starfrækja alls fjórar frystigeymslur í Evrópu sem eru vel útbúnar til geymslu á frosnum afurðum:
FrigoCare í Hollandi (Rotterdam)
- Skjalavinnsla
- Flutningur frystigáma yfir á vagna fyrir akstur
- Hlutasendingar og dreifing
- Lestun og losun
- Geymslugeta: 17.000 tonn
Færeyjar (Kollafjordur)
- Frystiflutningar til Bretlands, Hollands og Asíu
- Aðstaða í rekkum og heilförmum
- Góð aðstaða fyrir togara
- Lestun og losun
- Geymslugeta: 7.000 tonn
FrigoCare í Noregi (Álasundi)
- Eigin gámavöllur og hafnaraðstaða
- Áætlunarsiglingar til Hollands og Asíu
- Góð þjónusta við fiskiskip
- Sérstakt geymslurými fyrir makríl
- Geymslugeta: 20.000 tonn
Ísland (Reykjavík)
- Hýsing í rekkum og heilförmum
- Frábær staðsetning tryggir gæði, öryggi og skilvirkni
- Sveigjanleg og hröð löndunarþjónusta
- Geymslugeta: 6.000 tonn

