- Gámaflutningakerfi í Evrópu

Gámaflutningakerfi í Evrópu

MCL_map_22-12-2008_HR

Aðalskrifstofa Samskipa í Rotterdam:

Waalhaven Oostzijde 81
3087 BM Rotterdam
The Netherlands
S: +31 88 400 1000
Fax: +31 88 400 1900
Tölvupóstur: rotterdam@samskip.com

Jens Holger Nielsen er forstjóri.

Fjölþátta flutningsnet Samskipa orðið það stærsta sinnar tegundar í Evrópu og viðamikil þjónusta í boði um alla álfuna. Tími, kostnaður og áfangastaður skipta höfuðmáli þegar kemur að vali á flutningsmáta. Fjölþátta gámaflutningsþjónusta Samskipa felur í sér margvíslega flutningsmáta á sjó og landi, jafnt með skipum, lestum og bílum, allt eftir aðstæðum hverju sinni. Með því að velja hagkvæmasta kostinn á hverjum tíma næst aukið hagræði sem skilar sér beint til viðskiptavina auk þess sem afgreiðslutími styttist verulega.

Gámafloti Samskipa inniheldur gáma af ýmsum stærðum og gerðum, bæði hefðbundna gáma sem og nýjustu tegundir, t.d. gáma sem er hægt að hlaða og afferma frá hlið sem skapar mikið hagræði.

Gámaflutningaskip félagsins í föstum áætlunarsiglingum innan Evrópu eru nú 27 talsins, að meðtöldum nýju skipunum Samskip Pioneer, Samskip Courier, Samskip Express og Samskip Explorer.

Flutningar innan Evrópu

rail_260608_LQSamskip bjóða upp á þéttriðið lestakerfi um Þýskaland, Ítalíu, Bretland, Spán, Ungverjaland, Svíþjóð og Danmörku.

Lestarflutningar verða einnig sífellt vinsælli flutningsmáti til að koma vörum hratt á áfangastað. Með lestarflutningum má forðast umferðarteppur á vegum og mikla mengun og um leið ná fram hagkvæmum og skilvirkum flutningum.

Gagnvirkt

Með rafrænum samskiptum bjóða Samskip (MCL) upp á:

  • Bókanir
  • Staðfestingu á bókunum
  • Samþykki tilboða og samninga
  • Rekja sendingar
  • Frammistöðumat
  • Lægri færslugjöld
  • Tölfræði yfir flutningana
  • Web-based CMR




Logo