Danmörk/Svíþjóð

Svíþjóð og Danmörk

Sweden-denmarkSamskip bjóða áreiðanlegar og tíðar siglingar frá Bretlandi og meginlandi Evrópu til Svíþjóðar og Danmerkur. Vikulegar brottfarir frá Rotterdam og Immingham til Varberg í Svíþjóð og Árósa í Danmörku tryggja viðskiptavinum skjóta þjónustu.

Allar hafnir eru valdar m.t.t. landfræðilegrar staðsetningar og tenginga innanlands og eru Svíþjóð og Danmörk hluti af gámaflutningakerfi Samskipa í Evrópu. Tíðar siglingar eru til u.þ.b. 35 hafna í Evrópu.

Svíþjóð/Danmörk                                Tíðni         
  Rotterdam <> Varberg (Svíþjóð) 1x í viku
  Immingham <> Varberg (Svíþjóð)  1x í viku
  Rotterdam <> Árósar (Danmörk) 1x í viku
  Immingham <> Árósar (Danmörk) 1x í viku
  Immingham <> Cuxhaven (Þýskaland) 1x í viku

Nánari upplýsingar veitir Þjónustueild


 Lestarflutningar

Samskip bjóða mjög góðar tengingar til og frá Svíþjóð með lestarflutningum. Einnig býður félagið upp á góðar tengingar til Suður- Evrópu, t.d. Ítalíu og Grikklands ásamt Austur-Evrópu í gegnum Herne í Þýskalandi.

  Lestarflutningar til/frá Svíþjóð   Tíðni
  Rotterdam (gegnum Herne) <> Almhult  6x í viku
  Rotterdam (gegnum Herne) <> Gautaborg  3x í viku
  Rotterdam (gegnum Herne) <> Norrköping 5x í viku

Auk flutningaþjónustunnar til og frá Svíþjóð bjóða Samskip upp á öflugt flutninganet á milli Hamborgar og Bremen í Þýskalandi og Svíþjóðar, Finnlands, Eystrasaltslandanna og Rússlands. Einnig eru beinar siglingar frá Rotterdam til Finnlands og Rússlands.





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica