Alhliða flutningaþjónusta fyrir íslenska og færeyska markaðinn

Samskip bjóða fjölbreytta þjónustu til viðskiptavina á Íslandi og í Færeyjum. Tíðar siglingar eru til og frá meginlandi Evrópu, Bretlandi og Skandinavíu. Tækniþróaðar frystivörumiðstöðvar, bæði með rekkum og fyrir heilfarma, vörumiðstöð og öflugt innanlandskerfi gera félaginu kleift að bjóða viðskiptavinum heildarþjónustu á sviði flutninga.
Þrjú skip sigla vikulega til og frá Íslandi. Viðkomustaðir eru Færeyjar, Bretland, meginland Evrópu og Skandinavía. Auk þess sér stórflutningadeild Samskipa um flutning á heilförmum vegna sérverkefna og annast umboðsþjónustu fyrir allar tegundir skipa sem hafa viðkomu hér á landi.
Einnig eru vikulegar siglingar til Norður-Ameríku frá Íslandi.
Aðalskrifstofa í Reykjavik:
Samskip hf.
Kjalarvogi 7-15
104 Reykjavik
Iceland
S: +354 458 8000
Fax: +354 458 8100
Tölvupóstur: reykjavik@samskip.com
Ásbjörn Gíslason er forstjóri.

