Óvíst hvenær viðgerð á Horst B lýkur

Horst B, leiguskip Samskipa, er komið til Reykjavíkur.  Eins og greint var frá í gærmorgun kom upp vélarbilun og seinkaði komu skipsins til Reykjavíkur vegna þessa og slæms veðurs.

Viðgerð á skipinu stendur yfir, en ekki liggur fyrir hvenær henni lýkur.  Óvissa ríkir því um brottför skipsins frá Reykjavík.