Tilboð í smíði og rekstur Vestmannaeyjaferjunnar

​Í gær voru opnuð tilboð í smíði og rekstur Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs.  Samskip voru þar meðal bjóðenda.  

Alls bárust 12 tilboð frá jafn mörgum skipasmíðastöðvum í smíði ferjunnar.  Þá bárust 6 tilboð frá 3 aðilum í smíði og rekstur ferju í svokallaðri einkaframkvæmd, tilboð Samskipa var þar á meðal.    Tilboðin í smíði voru á verðbilinu 3,0 til 4,8 milljarðar króna og tilboð í smíði og rekstur voru á verðbilinu 7,1 til 10,6 milljarðar króna. 

Af þessari niðurstöðu og reglum útboðsins má nú ætla að gengið verði að tilboði um smíði ferju en rekstur ferjunnar verði boðinn út sérstaklega í öðru útboði.  Samskip búa yfir 20 ára reynslu af ferjurekstri á Íslandi og sýna því mikinn áhuga að halda slíkum rekstri áfram.