{"id":254011034,"date":"2020-10-01T10:34:27","date_gmt":"2020-10-01T10:34:27","guid":{"rendered":"https:\/\/en.samskip.webdev.is\/?p=254011034"},"modified":"2020-10-01T10:34:27","modified_gmt":"2020-10-01T10:34:27","slug":"fjallad-var-vid-forstodumann-markads-og-samskiptadeildar-okkar-i-sidasta-timariti-sjavarafls","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/blog\/2020\/10\/01\/fjallad-var-vid-forstodumann-markads-og-samskiptadeildar-okkar-i-sidasta-timariti-sjavarafls\/","title":{"rendered":"Fjalla\u00f0 var um forst\u00f6\u00f0umann marka\u00f0s og samskiptadeildar okkar \u00ed s\u00ed\u00f0asta t\u00edmariti Sj\u00e1varafls"},"content":{"rendered":"<h6 class=\"wp-block-heading\"><\/h6>\n<p><strong>Finnst skemmtilegast a\u00f0 sj\u00e1 f\u00f3lk bl\u00f3mstra<\/strong><\/p>\n<p>\u00de\u00f3runn kemur \u00far sportv\u00f6rugeiranum, var fimm \u00e1r framkv\u00e6mdastj\u00f3ri \u00ed\u00fer\u00f3ttasvi\u00f0s hj\u00e1 Altis, sem m.a. selur Under Armour f\u00f6tin og \u00fear \u00e1 undan 13 \u00e1r v\u00f6rumerkjastj\u00f3ri hj\u00e1 Nike (Icepharma) \u00e1\u00f0ur en h\u00fan kom til starfa hj\u00e1 Samskipum fyrir einu og h\u00e1lfu \u00e1ri. H\u00fan vill \u00fe\u00f3 ekki gera of miki\u00f0 \u00far muninum \u00e1 \u00feessum st\u00f6rfum: ,,\u00c1 endanum erum vi\u00f0 alltaf a\u00f0 eiga vi\u00f0skipti vi\u00f0 f\u00f3lk,\u201c segir h\u00fan og b\u00e6tir \u00fev\u00ed vi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1var\u00fatvegurinn s\u00e9 skemmtileg grein, \u00fear sem s\u00e9 mikil fram\u00fer\u00f3un og n\u00fdsk\u00f6pun.<\/p>\n<p><strong>En hvernig kom \u00fea\u00f0 til a\u00f0 h\u00fan f\u00f3r a\u00f0 vinna hj\u00e1 Samskipum?<\/strong><\/p>\n<p>,,\u00c9g skellti m\u00e9r \u00ed MBA n\u00e1m og a\u00f0 loknu n\u00e1mi fann \u00e9g mj\u00f6g sterkt fyrir l\u00f6ngun til a\u00f0 r\u00f3a \u00e1 \u00f6nnur mi\u00f0. Mig langa\u00f0i \u00ed eitthva\u00f0 allt anna\u00f0 og h\u00e9r er \u00e9g \u00ed dag, forst\u00f6\u00f0uma\u00f0ur marka\u00f0s og samskipta hj\u00e1 Samskipum. ,,\u00deetta var algj\u00f6rlega n\u00fdtt fyrir mig a\u00f0 koma \u00ed Samskip,\u201c segir h\u00fan og m\u00e1 segja a\u00f0 \u00fear hafi h\u00fan vali\u00f0 a\u00f0 stinga s\u00e9r \u00ed dj\u00fapu laugina. ,,\u00c9g er mj\u00f6g \u00feakkl\u00e1t fyrir a\u00f0 hafa fengi\u00f0 a\u00f0 \u201ealast\u201c upp \u00e1 vinnumarka\u00f0i me\u00f0 st\u00f3rum al\u00fej\u00f3\u00f0legum v\u00f6rumerkjum sem eru lei\u00f0andi \u00e1 s\u00ednu svi\u00f0i. \u00c1 sama t\u00edma er \u00e9g l\u00edka \u00feakkl\u00e1t fyrir a\u00f0 hafa fengi\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 l\u00e6ra n\u00fdja hluti, n\u00fdta reynslu m\u00edna, \u00feekkingu og n\u00e1m \u00e1 n\u00fdjum v\u00edgst\u00f6\u00f0um. \u00dea\u00f0 er \u00f3tr\u00falega mikill l\u00e6rd\u00f3mur sem felst \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 fara \u00ed algj\u00f6rlega n\u00fdjan geira.\u201c<\/p>\n<div class=\"wp-block-image\">\n<figure class=\"alignright size-large is-resized\"><img decoding=\"async\" alt=\"\" class=\"wp-image-4474\" height=\"376\" src=\"https:\/\/www.samskip.is\/wp-content\/uploads\/sites\/9\/2020\/10\/rsz_thii_mbl_-_hari_-683x1024.jpg\" width=\"251\" \/><\/figure>\n<\/div>\n<p><strong>N\u00e1i\u00f0 samstarf vi\u00f0 sj\u00e1var\u00fatveginn<\/strong><\/p>\n<p>,,Undir marka\u00f0s- og samskiptasvi\u00f0 Samskipa falla innri og ytri samskipti og marka\u00f0sm\u00e1l, \u00fej\u00f3nustuvefur f\u00e9lagsins, \u00fer\u00f3un \u00e1 honum, \u00e1samt vefjum f\u00e9lagsins b\u00e6\u00f0i innri og ytri. Samf\u00e9lagsleg \u00e1byrg\u00f0 og umhverfism\u00e1l hafa einnig veri\u00f0 \u00e1 m\u00ednu bor\u00f0i en \u00e9g hef unni\u00f0 \u00feau m\u00e1l mj\u00f6g n\u00e1i\u00f0 me\u00f0 framkv\u00e6mdastj\u00f3ra rekstrarsvi\u00f0s hj\u00e1 okkur og \u00fdmsum h\u00f3pum innan f\u00e9lagsins. \u00dea\u00f0 er gaman a\u00f0 vinna hj\u00e1 Samskipum. Fyrir t\u00edma Covid ger\u00f0um vi\u00f0 eitthva\u00f0 skemmtilegt saman \u00ed hverjum m\u00e1nu\u00f0i til a\u00f0 efla andann me\u00f0al starfsmanna, fjallganga, happy hour, bing\u00f3, j\u00f3lapeysugle\u00f0i og svo m\u00e6tti lengi telja. \u00dea\u00f0 sem m\u00e9r finnst l\u00edka mj\u00f6g skemmtileg er a\u00f0 vi\u00f0 vinnum verkefni \u00fevert \u00e1 f\u00e9lagi\u00f0. \u00dea\u00f0 gefur starfsm\u00f6nnum t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fer\u00f3unar- og umb\u00f3taverkefnum og \u00fe\u00e1 kynnist f\u00f3lk betur. Vi\u00f0 h\u00f6fum einnig dregi\u00f0 vi\u00f0skiptavini a\u00f0 bor\u00f0inu \u00ed verkefnavinnu. \u00dea\u00f0 sem gefur m\u00e9r mest \u00ed starfi og m\u00e9r finnst skemmtilegast, er a\u00f0 sj\u00e1 hvernig f\u00f3lk \u00fer\u00f3ast og bl\u00f3mstrar vi\u00f0 hin \u00fdmsu verkefni og \u00ed r\u00e9ttum a\u00f0st\u00e6\u00f0um.\u201c<\/p>\n<p>,,Hj\u00e1 Samskipum vinnum vi\u00f0 n\u00e1i\u00f0 me\u00f0 sj\u00e1var\u00fatveginum ogbj\u00f3\u00f0um til a\u00f0 mynda upp \u00e1 bestu \u00fej\u00f3nustuna fr\u00e1 str\u00f6ndinni til Bretlands og meginlands Evr\u00f3pu. Vi\u00f0 leggjum mikla \u00e1herslu \u00e1 umhverfis\u00fe\u00e1ttinn,\u201c segir \u00de\u00f3runn. ,,Vissir\u00f0u til d\u00e6mis a\u00f0 \u00fea\u00f0 er miklu umhverfisv\u00e6nna a\u00f0 flytja fisk \u00ed fraktflutningum en me\u00f0 flugi?\u201c b\u00e6tir h\u00fan vi\u00f0, tekst \u00e1 loft og greinilegt a\u00f0 umhverfism\u00e1lin eiga hug hennar allan. ,,Sj\u00f3flutningar eru \u00e1n vafa umhverfisv\u00e6nni kostur en fraktflutningar \u00ed flugi. \u00deumalputtareglan er a\u00f0 fyrir hvert flutt tonn af farmi s\u00e9u gr\u00f3\u00f0urh\u00fasa\u00e1hrif flugsins um fimmt\u00e1nfalt meiri en skipsins.\u00a0Visth\u00e6fni leikur st\u00f3rt hlutverk hj\u00e1 Samskipum og f\u00e9lagi\u00f0 er mj\u00f6g framarlega \u00ed umhverfisv\u00e6num lausnum fyrir vi\u00f0skiptavini s\u00edna. Vi\u00f0 n\u00fdtum umhverfisv\u00e6na kosti eins og lestir og flj\u00f3tapramma til vi\u00f0b\u00f3tar vi\u00f0 v\u00f6rub\u00edlaflutninga \u00e1 meginlandinu, veljum umhverfisv\u00e6nasta flutningsm\u00e1tann \u00ed hverjum legg fyrir sig og dr\u00f6gum \u00feannig \u00far losun gr\u00f3\u00f0urh\u00fasalofttegunda.\u201c<\/p>\n<p><strong>Samf\u00e9lagsleg \u00e1byrg\u00f0 \u00ed fyrirr\u00fami hj\u00e1 Samskipum<\/strong><\/p>\n<p>,,\u00c9g er stolt af Samskipum en me\u00f0vitund um samf\u00e9lagslega \u00e1byrg\u00f0 hefur alla t\u00ed\u00f0 veri\u00f0 lei\u00f0arstef \u00ed starfsemi f\u00e9lagsins. \u00dear m\u00e1 nefna a\u00f0ger\u00f0ir \u00ed \u00fe\u00e1gu sj\u00e1lfb\u00e6rni, n\u00fdsk\u00f6pun og m\u00f3tv\u00e6gisa\u00f0ger\u00f0ir vi\u00f0 ska\u00f0leg umhverfis\u00e1hrif.\u201c \u00de\u00f3runn vinnur n\u00e1i\u00f0 me\u00f0 \u00f6llum svi\u00f0um fyrirt\u00e6kisins og \u00e1 l\u00edka \u00ed t\u00f6luver\u00f0um samskiptum vi\u00f0 vi\u00f0skiptavini, einkum \u00fe\u00e1 sem eru framarlega \u00ed umhverfism\u00e1lum. ,,\u00c9g hef mikinn \u00e1huga \u00e1 umhverfism\u00e1lum og \u00feau hafa veri\u00f0 \u00e1 m\u00ednu bor\u00f0i h\u00e9r \u00ed fyrirt\u00e6kinu. Samskip er til a\u00f0 mynda einn af stofna\u00f0ilum Votlendissj\u00f3\u00f0sins en \u00fear sit \u00e9g \u00ed stj\u00f3rn. Eitt af okkar verkefnum er a\u00f0 auka vitneskju um og stu\u00f0ning vi\u00f0 endurheimt votlendis en \u00fea\u00f0 er ein \u00f6flugasta lei\u00f0in \u00ed bar\u00e1ttunni vi\u00f0 loftslagsv\u00e1na. Samstarf vi\u00f0 Votlendissj\u00f3\u00f0inn er g\u00f3\u00f0 lei\u00f0 fyrir fyrirt\u00e6ki til a\u00f0 kolefnisjafna rekstur sinn a\u00f0 hluta til e\u00f0a algj\u00f6rlega. Vi\u00f0 erum \u00f6ll \u00ed \u00feessari bar\u00e1ttu saman og \u00fea\u00f0 skiptir miklu a\u00f0 hj\u00e1lpast a\u00f0.\u00a0<\/p>\n<p>\u00c9g upplifi ekki a\u00f0 kyn skipti m\u00e1li hj\u00e1 Samskipum. Jafnr\u00e9ttisstefna f\u00e9lagsins er mj\u00f6g sk\u00fdr og komi\u00f0 er jafnt fram vi\u00f0 alla hj\u00e1 Samskipum, \u00f3h\u00e1\u00f0 kyni e\u00f0a uppruna, en vissulega m\u00e6ttu vera fleiri konur hj\u00e1 fyrirt\u00e6kinu. \u00c9g er b\u00fain a\u00f0 skr\u00e1 mig \u00ed F\u00e9lag kvenna \u00ed sj\u00e1var\u00fatvegi og hlakka til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00feeirra starfi \u00e9g er einnig f\u00e9lagi \u00ed F\u00e9lagi kvenna \u00ed atvinnul\u00edfinu (FKA). \u00c9g hef fylgst me\u00f0 \u00fev\u00ed \u00f6fluga starfi sem b\u00e6\u00f0i \u00feessi f\u00e9l\u00f6g hafa unni\u00f0 undanfarin \u00e1r og \u00feeim ofurkrafti sem f\u00e9l\u00f6gin b\u00faa yfir. En \u00fea\u00f0 sem skiptir mestu m\u00e1li er a\u00f0 vi\u00f0 getum b\u00fai\u00f0 til samf\u00e9lag \u00fear sem \u00f6ll kyn hafa j\u00f6fn t\u00e6kif\u00e6ri. Jafnr\u00e9tti kynjanna er mikilv\u00e6gt mannr\u00e9ttindam\u00e1l og jafnframt forsenda fri\u00f0ar, framfara og \u00fer\u00f3unar. Jafnr\u00e9tti skiptir okkur \u00f6ll m\u00e1li \u00e1 einn e\u00f0a annan h\u00e1tt.\u00a0<\/p>\n<p><strong>Eigum flotta og sterka li\u00f0sheild\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0 \u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0\u00a0<\/strong><\/p>\n<div class=\"wp-block-image\">\n<figure class=\"alignright size-large\"><img decoding=\"async\" alt=\"\" class=\"wp-image-4472\" height=\"315\" src=\"https:\/\/www.samskip.is\/wp-content\/uploads\/sites\/9\/2020\/10\/image007.jpg\" width=\"314\" \/><\/figure>\n<\/div>\n<p>Innan fyrirt\u00e6kisins er yfirgripsmikil s\u00e9rfr\u00e6\u00f0ikunn\u00e1tta sem tengist sj\u00e1var\u00fatvegi og \u00fatflutningi. ,,Vi\u00f0 erum me\u00f0 mj\u00f6g g\u00f3\u00f0a bl\u00f6ndu af s\u00e9rmenntu\u00f0u f\u00f3lki og f\u00f3lki me\u00f0 \u00e1ratuga reynslu af flutningum. \u00deetta er flott og \u00fe\u00e9tt li\u00f0sheild en vi\u00f0 setjum vi\u00f0skiptavininn alltaf \u00ed fyrsta s\u00e6ti. Vi\u00f0 bj\u00f3\u00f0um upp \u00e1 heildar\u00fej\u00f3nustu fyrir sj\u00e1var\u00fatveginn, allan hringinn. \u00cd \u00cdsheimum h\u00e9rna \u00fati,\u201c segir h\u00fan og bendir \u00e1 st\u00f3rt, hv\u00edtt h\u00fas vi\u00f0 hafnarbakkann, ,,erum vi\u00f0 me\u00f0 fullkomnar og t\u00e6kniv\u00e6ddar frystigeymslur fyrir frystar afur\u00f0ir, b\u00e6\u00f0i fyrir minni og st\u00e6rri farma. S\u00e9r\u00fatb\u00fain sko\u00f0unarherbergi eru til g\u00e6\u00f0aeftirlits \u00ed mi\u00f0st\u00f6\u00f0inni og a\u00f0sta\u00f0a fyrir ytra landam\u00e6raeftirlit me\u00f0 matv\u00e6lum \u00e1 Evr\u00f3pska efnahagssv\u00e6\u00f0inu. Svo er Svala, sem eins og nafni\u00f0 gefur til kynna er k\u00e6ligeymsla, 900 fermetrar a\u00f0 st\u00e6r\u00f0. Einnig b\u00fd\u00f0ur Samskip fisk\u00fatflytjendum a\u00f0gang a\u00f0 tveimur st\u00f3rum saltfiskgeymslum. Svala var a\u00f0 st\u00f3rum hluta h\u00f6nnu\u00f0 \u00ed samvinnu vi\u00f0 vi\u00f0skiptavini Samskipa. \u00cd henni er fullb\u00fai\u00f0 sko\u00f0unarherbergi \u00fear sem vi\u00f0skiptavinir okkar geta sko\u00f0a\u00f0 g\u00e6\u00f0i v\u00f6runnar og \u00e1stand fisksins \u00e1\u00f0ur en hann er fluttur \u00far landi. Teymi\u00f0 okkar \u00ed \u00fatflutningsdeildinni er me\u00f0 \u00e1ratuga reynslu \u00ed \u00fatflutning og a\u00f0sto\u00f0 vi\u00f0 vi\u00f0skiptavini. Vi\u00f0 siglum vikulega fr\u00e1 Reykjav\u00edk me\u00f0 v\u00f6ru fyrir alla landsbygg\u00f0ina. \u00dea\u00f0 er g\u00f3\u00f0 lei\u00f0 og m\u00f6guleiki sem margir vi\u00f0skiptavinir okkar n\u00fdta s\u00e9r og f\u00e6ra \u00feannig v\u00f6ruflutningana af vegum landsins yfir \u00ed strandsiglingar.\u201c<\/p>\n<p>Samskip er me\u00f0 skrifstofur \u00ed 35 l\u00f6ndum \u00ed Evr\u00f3pu, Amer\u00edku, As\u00edu og \u00c1stral\u00edu og um 1.500 starfsmenn, en Covid-19 hefur gert \u00fea\u00f0 a\u00f0 verkum a\u00f0 marka\u00f0ir eru erfi\u00f0ir. ,,Vi\u00f0 breyttum siglingakerfunum, sendum f\u00f3lk \u00ed heimavinnu, loku\u00f0um m\u00f6tuneytinu og bjuggum til h\u00f3lf sem f\u00f3lk \u00feurfti a\u00f0 vinna innan. N\u00fa er f\u00f3lk a\u00f0 koma til baka.\u201c \u00c1standi\u00f0 kalla\u00f0i \u00e1 kr\u00edsustj\u00f3rnun. \u201eF\u00f3lk \u00e1 skrifstofunum vann heima, \u00fea\u00f0 var skr\u00edtin tilfinning a\u00f0 m\u00e6ta \u00ed n\u00e6stum t\u00f3mt h\u00fas.\u201c<\/p>\n<p>\u00de\u00f3runn segir f\u00f3lk hafa veri\u00f0 mj\u00f6g flj\u00f3tt a\u00f0 tileinka s\u00e9r n\u00fdja t\u00e6kni enda margt sem m\u00e1tti leysa me\u00f0 fjarvinnu ef viljinn var fyrir hendi. \u201eEn \u00fev\u00ed er ekki a\u00f0 leyna a\u00f0 sta\u00f0an er sn\u00fain og marka\u00f0ir erfi\u00f0ir. En \u00feetta \u00e1stand mun ekki vara a\u00f0 eil\u00edfu.\u201c<\/p>\n<\/p>\n<p><strong>L\u00edfi\u00f0 eftir vinnu<\/strong><\/p>\n<div class=\"wp-block-image\">\n<figure class=\"alignright size-large is-resized\"><img decoding=\"async\" alt=\"\" class=\"wp-image-4475\" height=\"424\" src=\"https:\/\/www.samskip.is\/wp-content\/uploads\/sites\/9\/2020\/10\/rsz_skidi-1024x1024.jpg\" width=\"424\" \/><\/figure>\n<\/div>\n<p>\u00de\u00f3runn haf\u00f0i ekki mikil tengsl vi\u00f0 sj\u00e1var\u00fatveg e\u00f0a flutnings\u00fej\u00f3nustu \u00e1\u00f0ur en h\u00fan h\u00f3f st\u00f6rf hj\u00e1 Samskipum. A\u00f0spur\u00f0 segist h\u00fan aldrei hafa veri\u00f0 \u00ed fiski en hafi hins vegar b\u00e6\u00f0i veitt lax \u00e1 st\u00f6ng og \u00feorsk \u00far Brei\u00f0afir\u00f0inum. Eignma\u00f0ur hennar er l\u00edka \u00e6tta\u00f0ur \u00far Brei\u00f0afir\u00f0i, \u00fe\u00f3tt ekki hafi hann fengist \u00e1 st\u00f6ng. \u00deau eiga \u00ferj\u00fa b\u00f6rn og eitt gl\u00e6n\u00fdtt barnabarn. H\u00fan vir\u00f0ist full af orku enda \u00e1 h\u00fan fj\u00f6lm\u00f6rg \u00e1hugam\u00e1l flest tengjast hreyfingu og \u00fativist. ,,\u00c9g vinn miki\u00f0, hef aldrei veri\u00f0 hr\u00e6dd vi\u00f0 \u00fea\u00f0, en utan vinnut\u00edma eru \u00fea\u00f0 g\u00e6\u00f0astundir me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni sem eru n\u00famer eitt, tv\u00f6 og \u00ferj\u00fa. Vi\u00f0 fer\u00f0umst miki\u00f0 me\u00f0 b\u00f6rnin okkar b\u00e6\u00f0i innanlands og utan. En upp\u00e1haldsfer\u00f0irnar eru sk\u00ed\u00f0afer\u00f0ir \u00fear n\u00e1 allir a\u00f0 vera saman og upplifa fj\u00f6llin, n\u00e1tt\u00faruna og samveru me\u00f0 g\u00f3\u00f0um vinum. Vei\u00f0i, golf og hj\u00f3lrei\u00f0ar eru l\u00edka ofarlega \u00e1 listanum yfir upp\u00e1halds\u00e1hugam\u00e1l. Fjallg\u00f6ngur eru l\u00edka skemmtilegar \u00ed g\u00f3\u00f0um h\u00f3p. En \u00fea\u00f0 sem skiptir mestu m\u00e1li a\u00f0 m\u00ednu mati er alltaf f\u00e9lagsskapurinn, \u00e1hugi minn \u00e1 f\u00f3lki er endalaus og \u00e9g n\u00e6rist \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 gera eitthva\u00f0 skemmtilegt me\u00f0 skemmtilegum h\u00f3p.<\/p>\n<p>\u00deegar \u00e9g var n\u00fdbyrju\u00f0 hj\u00e1 Samskipum bau\u00f0st m\u00e9r a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed Cyclothoninu me\u00f0 li\u00f0i Samskipa, a\u00f0 hj\u00f3la hringinn \u00ed kringum landi\u00f0. \u00dea\u00f0 var \u00f3tr\u00falega skemmtilegt \u00e6vint\u00fdri og upp \u00far stendur li\u00f0sheildin og f\u00e9lagsskapurinn. \u00dea\u00f0 var algj\u00f6rlega geggja\u00f0 a\u00f0 upplifa landi\u00f0 sitt \u00e1 \u00feennan h\u00e1tt.\u201c\u00a0<\/p>\n<p>N\u00fdtt \u00e1r segir \u00de\u00f3runn kalla \u00e1 n\u00fdjar \u00e1skoranir. \u201eN\u00e6sta verkefni\u00f0 hj\u00e1 m\u00e9r er Landv\u00e6ttirnir, en vi\u00f0 erum b\u00fanar a\u00f0 skr\u00e1 okkur nokkrar stelpur \u00ed Landv\u00e6ttina fyrir 2021. \u00c9g hlakka miki\u00f0 til a\u00f0 kl\u00e1ra \u00fea\u00f0 verkefni me\u00f0 \u00feeim flotta h\u00f3pi. \u00cd \u00fev\u00ed felst b\u00e6\u00f0i sk\u00ed\u00f0aganga, hj\u00f3lrei\u00f0ar, fjallahlaup og sund. Vi\u00f0 erum byrja\u00f0ar a\u00f0 \u00e6fa. F\u00e9lagsskapurinn er a\u00f0alatri\u00f0i\u00f0, enda sn\u00fdst \u00feetta um \u00fea\u00f0 a\u00f0 hafa \u00fea\u00f0 skemmtilegt og eiga g\u00f3\u00f0ar stundir me\u00f0 g\u00f3\u00f0um h\u00f3pi, ekki a\u00f0 sl\u00e1 met. Keppnisskapi\u00f0 er vissulega til sta\u00f0ar en \u00e9g er alveg rauns\u00e6 b\u00e6\u00f0i \u00e1 eigin getu og \u00feann t\u00edma sem \u00e9g \u00e6tla a\u00f0 setja \u00ed \u00feetta,\u201c segir \u00de\u00f3runn a\u00f0 lokum. Keppnisskapi\u00f0 vir\u00f0ist \u00fe\u00f3 vera til sta\u00f0ar, b\u00e6\u00f0i \u00ed leik og starfi, \u00fe\u00f3 alltaf s\u00e9 \u00e1herslan \u00e1 \u00fer\u00f3un, samf\u00e9lagslega \u00e1byrg\u00f0, g\u00f3\u00f0 samskipti og skemmtilegan f\u00e9lagsskap.<\/p>\n<p>Greinina m\u00e1 einnig sko\u00f0a \u00e1 vef <a href=\"https:\/\/issuu.com\/sjavarafl\/docs\/sja_varafl_sept._2020_kvennabla__net\/s\/11045994\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">Sj\u00e1varafls<\/a> \u00e1samt skemmtilegum greinum um konur \u00ed sj\u00e1var\u00fatvegi.<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Finnst skemmtilegast a\u00f0 sj\u00e1 f\u00f3lk bl\u00f3mstra \u00de\u00f3runn kemur \u00far sportv\u00f6rugeiranum, var fimm \u00e1r framkv\u00e6mdastj\u00f3ri \u00ed\u00fer\u00f3ttasvi\u00f0s hj\u00e1 Altis, sem m.a. selur Under Armour f\u00f6tin og \u00fear \u00e1 undan 13 \u00e1r v\u00f6rumerkjastj\u00f3ri [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":14,"featured_media":1135405032,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"footnotes":""},"categories":[32],"tags":[],"class_list":["post-254011034","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/254011034","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/14"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=254011034"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/254011034\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=254011034"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=254011034"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=254011034"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}