{"id":35368813,"date":"2020-06-12T15:59:29","date_gmt":"2020-06-12T15:59:29","guid":{"rendered":"https:\/\/en.samskip.webdev.is\/?p=35368813"},"modified":"2020-06-12T15:59:29","modified_gmt":"2020-06-12T15:59:29","slug":"vid-erum-samskip-vidtal-vid-freyju-okkar","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/blog\/2020\/06\/12\/vid-erum-samskip-vidtal-vid-freyju-okkar\/","title":{"rendered":"Vi\u00f0 erum Samskip \u2013 vi\u00f0tal vi\u00f0 Freyju okkar"},"content":{"rendered":"<p>Vi\u00f0 erum Samskip &#8211; vi\u00f0tal vi\u00f0 Freyju okkar<\/p>\n<h3 class=\"wp-block-heading\" id=\"vi\u00f0-t\u00f3kum-vi\u00f0tal-vi\u00f0-freyju-samstarfsf\u00e9laga-okkar-\u00e1-d\u00f6gunum-kynnumst-\u00feessari-kjarnakonu-betur-h\u00e9r\">Vi\u00f0 t\u00f3kum vi\u00f0tal vi\u00f0 Freyju samstarfsf\u00e9laga okkar \u00e1 d\u00f6gunum &#8211; kynnumst \u00feessari kjarnakonu betur h\u00e9r:\u00a0<\/h3>\n<p><strong>c<\/strong><\/p>\n<p><strong>Freyja h\u00f3f st\u00f6rf hj\u00e1 Samskipum \u00e1ri\u00f0 2014 og hefur \u00fev\u00ed veri\u00f0 hj\u00e1 okkur \u00ed sex \u00e1r.<\/strong><\/p>\n<p><strong>Fj\u00f6lskylda:<\/strong><\/p>\n<p>D\u00e6miger\u00f0 \u00edslensk fj\u00f6lskylda, tv\u00f6 b\u00f6rn og hundur!\u00a0<\/p>\n<p><strong>\u00c1hugam\u00e1l:<\/strong><\/p>\n<p>\u00c9g er a\u00f0 m\u00f6rgu leyti al\u00e6ta \u00e1 \u00e1hugam\u00e1l, hef mj\u00f6g v\u00edtt \u00e1hugasvi\u00f0 og oftast er \u00fea\u00f0 skortur \u00e1 t\u00edma sem kemur \u00ed veg fyrir a\u00f0 geta stunda\u00f0 \u00feau \u00f6ll. \u00c9g n\u00fdti fr\u00edt\u00edmann gjarnan \u00ed hj\u00f3labr\u00f6lt, hvort sem \u00fea\u00f0 eru fjallahj\u00f3l e\u00f0a g\u00f6tuhj\u00f3lrei\u00f0ar. \u00c1 veturna erum vi\u00f0 dugleg a\u00f0 fara \u00e1 sk\u00ed\u00f0i og n\u00fana \u00ed vetur pr\u00f3fa\u00f0i \u00e9g g\u00f6ngusk\u00ed\u00f0i sem var skemmtileg vi\u00f0b\u00f3t. \u00c9g spila l\u00edka blak me\u00f0 galv\u00f6skum \u00f6ldungum hj\u00e1 Fram og elska \u00fea\u00f0 \u00ed botn.<\/p>\n<p>\u00c1\u00f0ur stunda\u00f0i \u00e9g miki\u00f0 hestamennsku og hef enn\u00fe\u00e1 mj\u00f6g gaman af \u00fev\u00ed \u00fe\u00f3tt \u00e9g fari allt of sjaldan n\u00faor\u00f0i\u00f0. \u00c9g stunda fjallg\u00f6ngur og finnst geggju\u00f0 tilfinning a\u00f0 toppa skemmtileg og krefjandi fj\u00f6ll. \u00c9g reyni a\u00f0 fara \u00ed eina lengri g\u00f6ngu \u00e1 sumrin og \u00ed sumar er stefnan sett, me\u00f0 g\u00f3\u00f0um h\u00f3pi, \u00e1 sv\u00e6\u00f0i\u00f0 \u00ed kringum Tindfj\u00f6ll. \u00deetta ver\u00f0ur fimm daga fer\u00f0 \u00fear sem ver\u00f0ur gist \u00ed sk\u00e1lum og noti\u00f0 \u00fat \u00ed ystu \u00e6sar.<\/p>\n<p>\u00c9g hef \u00ferisvar sinnum teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt Wow Cyclothon me\u00f0 samstarfsf\u00f3lki hj\u00e1 Samskipum. \u00deessar fer\u00f0ir hafa veri\u00f0 mj\u00f6g \u00f3l\u00edkar, en endalaust skemmtilegar hver fyrir sig. \u00c9g myndi r\u00e1\u00f0leggja \u00f6llum a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt a.m.k. einu sinni \u2013 \u00fev\u00ed \u00feetta er engu l\u00edkt. A\u00f0 hj\u00f3la hringinn \u00ed kringum landi\u00f0 \u00ed alls konar ve\u00f0ri me\u00f0 geggju\u00f0u f\u00f3lki er magna\u00f0. \u00c9g held a\u00f0 ein sterkasta upplifunin af magna\u00f0ri n\u00e1tt\u00faru hafi veri\u00f0 a\u00f0 hj\u00f3la inn \u00ed n\u00f3tt n\u00famer tv\u00f6 \u00e1 Su\u00f0urlandi \u00fear sem j\u00f6klarnir, sandarnir og umhverfi\u00f0 hreinlega greip \u00feig og gaf endalausan kraft. \u00dea\u00f0 var l\u00edka hresst \u00feegar vi\u00f0 gleymdum a\u00f0 taka bens\u00edn og ur\u00f0um bens\u00ednlaus upp \u00e1 hei\u00f0i, \u00feegar einn \u00far h\u00f3pnum t\u00fdndist, \u00feegar vinnub\u00edllinn stoppa\u00f0i af \u00fev\u00ed lyklarnir a\u00f0 honum lentu \u00f3vart \u00ed hv\u00edldarb\u00edlnum, vi\u00f0 gleymdum a\u00f0 beygja upp afleggjarann a\u00f0 \u00d6xi, og svona m\u00e6tti endalaust telja.<\/p>\n<p>\u00cd svona fer\u00f0um s\u00e9st vel hva\u00f0 li\u00f0sheildin skiptir gr\u00ed\u00f0arlegu m\u00e1li og kom \u00fea\u00f0 t.d. bers\u00fdnilega \u00ed lj\u00f3s \u00feegar vi\u00f0, \u00e1samt \u00feremur li\u00f0um sem vi\u00f0 vorum a\u00f0 vinna me\u00f0, lentum \u00ed frekar harkalegum \u00e1rekstri. \u00cd \u00e1rekstrinum lentu fj\u00f3rir hj\u00f3lrei\u00f0amenn saman, flugu af hj\u00f3lunum og \u00ed g\u00f6tuna. Tveir meiddust alvarlega sem var\u00f0 til \u00feess a\u00f0 tv\u00f6 li\u00f0anna \u00feurftu a\u00f0 draga sig \u00far keppni. Okkar li\u00f0 var heppi\u00f0 a\u00f0 sleppa me\u00f0 skrekkinn, en \u00fea\u00f0 sem var svo magna\u00f0 vi\u00f0 \u00feetta atvik, var a\u00f0 upplifa samst\u00f6\u00f0una, li\u00f0sheildina og umhyggjuna \u00ed h\u00f3pnum. \u00cd \u00feessum fer\u00f0um hefur myndast einhver mass\u00edf sam\u00fej\u00f6ppun og einstakur vinskapur.<\/p>\n<p><strong>Hva\u00f0 er \u00fea\u00f0 skemmtilegasta sem \u00fe\u00fa gerir \u00ed vinnunni?<\/strong><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 er kannski ekkert eitt sem gerir starfi\u00f0 mitt skemmtilegt. \u00c9g held a\u00f0 spili sterkt inn \u00ed hversu fj\u00f6lbreytt starfi\u00f0 er og \u00f3l\u00edk verkefnin sem \u00e9g er a\u00f0 klj\u00e1st vi\u00f0. Dagarnir einkennast af miklum samskiptum. \u00c9g kann vel vi\u00f0 a\u00f0 hafa n\u00f3g fyrir stafni og \u00fer\u00edfst \u00e1 samveru vi\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk. \u00c9g elska samt verkefni sem hafa upphaf og endi, sem \u00fearf a\u00f0 s\u00f6kkva s\u00e9r ofan \u00ed og leysa. \u00c9g \u00fer\u00edfst vel \u00ed skapandi umhverfi og vill gjarnan reyna a\u00f0 finna lei\u00f0ir til \u00feess a\u00f0 b\u00e6ta verklag og reyni a\u00f0 hafa augun opin fyrir umb\u00f3tat\u00e6kif\u00e6rum. \u00c9g er \u00f3tr\u00falega \u00e1n\u00e6g\u00f0 me\u00f0 menninguna innanh\u00fass hj\u00e1 okkur, \u00fear sem n\u00fdjum hugmyndum er teki\u00f0 fagnandi og r\u00fdmi er gefi\u00f0 til a\u00f0 pr\u00f3fa \u00fe\u00e6r og \u00fer\u00f3a \u00e1fram.<\/p>\n<p><strong>Hva\u00f0a \u00e1skoranirnar m\u00e6ta \u00fe\u00e9r helst \u00ed starfi?\u00a0<\/strong><\/p>\n<p>Au\u00f0vita\u00f0 koma allskyns \u00e1skoranir upp \u00ed m\u00ednu starfi eins og \u00ed flestum \u00f6\u00f0rum. T\u00edminn \u00ed fjarvinnu var \u00e1g\u00e6tis \u00e1skorun fyrir mig. \u00c9g kann vel vi\u00f0 a\u00f0 hafa l\u00edf og fj\u00f6r \u00ed kringum mig og fann \u00fea\u00f0 vel a\u00f0 eftir a\u00f0 hafa veri\u00f0 heima \u00ed 12 vikur a\u00f0 sl\u00edk einvera, \u00fear sem samskipti vi\u00f0 samstarfsf\u00e9laga f\u00f3ru einungis \u00ed gegnum fjarfundi, er ekki endilega minn tebolli. \u00c9g var mj\u00f6g fegin a\u00f0 komast aftur \u00ed Kjalarvoginn og hitta samstarfsf\u00e9lagana \u2013 og \u00feurfti a\u00f0 halda aftur af m\u00e9r til \u00feess a\u00f0 kn\u00fasa ekki f\u00f3lki\u00f0 sem \u00e9g m\u00e6tti \u00e1 ganginum \u00e1 fyrsta degi!<\/p>\n<p><strong>Hver var s\u00ed\u00f0asti fyrirlesturinn sem \u00fe\u00fa s\u00f3ttir ?<\/strong><\/p>\n<p>S\u00ed\u00f0asti fyrirlestur sem \u00e9g sat var \u00ed n\u00e1minu \u00ed vetur og var um \u201eSamskipti og mi\u00f0lun lei\u00f0toga\u201c. \u00dear var fari\u00f0 yfir mikilv\u00e6gi uppl\u00fdsingami\u00f0lunar \u00e1 kr\u00edsut\u00edmum \u2013 virkilega \u00e1hugavert efni og mikilv\u00e6gt og s\u00e9rlega \u201erelevant\u201c \u00ed \u00feeim a\u00f0st\u00e6\u00f0um sem hafa veri\u00f0 \u00ed samf\u00e9laginu sl. vikur og m\u00e1nu\u00f0i.\u00a0<\/p>\n<p><strong>Hva\u00f0a b\u00f3k hefur haft mest \u00e1hrif \u00e1 \u00feig ?<\/strong><\/p>\n<p>\u00c9g elska a\u00f0 lesa g\u00f3\u00f0ar b\u00e6kur og er alltaf me\u00f0 b\u00f3k \u00e1 n\u00e1ttbor\u00f0inu, e\u00f0a \u00ed Kindlinum. N\u00fdlega kl\u00e1ra\u00f0i \u00e9g b\u00f3kina \u201eWhy we sleep\u201c eftir Matthew Walker sem er virkilega \u00e1hugaver\u00f0. \u00c9g er algj\u00f6r A-manneskja og er oftast farinn a\u00f0 sofa snemma \u00e1 kv\u00f6ldin og hef fengi\u00f0 endalaus skot um \u00fea\u00f0! En eftir a\u00f0 hafa lesi\u00f0 b\u00f3kina, \u00fe\u00e1 finnst m\u00e9r eins og \u00e9g hafi fengi\u00f0 \u201evottor\u00f0 fr\u00e1 l\u00e6kni\u201c um a\u00f0 ma\u00f0ur eigi a\u00f0 fara a\u00f0 sofa snemma og get n\u00fana l\u00e1ti\u00f0 \u00feessi skot um svefnvenjur m\u00ednar sem vind um eyru \u00fej\u00f3ta.\u00a0\u00a0<\/p>\n<p><strong>Hver myndi leika \u00feig \u00ed kvikmynd?<\/strong><\/p>\n<p>V\u00f3 \u2013 \u00e6tli \u00fea\u00f0 s\u00e9 ekki sama og l\u00e9k Emil \u00ed Kattholti&#8230;hef stundum s\u00e9\u00f0 sj\u00e1lfa mig \u00ed honum og ekki skemmir fyrir a\u00f0 \u00e9g hef h\u00edft systir m\u00edna upp \u00ed f\u00e1nast\u00f6ng eins og hann ger\u00f0i.<\/p>\n<p><strong>Hvernig heldur\u00f0u \u00feekkingu \u00feinni vi\u00f0?<\/strong><\/p>\n<p>\u00c9g hef gaman a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 l\u00e6ra eitthva\u00f0 n\u00fdtt og hef leitast vi\u00f0 a\u00f0 fylgjast me\u00f0 fyrirlestrum og n\u00e1mskei\u00f0um sem g\u00e6tu veri\u00f0 gagnleg. \u00c9g er ein af \u00feeirra sem alltaf eru me\u00f0 einhver \u00f3r\u00f3a \u00ed s\u00e9r og \u00feyrstir \u00ed a\u00f0 l\u00e6ra meira. \u00c9g skr\u00e1\u00f0i mig \u00fev\u00ed \u00ed 90 eininga vi\u00f0b\u00f3tarn\u00e1m vi\u00f0 H\u00e1sk\u00f3lann \u00e1 Bifr\u00f6st \u00ed Forystu og stj\u00f3rnun og \u00fatskrifast me\u00f0 MLM gr\u00e1\u00f0u \u00fea\u00f0an n\u00fana \u00ed lok j\u00fan\u00ed.\u00a0<\/p>\n<p><strong>Hugsar\u00f0u vel um heilsuna?<\/strong><\/p>\n<p>Vildi a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti sagt eitthva\u00f0 fallegt h\u00e9rna&#8230;.en j\u00fa eins og flestir \u00fe\u00e1 reyni \u00e9g a\u00f0 hugsa vel um heilsuna. \u00c9g hreyfi mig reglulega og hef mj\u00f6g gaman af \u00fev\u00ed.\u00a0<\/p>\n<p><strong>Ef \u00fe\u00fa m\u00e6ttir sinna hva\u00f0a starfi sem er \u00ed eina viku hva\u00f0 v\u00e6ri \u00fea\u00f0?<\/strong><\/p>\n<p>Eftir a\u00f0 \u00e9g hlusta\u00f0i \u00e1 podcast-vi\u00f0tal vi\u00f0 H\u00f6llu T\u00f3masar og fjalla\u00f0i um starf hennar sem forstj\u00f3ri B Team, heilla\u00f0ist \u00e9g algj\u00f6rlega af \u00feessu verkefni. B Team er vettvangur \u00e1hrifaf\u00f3lks, stj\u00f3rnm\u00e1la- og vi\u00f0skiptamanna sem hafa einsett s\u00e9r a\u00f0 lei\u00f0a umbreytingu \u00e1 vi\u00f0skipta- og stj\u00f3rnarh\u00e1ttum \u00e1 heimsv\u00edsu, \u00fear sem a\u00f0alf\u00f3kusinn er settur \u00e1\u00a0 loftslagsm\u00e1l, aukna fj\u00f6lbreytni \u00ed forystu, auki\u00f0 gagns\u00e6i og a\u00f0 b\u00faa til manneskjulegri vinnusta\u00f0i og samf\u00e9lag.\u00a0\u00c9g held a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri geggja\u00f0 a\u00f0 pr\u00f3fa vinna \u00ed svona umhverfi \u00fear sem teki\u00f0 er \u00e1 svona \u00f3tr\u00falega mikilv\u00e6gum verkefnum.\u00a0\u00a0<\/p>\n<p><strong>Hva\u00f0 myndir\u00f0u l\u00e6ra ef \u00fe\u00fa fengir a\u00f0 b\u00e6ta vi\u00f0 \u00feig n\u00fdrri gr\u00e1\u00f0u?<\/strong><\/p>\n<p>\u00dear sem l\u00e6rd\u00f3mshelgarnar og kv\u00f6ldlesturinn s\u00ed\u00f0asta vetur er m\u00e9r enn \u00ed fersku minni, \u00fe\u00e1 er \u00e9g alveg r\u00f3leg \u00ed t\u00ed\u00f0inni var\u00f0andi \u00e1framhaldandi n\u00e1m og er ekki me\u00f0 neitt \u00e1 dagskr\u00e1 \u00e1 n\u00e6stunni \u2013 en ef \u00e9g \u00feekki mig r\u00e9tt \u00fe\u00e1 getur \u00fea\u00f0 breyst \u00e1 stuttum t\u00edma!\u00a0<\/p>\n<p><strong>Hva\u00f0 \u00e6tlar \u00fe\u00fa a\u00f0 gera \u00ed sumarfr\u00edinu?<\/strong><\/p>\n<p>Sumari\u00f0 eru alltaf frekar sn\u00fain hj\u00e1 okkur fj\u00f6lskyldunni \u00fear sem vi\u00f0 erum oft \u00e1 t\u00ed\u00f0um dreif\u00f0 um allt land st\u00f3ran hluta sumarsins. Ma\u00f0urinn minn er \u00e1 strandvei\u00f0um nor\u00f0ur \u00e1 Str\u00f6ndum og sonurinn stendur vaktina me\u00f0 honum \u00fear \u00ed einhverjar vikur, \u00e1 me\u00f0an d\u00f3ttirin ver\u00f0ur a\u00f0 vinna \u00e1 H\u00f6fn \u00ed Hornafir\u00f0i. En vi\u00f0 stefnum \u00e1 a\u00f0 n\u00fdta vel \u00feann t\u00edma sem vi\u00f0 n\u00e1um saman og fara inn \u00e1 h\u00e1lendi\u00f0, fer\u00f0ast um landi\u00f0 me\u00f0 tjaldvagninn og nj\u00f3ta bl\u00ed\u00f0unnar sem ver\u00f0ur \u2013 \u00fev\u00ed \u00feetta sumar ver\u00f0ur geggja\u00f0 \u2013 vi\u00f0 eigum \u00fea\u00f0 inni!<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Vi\u00f0 erum Samskip &#8211; vi\u00f0tal vi\u00f0 Freyju okkar Vi\u00f0 t\u00f3kum vi\u00f0tal vi\u00f0 Freyju samstarfsf\u00e9laga okkar \u00e1 d\u00f6gunum &#8211; kynnumst \u00feessari kjarnakonu betur h\u00e9r:\u00a0 c Freyja h\u00f3f st\u00f6rf hj\u00e1 Samskipum \u00e1ri\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":14,"featured_media":1213817538,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"footnotes":""},"categories":[32],"tags":[],"class_list":["post-35368813","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35368813","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/14"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=35368813"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/35368813\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=35368813"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=35368813"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=35368813"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}