{"id":438926871,"date":"2018-03-20T00:00:00","date_gmt":"2018-03-20T00:00:00","guid":{"rendered":"https:\/\/en.samskip.webdev.is\/?p=438926871"},"modified":"2018-03-20T00:00:00","modified_gmt":"2018-03-20T00:00:00","slug":"vinamargur-med-dellu-fyrir-veidum-og-utivist","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/blog\/2018\/03\/20\/vinamargur-med-dellu-fyrir-veidum-og-utivist\/","title":{"rendered":"Vinamargur me\u00f0 dellu fyrir vei\u00f0um og \u00fativist"},"content":{"rendered":"<p>\u201eMa\u00f0ur er or\u00f0inn svo gamall a\u00f0 ma\u00f0ur \u00fearf or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 hugsa sig um og telja jafnvel \u00e1 fingrum s\u00e9r \u00feegar ma\u00f0ur er spur\u00f0ur a\u00f0 aldri,\u201c segir hann og b\u00e6tir vi\u00f0 eftir sm\u00e1 umhugsun: \u201e\u00c9g hl\u00fdt a\u00f0 vera 46 \u00e1ra.\u201c<\/p>\n<p><b>Flakk fyrstu \u00e1rin<\/b><\/p>\n<p>\u00dea\u00f0 var reyndar d\u00e1l\u00edti\u00f0 flakk \u00e1 Gunnari \u00e1 fyrstu \u00e6vi\u00e1runum, en hann var l\u00edka sem sm\u00e1gutti me\u00f0 fj\u00f6lskyldunni \u00ed New York \u00ed Bandar\u00edkjunum \u00ed \u00ferj\u00fa \u00e1r. B\u00fasetu utan landsteinanna segir hann l\u00edkast til skrifast \u00e1 \u00e6vint\u00fdra\u00fer\u00e1 foreldra hans. Nokku\u00f0 hafi veri\u00f0 um \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00e1runum upp \u00far 1970 a\u00f0 \u00cdslendingar flyttu til Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0ar til a\u00f0 starfa \u00fear. \u201ePabbi vann hj\u00e1 Husqvarna. Og \u00fe\u00f3 a\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi ekki sta\u00f0i\u00f0 lengi \u00fe\u00e1 var \u00fea\u00f0 samt n\u00f3g til \u00feess a\u00f0 \u00ed vegabr\u00e9finu stendur a\u00f0 \u00e9g s\u00e9 f\u00e6ddur \u00ed Sv\u00ed\u00fej\u00f3\u00f0.\u201c Sama \u00e6vint\u00fdra\u00fer\u00e1in hafi svo leitt \u00feau til Bandar\u00edkjanna \u00fear sem fa\u00f0ir Gunnars starfa\u00f0i hj\u00e1 Loftlei\u00f0um.<\/p>\n<p>\u201eVi\u00f0 komum svo aftur heim \u00ed Mosfellssveit \u00feegar \u00e9g komst \u00e1 grunnsk\u00f3laaldur og \u00fear vorum vi\u00f0 \u00fear til \u00e9g var sautj\u00e1n.\u201c Gunnar segir uppvaxtar\u00e1rin \u00ed Mosfellssveit hafa veri\u00f0 g\u00f3\u00f0an t\u00edma og n\u00f3g vi\u00f0 a\u00f0 vera. Hann var\u00f0 ungur heltekinn af handbolta og \u00f6llu sporti og segir a\u00f0 oftar en ekki hafi \u00feurft a\u00f0 reka hann heim \u00ed kv\u00f6ldmat \u00fev\u00ed svo gaman hafi veri\u00f0 \u00ed \u00ed\u00fer\u00f3ttah\u00fasinu. \u201e\u00dea\u00f0 var eiginlega mitt anna\u00f0 heimili.\u201c<\/p>\n<p>Gunnar segir a\u00f0 fram til 12 e\u00f0a 13 \u00e1ra aldurs hafi hann stunda\u00f0 af kappi hverjar \u00fe\u00e6r \u00ed\u00fer\u00f3ttir sem hann komst \u00ed. \u201eEn svo var\u00f0 handboltinn fyrir valinu. \u00c9g spila\u00f0i handbolta me\u00f0 Aftureldingu fram \u00e1 sautj\u00e1nda \u00e1r og f\u00f3r \u00fe\u00e1 yfir \u00ed Fram og spila \u00fear einhverja 200 meistaraflokksleiki e\u00f0a svo, og \u00ed gegn um \u00f6ll unglingalandsli\u00f0in \u00ed handbolta.\u201c<\/p>\n<p><b>F\u00f3r \u00ed Kvenn\u00f3<\/b><\/p>\n<p>Fj\u00f6lskyldan hafi svo flutt \u00ed Fossvoginn \u00ed Reykjav\u00edk \u00feegar komi\u00f0 var a\u00f0 menntask\u00f3lan\u00e1mi hj\u00e1 honum. Sk\u00f3linn sem var\u00f0 fyrir valinu var Kvennask\u00f3linn \u00ed Reykjav\u00edk. \u201eVi\u00f0 s\u00e1um \u00fea\u00f0 \u00ed hendi okkar vi\u00f0 Grj\u00f3ni vinur minn \u00far M\u00f3s\u00f3 a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri g\u00e1fulegt a\u00f0 skr\u00e1 okkur \u00ed Kvennask\u00f3lann. \u00c1 \u00feessum t\u00edma var ekki miki\u00f0 um str\u00e1ka \u00ed sk\u00f3lanum, en vi\u00f0 vorum tveir \u00ed bekknum og dekra\u00f0 vi\u00f0 okkur \u00ed fj\u00f6gur \u00e1r.\u201c<\/p>\n<p>Gunnar var sterkur n\u00e1msma\u00f0ur, gekk \u00e1g\u00e6tlega \u00ed gagnfr\u00e6\u00f0ask\u00f3la og bl\u00f3mstra\u00f0i \u00ed framhaldssk\u00f3la. \u201eS\u00fa sta\u00f0reynd a\u00f0 \u00ed Kvennask\u00f3lanum var bekkjarkerfi, en ekki fj\u00f6lbrautakerfi, \u00e1tti st\u00f3ran \u00fe\u00e1tt \u00ed a\u00f0 s\u00e1 sk\u00f3li var\u00f0 fyrir valinu og \u00far honum \u00fatskrifa\u00f0ist \u00e9g me\u00f0 bara h\u00f6rkuf\u00ednar einkunnir.\u201c \u00c1 \u00feeim t\u00edma var hann hins vegar a\u00f0eins tv\u00edst\u00edgandi um hva\u00f0a stefnu skyldi taka, en skr\u00e1\u00f0i sig \u00ed vi\u00f0skiptafr\u00e6\u00f0i \u00ed H\u00e1sk\u00f3lanum. \u201e\u00c9g haf\u00f0i svo sem ekki hugmynd um hva\u00f0 \u00e9g vildi gera en skr\u00e1\u00f0i mig \u00ed \u00feetta fyrir r\u00e6lni og eigna\u00f0ist \u00fear \u00e1g\u00e6ta kunningja.\u201c Hann fann sig hins vegar alls ekki \u00ed n\u00e1minu og fannst \u00fea\u00f0 raunar \u201e\u00f3ge\u00f0slega lei\u00f0inlegt\u201c og \u00e1kva\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka s\u00e9r hl\u00e9 fr\u00e1 n\u00e1mi.<\/p>\n<p>\u201eEftir \u00e1 a\u00f0 hyggja hef\u00f0i ma\u00f0ur kannski \u00e1tt a\u00f0 \u00ferauka \u00ed \u00feessu \u00fe\u00f3tt \u00fea\u00f0 v\u00e6ri lei\u00f0inlegt, en \u00fea\u00f0 f\u00f3r \u00f6\u00f0ruv\u00edsi. Eftir einhverja tvo m\u00e1nu\u00f0i bl\u00e9s \u00e9g \u00e1 \u00feetta allt saman og f\u00f3r til Bandar\u00edkjanna.\u201c \u00dear var Gunnar hj\u00e1 skyldf\u00f3lki \u00ed Phoenix \u00ed Arizona \u00ed 10 m\u00e1nu\u00f0i. \u201e\u00deetta var virkilega skemmtilegur t\u00edmi. \u00c9g haf\u00f0i \u00fea\u00f0 n\u00e1\u00f0ugt og hugsa\u00f0i minn gang og kynntist fullt af \u00cdslendingum sem voru \u00fearna \u00ed n\u00e1mi.\u201c<\/p>\n<p><b>Kynntist konunni \u00ed KH\u00cd<\/b><\/p>\n<p>\u00deegar heim kom var svo stefnan tekin \u00e1 kennaran\u00e1m. \u201e\u00c9g lauk n\u00e1mi \u00ed Kennarah\u00e1sk\u00f3lanum og \u00fatskrifa\u00f0ist me\u00f0 B.Ed. gr\u00e1\u00f0u sem kennari.\u201c N\u00e1msvali\u00f0 hafi veri\u00f0 g\u00e6fuspor \u00e1 margan h\u00e1tt \u00fev\u00ed \u00e1 lokaballinu \u00ed sk\u00f3lanum hafi hann j\u00fa kynnst eiginkonu sinni, \u00c1sd\u00edsi Bj\u00f6rk J\u00f3nsd\u00f3ttur.<\/p>\n<p>\u00dear fyrir utan hafi Kennarah\u00e1sk\u00f3la\u00e1rin l\u00edka veri\u00f0 fr\u00e1b\u00e6r t\u00edmi og hann fengi\u00f0 t\u00e6kif\u00e6ri til a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed miklu \u00e6vint\u00fdri utan sk\u00f3lans. \u00deeir br\u00e6\u00f0ur Dagur Sigur\u00f0sson, vinur Gunnars \u00far handboltanum, og L\u00e1rus br\u00f3\u00f0ir Dags festu nefnilega kaup \u00e1 Kofa T\u00f3masar fr\u00e6nda vi\u00f0 Laugaveg sem margir kannast vi\u00f0.<\/p>\n<p>\u201e\u00dearna var \u00e9g allar helgar, ekki a\u00f0 skemmta m\u00e9r, heldur vi\u00f0 st\u00f6rf \u00e1 bj\u00f3rd\u00e6lunni.\u201c Hj\u00e1 \u00feeim br\u00e6\u00f0rum, sem hafa veri\u00f0 um tv\u00edtugt, vann Gunnar svo allt kennaran\u00e1mi\u00f0. \u201e\u00dea\u00f0 eru margir sem minnast \u00feessa t\u00edma me\u00f0 hl\u00fdju, \u00feessara \u00feriggja \u00e1ra e\u00f0a hva\u00f0 \u00fea\u00f0 var sem \u00feeir \u00e1ttu \u00feetta. \u00dearna h\u00e9lt nefnilega meira og minna alltaf til sama f\u00f3lki\u00f0, kannski 60 manna kjarni, f\u00f3lk sem tengdist starfsm\u00f6nnum sta\u00f0arins og eigendum hans. Helst minnti \u00feetta \u00e1 Staupastein,\u201c segir Gunnar og b\u00e6tir vi\u00f0 a\u00f0 enn s\u00e9 stundum bl\u00e1si\u00f0 til \u00a0\u201ekofaveislu\u201c \u00fear sem f\u00f3lk rifjar upp gamla t\u00ed\u00f0. \u201eEn me\u00f0 \u00feessu komst \u00e9g hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 taka n\u00e1msl\u00e1n og slapp vi\u00f0 a\u00f0 vera fullur allar helgar.\u201c<\/p>\n<p><b>Giftu sig fyrir Samskip<\/b><\/p>\n<p>Gunnar segir kennaran\u00e1mi\u00f0 hafa \u00e1tt vel vi\u00f0 og hann fari\u00f0 \u00ed \u00fea\u00f0 fullur \u00e1huga. \u201eOg \u00ed \u00fev\u00ed n\u00e1mi er margt sem hefur n\u00fdst m\u00e9r allar g\u00f6tur s\u00ed\u00f0an, b\u00e6\u00f0i \u00ed vinnu og daglegu l\u00edfi, \u00fe\u00f3tt ekki hafi \u00e1tt fyrir m\u00e9r a\u00f0 liggja a\u00f0 ver\u00f0a kennari.\u201c<\/p>\n<p>Hlutirnir ger\u00f0ust hratt eftir lokaballi\u00f0 \u00fear sem \u00feau n\u00e1\u00f0u saman hann og \u00c1sd\u00eds Bj\u00f6rg, \u00fev\u00ed Gunnari bau\u00f0st starf \u00ed geira sem hann haf\u00f0i ver\u00f0i vi\u00f0lo\u00f0andi allt fr\u00e1 unglingsaldri, \u00ed flutningageiranum. \u201eKarl fa\u00f0ir minn og alnafni var fyrsti starfsma\u00f0ur J\u00f3na \u00ed Hafnarfir\u00f0i, sem \u00fe\u00e1 var \u00ed eigu Byko,\u201c rifjar Gunnar upp. Sumarst\u00f6rf \u00fear hafi \u00fev\u00ed legi\u00f0 beint vi\u00f0 \u00feegar hann h\u00f3f sl\u00edka vinnu 15 \u00e1ra. \u201eOg \u00ed \u00feessu var \u00e9g \u00fat mitt n\u00e1m \u00e1 sumrin og \u00ed fr\u00edum.\u201c<\/p>\n<p>Gunnar \u00e1kva\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u201eb\u00ed\u00f0a a\u00f0eins\u201c me\u00f0 kennsluna og taka starfi sem s\u00f6luma\u00f0ur hj\u00e1 J\u00f3num og s\u00fa bi\u00f0 stendur enn. Samskip keyptu J\u00f3na 2001 og segir Gunnar fyrirt\u00e6ki\u00f0 hafa \u00e1tt nokkurn \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fev\u00ed a\u00f0 hann og \u00c1sd\u00eds drifu \u00ed a\u00f0 l\u00e1ta p\u00fassa sig saman. Hann haf\u00f0i veri\u00f0 be\u00f0inn a\u00f0 taka yfir rekstur skrifstofu fyrirt\u00e6kisins \u00ed Bandar\u00edkjunum, en \u00fe\u00e1 \u00feessum t\u00edma voru \u00feau me\u00f0 tv\u00e6r ungar d\u00e6tur.<\/p>\n<p>\u201e\u00c9g fer \u00fat til Virgina Beach \u00ed \u00e1rsbyrjun 2002 og \u00fe\u00e6r \u00e6tlu\u00f0u a\u00f0 koma um vori\u00f0. Kemur \u00fe\u00e1 ekki \u00ed lj\u00f3s a\u00f0 til a\u00f0 \u00c1sd\u00edsi ver\u00f0i \u00f6rugglega hleypt inn \u00ed landi\u00f0 \u00feyrftum vi\u00f0 a\u00f0 vera gift.\u201c Slegi\u00f0 var upp mikilli giftingarveislu \u00ed I\u00f0n\u00f3 \u00ed mars 2002 \u00feegar hann kom heim um p\u00e1skana. \u201e\u00dea\u00f0 m\u00e1 \u00fev\u00ed segja a\u00f0 Samskip hafi \u00fdtt \u00e1 br\u00fa\u00f0kaupi\u00f0 hj\u00e1 okkur e\u00f0a jafnvel a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum gift okkur fyrir Samskip,\u201c segir Gunnar og hl\u00e6r. \u201eVi\u00f0 erum b\u00fain a\u00f0 vera gift s\u00ed\u00f0an og eigum \u00ferj\u00e1r d\u00e6tur. Ein er uppkomin og farin a\u00f0 heiman, en heima eru hinar tv\u00e6r \u00f6nnur sautj\u00e1n og hin fj\u00f3rt\u00e1n.\u201c<\/p>\n<p><b>Vinir og fj\u00f6lskylda togu\u00f0u<\/b><\/p>\n<p>Yngsta d\u00f3ttir \u00feeirra, Sigr\u00ed\u00f0ur Vala, segir Gunnar a\u00f0 hafi komi\u00f0 \u00ed heiminn \u00feegar \u00feau bjuggu \u00ed Bandar\u00edkjunum. \u00deau hafi ekki enn sagt henni a\u00f0 h\u00fan eigi \u00feess vegna bandar\u00edskt vegabr\u00e9f. \u201eH\u00fan \u00fearf a\u00f0 komast a\u00f0 \u00fev\u00ed sj\u00e1lf. Vi\u00f0 sj\u00e1um \u00fe\u00e1 hvort h\u00fan les \u00feetta,\u201c b\u00e6tir hann vi\u00f0 og hl\u00e6r. \u201e\u00de\u00e1 fer h\u00fan a\u00f0 leita \u00ed sk\u00faffum.\u201c<\/p>\n<p>\u00deau hafi lagt upp me\u00f0 a\u00f0 vera ekki lengur \u00fati en \u00ed \u00ferj\u00fa til fimm \u00e1r og vi\u00f0 \u00fea\u00f0 hafi \u00feau sta\u00f0i\u00f0. \u201e\u00c9g sag\u00f0i vi\u00f0 konuna a\u00f0 t\u00edmi v\u00e6ri kominn til a\u00f0 fara heim \u00feegar \u00e9g var farinn a\u00f0 sko\u00f0a mokkas\u00edur me\u00f0 d\u00faskum. Ef ma\u00f0ur f\u00e6r s\u00e9r svolei\u00f0is \u00fe\u00e1 er ma\u00f0ur a\u00f0 breytast \u00ed Amer\u00edkana og \u00f3v\u00edst a\u00f0 \u00fea\u00f0 ver\u00f0i aftur sn\u00fai\u00f0.\u201c \u00deau hafi \u00fev\u00ed sn\u00fai\u00f0 aftur \u00far \u00feessum v\u00edkingi til Vesturheims \u00ed \u00e1rslok 2006. \u201e\u00deetta var aldrei spurning hj\u00e1 okkur, enda b\u00e6\u00f0i fj\u00f6lskylda og st\u00f3r vinah\u00f3pur sem toga\u00f0i.\u201c<\/p>\n<p>Gunnar segir vinina \u00ed st\u00f3rum dr\u00e1ttum skiptast \u00ed tvo h\u00f3pa. Annars vegar eru \u00fea\u00f0 gamlir vinir \u00far handboltanum og svo vinir tengdir Vei\u00f0if\u00e9laginu Urri\u00f0anum, sem sex f\u00e9lagar hafi stofna\u00f0 \u00e1ri\u00f0 1992. \u00dea\u00f0 s\u00e9 \u00fe\u00e9ttur h\u00f3pur og mikill samgangur, svo sem me\u00f0 afm\u00e6lisfer\u00f0um til \u00fatlanda og \u00f6\u00f0rum vi\u00f0bur\u00f0um. Handboltavinirnir s\u00e9u svo \u00ed grunninn gamlir Frammarar af \u00b472 \u00e1rger\u00f0 sem haldi\u00f0 hafi miklum vinskap alla t\u00ed\u00f0.<\/p>\n<p>Vei\u00f0imennska leikur l\u00edka st\u00f3rt hlutverk \u00ed \u00fev\u00ed sem vinirnir taka upp \u00e1. \u201eVi\u00f0 h\u00f6fum til d\u00e6mis \u00ed m\u00f6rg \u00e1r fari\u00f0 \u00ed M\u00fdvatnssveit a\u00f0 vei\u00f0a urri\u00f0a \u00e1 hverju \u00e1ri og \u00fea\u00f0 hefur undi\u00f0 \u00feannig upp \u00e1 sig a\u00f0 vi\u00f0 erum or\u00f0i\u00f0 me\u00f0 allt holli\u00f0. \u00deetta eru 15 stangir og 30 menn a\u00f0 fara a\u00f0 vei\u00f0a.\u201c<\/p>\n<p><b>Gengur me\u00f0 g\u00f3\u00f0um h\u00f3pi<\/b><\/p>\n<p>Vei\u00f0idellan segir Gunnar a\u00f0 s\u00e9 nokku\u00f0 alvarleg og n\u00e1i yfir allar tegundir vei\u00f0a, hvort sem \u00fea\u00f0 s\u00e9 \u00e1 st\u00f6ng e\u00f0a me\u00f0 byssu. \u201eVei\u00f0idellan t\u00f3k eiginlega vi\u00f0 af \u00ed\u00fer\u00f3ttai\u00f0kuninni, \u00fe\u00f3 svo \u00e9g s\u00e9 enn\u00fe\u00e1 nokku\u00f0 duglegur vi\u00f0 hlaup \u00ed viku hverri.\u201c<\/p>\n<p>\u00dear fyrir utan hefur Gunnar alltaf haft gr\u00ed\u00f0arlegan \u00e1huga \u00e1 \u00fativist. \u201e\u00cd n\u00e1mi m\u00ednu \u00ed Kennarah\u00e1sk\u00f3lanum \u00fe\u00e1 f\u00f3r \u00e9g til d\u00e6mis eina \u00f6nn \u00e1 kaldasta sta\u00f0 \u00ed mi\u00f0ju Noregi og nam fr\u00e6\u00f0i sem nefnast \u00e1 norsku <i>friluftsliv<\/i>, e\u00f0a \u00fativistarfr\u00e6\u00f0i. \u00dea\u00f0 var alveg geggja\u00f0ur t\u00edmi, bara bakpokinn \u00e1 baki\u00f0 og svo af sta\u00f0 \u00fat \u00ed n\u00e1tt\u00faruna.\u201c \u00deessi \u00e1hugi \u00e1 \u00fativist hafi haldist alla t\u00ed\u00f0 og jafnvel heldur f\u00e6rst \u00ed aukana \u00ed seinni t\u00ed\u00f0. \u201eVi\u00f0 erum komin me\u00f0 fastan h\u00f3p sem alltaf gengur saman \u00e1 haustin. \u00de\u00e1 er fari\u00f0 \u00ed g\u00f3\u00f0ar g\u00f6ngur \u00e1 vegum \u00dativistar.\u201c \u00deetta s\u00e9u g\u00f6mlu g\u00f3\u00f0u vinirnir og eiginkonur \u00feeirra komnar me\u00f0. \u201e\u00cd fyrra gengum vi\u00f0 Laugaveginn sem var mj\u00f6g skemmtilegt. Og n\u00fa er b\u00fai\u00f0 a\u00f0 b\u00f3ka aftur svipa\u00f0an t\u00far, 60 k\u00edl\u00f3metra g\u00f6ngu, Sveinstindur-Sk\u00e6lingjar, \u00ed september. \u00dea\u00f0 er gaman \u00feegar svona heppnast og fr\u00e1b\u00e6r lei\u00f0 til a\u00f0 upplifa landi\u00f0 sitt.\u201c<\/p>\n<p>\u00cd gegnum konuna hafi svo l\u00edka komi\u00f0 mikill \u00e1hugi \u00e1 hollustu og matar\u00e6\u00f0i. \u201e\u00deann hei\u00f0ur m\u00e1 h\u00fan \u00c1sd\u00eds eiga. \u00deannig a\u00f0 ma\u00f0ur er alveg akt\u00edvur \u00ed dag,\u201c segir Gunnar gla\u00f0beittur.<\/p>\n<p>\u00a0<img decoding=\"async\" alt=\"IMG_2663vefminni\" class=\"center\" src=\"\/wp-content\/eplicamedia\/large\/IMG_2663vefminni.jpg\" \/><\/p>\n<p><sup><b>Mynd 1:<\/b> Stoltur vei\u00f0ima\u00f0ur me\u00f0 feng sinn. Gunnar, sem er me\u00f0 mikla vei\u00f0idellu, hefur h\u00e9r \u00e1 loft v\u00e6na hrygnu sem hann f\u00e9kk \u00ed Hafral\u00f3ns\u00e1. (Mynd \u00far einkasafni.)<\/sup><\/p>\n<p><sup><img decoding=\"async\" alt=\"IMG_0438vefminni\" src=\"\/wp-content\/eplicamedia\/large\/IMG_0438vefminni.jpg\" \/><br \/><\/sup><\/p>\n<p><sup><b>Mynd 2:<\/b> Fj\u00f6lskyldan saman \u00fati a\u00f0 bor\u00f0a. Gunnar, \u00c1sd\u00eds og d\u00e6tur \u00feeirra \u00ferj\u00e1r. (Mynd \u00far einkasafni.)<\/sup><\/p>\n<p><sup><img decoding=\"async\" alt=\"IMG_2016vefminni\" src=\"\/wp-content\/eplicamedia\/large\/IMG_2016vefminni.jpg\" \/><br \/><\/sup><\/p>\n<p><sup><b>Mynd 3:<\/b> Handboltinn \u00e1tti hug Gunnars allan \u00e1 yngri \u00e1rum og keppti hann lengi \u00ed meistaraflokki. H\u00e9r er hann me\u00f0 \u00d3lafi Stef\u00e1nssyni, g\u00f6mlum f\u00e9laga \u00far boltanum. (Mynd \u00far einkasafni.)<\/sup><\/p>\n<\/p>\n<p><sup><b>Mynd 4:<\/b> Gunnar vei\u00f0ir n\u00e6r allt sem hreyfist, en h\u00e9r hefur hann skellt s\u00e9r \u00e1 rj\u00fapu. (Mynd \u00far einkasafni.)<\/sup><\/p>\n<p><sup><img decoding=\"async\" alt=\"IMG_0270-1-\" src=\"\/wp-content\/eplicamedia\/large\/IMG_0270-1-.jpg\" \/><br \/><\/sup><\/p>\n<p><sup><b>Mynd 5:<\/b> \u00c1sd\u00eds og Gunnar eru g\u00f6ngugarpar og \u00e1hugaf\u00f3lk um hreyfingu og \u00fativist. (Mynd \u00far einkasafni.)<\/sup><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u201eMa\u00f0ur er or\u00f0inn svo gamall a\u00f0 ma\u00f0ur \u00fearf or\u00f0i\u00f0 a\u00f0 hugsa sig um og telja jafnvel \u00e1 fingrum s\u00e9r \u00feegar ma\u00f0ur er spur\u00f0ur a\u00f0 aldri,\u201c segir hann og b\u00e6tir vi\u00f0 [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":14,"featured_media":1249517686,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"footnotes":""},"categories":[32],"tags":[],"class_list":["post-438926871","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-frettir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/438926871","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/users\/14"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=438926871"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/438926871\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=438926871"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=438926871"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/www.samskip.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=438926871"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}