HB Grandi og Norðanfiskur stíga vistvæn skref með Íslenska gámafélaginu og Samskipum

Í dag undirrituðu þessi fyrirtæki yfirlýsingu um endurvinnslu og útflutning frauðplasts.

Verkefnið byggir
á frauðpressuvél sem staðsett er í Kistunni, sorpflokkunarstöð HB Granda á
Akranesi, en félagið rekur sínar eigin sorpflokkunarstöðvar á öllum þremur
starfsstöðum félagsins, í Reykjavík, á Akranesi og Vopnafirði. Pressuvélin
minnkar ummál fiskikassanna um 95% og með því gefst tækifæri til þess að flytja
plastið til endurvinnslu erlendis.

Á
umhverfissýningu í Munchen síðsta vor komst HB Grandi, ásamt Íslenska
gámafélaginu, í kynni við kínverskt fyrirtæki sem hafði áhuga á því
að kaupa allt frauðplast sem til félli í starfsemi
félagsins. Með samstarfi HB Granda, Norðanfisks, Íslenska gámafélagsins og
Samskipa verður fluttur út í dag fyrsti gámurinn með 7 tonnum af pressuðu
frauðplasti, til Malasíu, þar sem efnið verður notað til að framleiða meðal
annars mynda- og speglaramma.

Með þessu verkefni er lagður grunnur að raunhæfri lausn til að endurnýta úrgang
og skapa verðmæti. Markmið allra þriggja fyrirtækjanna er að vera leiðandi í
umhverfismálum.

Þetta er eitt af fjölmörgum verkefnum sem hafa verið í gangi
hjá HB Granda sem snúa að umhverfismálum. Önnur samfélagsskýrsla HB
Granda verður gefin út 29.mars þar sem fjallað er um útflutning á frauðplasti
og fjölmörg önnur umhverfis og samfélagstengd verkefni. Að mörgu er að hyggja í
þessum efnum og mikilvægt að vera vakandi fyrir áhugaverðum tækifærum sem geta
dregið úr kolefnisfótspori fyrirtækja.

Markmið Íslenska
Gámafélagsins er að vera leiðandi á sviði umhverfismála í sorphirðu,
endurvinnslu og endurnýtingu. Félagið býður snjalla hugbúnaðartæknilausn sem
auðveldar fyrirtækjum og stofnunum að umhverfisvæða og rafvæða í rauntíma allar
skráningar sorps og endurvinnslu hráefna.

Samskip hafa markað skýra
stefnu í umhverfismálum, ekki aðeins í samræmi við samfélagslega ábyrga
starfshætti félagsins heldur gengur viðskiptamódel félagsins enn lengra en
kröfur samfélagsins gera.

Samskip og HB Grandi eru félagar í Festu - miðstöð
um samfélagsábyrgð. Jafnframt er Samskip einn af stofnendum Votlendissjóðsins
en einna mikilvægasti þátturinn í umhverfismálum Samskipa eru fjölþátta flutningar.

 12_vef

Frá undirritun samningsins frá vinstri: Birkir Hólm
Guðnason, forstjóri Samskipa, Sigurjón Gísli Jónsson, framkvæmdastjóri
Norðanfisks og Jón Þórir Franzson, forstjóri Íslenska gámafélagsins.