Innflutningur er púlsmælir hagkerfisins

Ottó Sigurðsson sneri aftur til Samskipa síðasta haust þegar hann tók við stöðu framkvæmdastjóra innflutningssviðs. Hann keppti á tímabili sem atvinnumaður í golfi en segir forgjöfina stíga hægt upp á við.

Hvernig er morgunrútínan þín?
Morgunrútínan er nokkuð breytileg, en ég vakna 5.30 tvisvar í viku og fer í þjálfun ásamt einvala liði hjá meistara Gauja í Sporthúsinu. Hina dagana er ég vaknaður um 7 og vek krakkana, oftast skutla ég á morgnana og konan sækir seinnipartinn. Ég á það til að taka með mér kaffi í bílinn og nýt þess að rúlla í  vinnuna með góða tónlist til að koma mér í gírinn fyrir daginn.

Hver eru þín helstu áhugamál?
Mér þykir afar skemmtilegt að fylgjast með krökkunum í sínum íþróttum, en við reynum að mæta á alla viðburði því tengda og má kalla það eitt helsta áhugamál mitt.

Ég var atvinnumaður í golfi og því verður það alltaf hluti af mínum áhugamálum þó svo ég spili nú ekki mikið og forgjöfin stígi hægt upp á við. Veiðin hefur algjörlega heillað mig síðustu 4-5 sumur og ég reyni að veiða mikið yfir sumartímann. Ég nýt tímans á bakkanum þar sem maður nær að slaka á og hlaða batteríin. Konan kom með mér í fyrsta sinn í veiðitúr á síðasta ári og er markmiðið að reyna að gera þetta að fjölskylduáhugamáli.

Hver er bókin sem ert að lesa eða last síðast?
Síðasta bók sem ég las heitir„5 Dysfunctions of a Team“. Mér fannst hún afar skemmtileg og þægileg bók sem vekur mann til umhugsunar um teymi og teymisvinnu. Þessa dagana er ég að lesa „Shoe Dog“, bók sem fjallar um Phil Knight, stofnanda Nike, en hún lofar einnig góðu.

Ef þú þyrftir velja allt annan starfsframa, hvað yrði fyrir valinu?
Ég reyndi fyrir mér sem atvinnumaður í golfi á sínum tíma, en það var alltaf æskudraumurinn. Það er hins vegar afar harður heimur og ekki fyrir alla. Ætli ég myndi ekki velja eitthvað tengt kennslu í íþróttum.

Hvað er það áhugaverðasta við það að starfa í atvinnugreininni?
Það er án efa fólkið og fyrirtækin sem ég fæ að kynnast í gegnum starf mitt hjá Samskipum sem alþjóðlegu fyrirtæki. Við flytjum jú allt milli himins og jarðar bæði til landsins og frá. Ég hef því haft tækifæri til að kynnast gríðarlega mörgu fólki í mismunandi atvinnugreinum og starfsemi ýmissa fyrirtækja.

Það sem er einnig mjög áhugavert er að við erum eins konar púlsmælir á efnahagsástandið hverju sinni, því það er ákveðin fylgni milli hagvaxtar og innflutnings. Þegar það hægir á efnahagnum hérlendis þá erum við oftar en ekki með fyrstu aðilum til að finna fyrir því.

Hverjar eru helstu áskoranirnar í starfinu?
Helstu áskoranir mínar tengjast því að nýta flutningsnet okkar sem allra best og finna hagkvæmar lausnir fyrir viðskiptavini okkar. Það má einnig segja að mikil samkeppni á markaðnum er stöðug áskorun. Annars leggjum við okkur fram við að hugsa í lausnum og að koma auga á tækifærin sem felast í öllum áskorunum.

Hverjar eru helstu áskoranirnar í rekstrarumhverfinu í dag?
Við finnum vel fyrir ákveðnu óvissuástandi í þjóðfélaginu sem tengist kjaraviðræðum undanfarinna vikna. Við sjáum samdrátt í ákveðnum atvinnugreinum þegar kemur að innflutningi til landsins. Það skilar sér í áskorunum hvað varðar nýtingu á þeim miklu fjárfestingum félagsins sem eru m.a. bundnar í skipum okkar og tækjum.

​Hvaða breytingar sérðu fyrir þér í atvinnugreininni á komandi árum og í hverju felast helstu sóknartækifærin?
Að mínu mati munu gámaflutningar í sjálfu sér ekki breytast mikið næstu árin. Stærstu breytingarnar gætu snúið að kröfum neytenda um minna kolefnisfótspor en þar standa gámaflutningar vel og Samskip enn betur en samkeppnin með sitt viðskiptamódel og kolefnisreiknivélar. Smásendingar munu aukast með aukinni netverslun einstaklinga og munum við fylgjast vel með þeirri þróun áfram. Sóknartækifæri hjá okkur munu m. a. felast í enn frekari nýtingu á gríðarlega stóru flutningsneti okkar innan Evrópu. Einnig má segja að stafræn þróun innan geirans sé á fullri ferð og þar erum við hjá Samskipum að stíga stór skref næstu árin til að geta fullnýtt krafta  félagsins til hagræðingar fyrir okkur og viðskiptavini.  

Hvar sérðu þig eftir tíu ár? 
Ég sé mig áfram í starfi sem  ég hef brennandi áhuga á og veitir mér ánægju á hverjum degi. Ef guð og lukkan lofa þá munu fjölskylda og vinir vera ánægðir og heilsuhraustir. Ég verð aftur kominn með 0 í forgjöf og verð búinn  að veiða eins og einn eða tvo tuttugupundara. 

Svipmynd
Ottó Sigurðsson​

Nám:
Stúdentspróf frá FjölbrautaskólaGarðabæjarB.Sc. Business administration, Universityof Louisiana at Lafayette.

Störf:

Forstöðumaður fyrirtækjasöluVodafone 2011-2013Forstöðumaður innflutningsdeildarSamskipa 2013-2017Forstöðumaður fyrirtækjaþjónustuVÍS 2017-2018Framkvæmdastjóri innflutningssviðsSamskipa 2018-

Fjölskylduhagir:
Giftur Karen Lilju Sigurbergsdóttur.Eigum þrjú börn, Breka 11 ára, Anítu8 ára og Ómar eins og hálfs árs.

Birtist í Markaðinum 6. febrúar 2019.