Komur skipa í vikunni

Eftir óveður síðustu daga eru komnar uppfærðar komudagsetningar á skipunum.

Vinna hefst við skipin eins fljótt og aðstæður leyfa og lögð verður áhersla á að afhending á heilgámum (FCL) verði möguleg á fimmtudag.

 Skip (ferðanúmer)  Áætluð koma til Reykjavíkur*
Hoffell (ferð 1548 HOF) Aðfaranótt þriðjudags 15. desember
Helgafell (ferð 1549 HEG)  Miðvikudaginn 16. desember
Skaftafell (ferð 1549 SKF) Miðvikudaginn 16. desember

*Áætlaður komutími miðað við núverandi veðurspár.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda. 

Uppfært 14. desember kl. 13.29