
Vörumóttaka Samskipa lokar kl. 14:00 á morgun föstudaginn 13. nóvember.
12 nóvember 2026
Viðskiptavinum er bent á að vörumóttaka í vöruhúsi Samskipa, húsi B og Ísheimum lokar klukkutíma fyrr eða kl. 14:00 á morgun föstudaginn 13. nóvember vegna minningarathafnar starfsmanns okkar.
Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar breytingar kunna að valda viðskiptavinum og þökkum fyrir sýndan skilning.





