Samstarfsverkefni Samskipa

Samskip taka virkan þátt í fjölbreyttum samstarfsverkefnum sem skapa jákvæð áhrif fyrir samfélagið, umhverfið og atvinnulífið. Samstarfið felur meðal annars í sér stuðning við félagasamtök og verkefni sem vinna að mikilvægum samfélagslegum málefnum, auk samstarfs við nýsköpunar- og tæknifyrirtæki á ýmsum sviðum.

Verkefni með nýsköpunarfyrirtækjum snúa gjarnan að þróun lausna á sviði sjálfbærni, orkuskipta og umhverfismála, auk tækninýjunga sem geta aukið öryggi og skilvirkni í starfseminni. Með markvissu samstarfi viljum við styðja við góðar hugmyndir, efla nýsköpun og leggja okkar af mörkum til sjálfbærari framtíðar.

Sidewind

Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Sidewind þróar vindtúrbínur sem nýta þann hliðarvind sem myndast við siglingu skipa til raforkuframleiðslu. Markmið fyrirtækisins er að umbreyta orku sem annars færi ónotuð til spillis í hreina raforku um borð.

Lausnin byggir á endurnýtingu 40 feta gáma sem ekki eru lengur hæfir til hefðbundinna vöruflutninga. Hliðar gámanna eru fjarlægðar og láréttri vindtúrbínu komið fyrir inni í þeim ásamt rafal. Gámarnir eru síðan staðsettir um borð í skipi þar sem hliðarvindurinn knýr túrbínurnar og framleiðir rafmagn. Raforkuna væri meðal annars hægt að nýta til að knýja kæli- og frystigáma um borð og draga þannig úr orkunotkun skipsins.

Samskip hafa tekið þátt í þróunarverkefninu með SideWind og lagt til þekkingu og reynslu úr skiparekstri og vöruflutningum. Samstarfið felur meðal annars í sér prófanir á tækninni og mat á því hvernig hún geti nýst við raunverulegar aðstæður á hafi úti.

Verkefnið fellur vel að umhverfis- og sjálfbærnimarkmiðum Samskipa, enda gæti tæknin dregið úr notkun jarðefnaeldsneytis og þar með minnkað losun frá flutningaskipum. Að mati SideWind gæti lausnin framleitt sem nemur 5–10% af orkuþörf skipa. Verkefnið er gott dæmi um hvernig samstarf rótgróins flutningafyrirtækis og íslensks nýsköpunarfyrirtækis getur stuðlað að þróun nýrra lausna fyrir sjálfbærari sjóflutninga.

SideWind gámarnir koma með Helgafelli til landsins og þar með hefst næsti áfangi þessa spennandi nýsköpunarverkefnis. Sjá drónamyndband frá komu gámanna.

HSÍ · Handknattleikssamband Íslands

Samskip eru einn af aðalstyrktaraðilum íslensku handboltalandsliðanna og hafa gegnt því hlutverki frá árinu 1998. Í tæplega þrjá áratugi hafa landslið karla og kvenna, sem og yngri landslið HSÍ, notið stuðnings okkar við undirbúning, mót og keppni, bæði hér heima og á erlendri grundu.

Stuðningur við íslenskt íþróttastarf er okkur hjartans mál. Handboltinn skipar sérstakan sess í íslensku samfélagi og hefur um árabil sameinað þjóðina á stórmótum og mikilvægustu augnablikum íþróttasögunnar. Það er okkur stolt og heiður að fá að standa að baki liðunum og leggja okkar af mörkum til að skapa þeim sem bestar aðstæður til árangurs.

Við hlökkum til að halda áfram að styðja við íslenskan handbolta og vera hluti af vegferð landsliðanna um ókomin ár.

Andrésar andar leikarnir

Samskip hafa um árabil verið stoltur styrktaraðili Andrésar Andar leikanna á Akureyri. Leikarnir eiga sér langa og farsæla sögu og þar hafa fjölmargir efnilegir skíðamenn „runnið sína fyrstu metra“ á skíðaferlinum.

Andrésar Andar leikarnir eru eitt stærsta íþróttamót landsins fyrir yngri iðkendur í skíðaíþróttum. Á hverju ári koma þar saman börn og fjölskyldur víðs vegar að af landinu til að keppa, efla færni sína og njóta samverunnar. Áhersla er lögð á gleði, hreyfingu, heilbrigðan keppnisanda og jákvæða upplifun þátttakenda.

Með stuðningi við leikana vilja Samskip leggja sitt af mörkum til öflugs barna- og unglingastarfs og stuðla að því að ungir iðkendur fái tækifæri til að þroskast og skapa góðar minningar í gegnum íþróttir. Leikarnir eru jafnframt mikilvægur viðburður fyrir skíðasamfélagið og skipa stóran sess í íþróttalífi Akureyrar.

Pollamót Samskipa á Akureyri

Samskip eru einn af aðalstyrktaraðilum Pollamótsins sem haldið er á Akureyri í júlí ár hvert. Mótið er sannkölluð knattspyrnuhátíð þar sem áhugamannalið og vinahópar víðs vegar að af landinu koma saman til að keppa, hittast og njóta lífsins innan vallar sem utan.

Árlega tekur fjöldi leikmanna á besta aldri þátt og einkennist mótið af gleði, góðum keppnisanda og sterkri liðsheild. Þótt keppnin skipti vissulega máli er samveran ekki síður mikilvæg og hafa ófáar minningar og vináttubönd orðið til í tengslum við mótið.

Pollamót Samskipa hefur verið haldið um árabil og skipað sér fastan sess í sumardagskrá margra liða sem mæta aftur til leiks ár eftir ár. Með stuðningi sínum vilja Samskip leggja sitt af mörkum til öflugs íþrótta- og félagsstarfs og styðja við viðburð sem sameinar hreyfingu, vináttu og skemmtun.

Hringvarmi

Hringvarmi er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem vinnur að þróun lausna tengdum hringrásarhagkerfinu og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Fyrirtækið hefur vakið athygli fyrir framsýna hugsun og áhugaverða nálgun á því hvernig hægt er að nýta orku og innviði með nýjum hætti.

Í stuttu máli nýtir Hringvarmi umfram- eða afgangshita frá gagnaverum og beinir honum inn í sérhannaða gáma frá Samskipum fyrir matvælaframleiðslu. Nýttir eru gamlir gámar sem eru lagfærðir og innréttaðir í hólf og gólf og gerðir að nokkurskonar „gróðurhúsi“.

Styrkir til samfélagsins

Samskip huga að mörgum þáttum sem tengjast samfélagslegri ábyrgð, s.s. umhverfismálum, vinnuvernd og öryggismálum, orkumálum, mannauðsmálum auk sjálfbærni og hafa markað sér stefnu í þeim málaflokkum og fylgja henni fast eftir þannig að fléttist saman við starfshætti félagsins.

Samskip leggja margvíslegum málefnum lið á ári hverju, bæði góðgerðarmálum, menningarmálum og styrkja íþróttastarf á landinu öllu. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að styrkja fjölbreytta starfsemi er tengist landsbyggðinni. Við erum auk þess þátttakandi í ýmsum félagasamtökum er tengjast atvinnugreininni og leggja sitt af mörkum til að auka veg og virðingu hennar.

Fyrir óskir um auglýsingar eða styrki, vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið styrkir@samskip.com

Meðal verkefna okkar

  • Samskip styrkja fjölmörg íþróttafélög í ýmsum greinum um land allt árlega

  • Við leggjum fjölmörgum góðgerðarfélögum og lista- og menningarviðburðum af ýmsu tagi lið á hverju ári

  • Samskip hafa um árabil styrkt Andrésar Andar leikana á en þar hafa margir efnilegir skíðamenn „runnið sinn fyrsta metra“

  • Samskip eru einn af aðalstyrktaraðilum Hestamannafélagsins Spretts og styrkja Landsmót hestamanna reglulega

  • Pollamót Samskipa er haldið ár hvert á Akureyri þar sem leikmenn á bestra aldri keppa sín á milli

  • Samskip styrkja meðal annars Sidewind og Hringvarma nýsköpunarfyrirtæki