Heildarþjónusta á flutningi til og frá Íslandi
Samskip bjóða margþætta þjónustu til viðskiptavina sem spannar allt frá forflutningi erlendis, sjóflutning, hýsingu, skjalagerð og heimaksturs þegar til Íslands er komið.
Starfsfólk innflutnings veitir ráðgjöf varðandi alla þætti flutninga til landsins og sérhæfir sig í tilboðs- og samningagerð. Viðskiptavinir okkar hafa jafnframt aðgang að þjónustuvef Samskipa allan sólarhringinn. Samskip


Alhliða þjónusta vegna búslóðaflutninga
Hvort sem um er að ræða búslóðaflutningaflutninga til eða frá Íslandi eða innanlands sjá Samskip um flutning frá dyrum sendanda að dyrum móttakanda hvar sem er í heiminum. Samskip leggja áherslu á að veita góða alhliða þjónustu í búslóðaflutningum en margt þarf að hafa í huga þegar flytja á búslóð til landsins.
Við sjáum meðal annars um:
Fiskútflutningur
Starfsfólk Samskipa leggur áherslu á að þekkja sína viðskiptavini og þeirra þarfir.
Við höfum áralanga reynslu af þjónustu og samstarfi við útgerðir og fiskútflutningsaðila og starfsfólk okkar býr yfir sérþekkingu á útflutningi á sjárvarútvegsafurðum við að koma ferskum fiski á markaði erlendis, hvort sem það eru ferskar afurðir, frosnar afurðir, saltaðar, eða skreið.


Matvælainnflutningur og þurrvörur
Einn stærsti flokkur vara sem flutt eru til landsins eru matvæli og þurrvara. Öflugt flutningsnet okkar um alla Evrópu tryggir greiðar leiðir til og frá Íslandi. Við þjónustum fjölmargar heilsölur og innflutningsaðila hérlendis. Við bjóðum að auki upp á vöruhýsingarþjónustu fyrir þá aðila sem þess óska og samamtekt og/eða akstur á vörum um allt land með innanlandssviði Samskipa.
Við erum með heildarlausnir fyrir innflytjendur eftir þörfum hvers og eins!
Bílainnflutningur
Samskip hafa flutt inn bíla til margra ára, bæði fyrir bílaumboð sem og fyrir einstaklinga. Við höfum víðtæka reynslu og sérþekkingu í höfnum okkar í Evrópu og á Íslandi sem tryggir öruggan flutning og afhendingu. Þá hefur Samskip á Íslandi stórt bílaport á hafnarbakkanum í Kjalarvogi fyrir bílaumboð fyrir innflutta bíla.
Starfsfólk Samskipa leggur áherslu á að þekkja sína viðskiptavini og þeirra þarfir.

Sérfræðiþekking
Sérþekking og áralöng reynsla í flutningum þvert á atvinnugreinar, sem gerir Samskip að traustum samstarfsaðila.
Öflugt flutningsnet
Samþætt flutningsnet innanlands og erlendis sem tryggir skilvirkar lausnir frá upphafi til enda.
Áreiðanleiki
Við tryggjum að vörur viðskiptavina berist á öruggan, skilvirkan og áreiðanlegan hátt – á réttum tíma.
Persónuleg þjónusta
Við leggjum áherslu á náið samstarf og persónulega þjónustu sem er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar.

Af hverju að velja Samskip?
Við flytjum ekki eingöngu sendingar um vegi og sjó, heldur einnig um skipaskurði og eftir lestarteinum. Með því að nýta ólíka flutningsmáta á sem hagkvæmastan hátt tryggjum við viðskiptavinum okkar sveigjanlegar og áreiðanlegar lausnir sem þæta þörfum þeirra hvar sem er. Fjölþátta flutningslausnir eru snjallari leið til að líta á vöruflutninga og ástæðan er augljós. Þegar markmiðið er að standa ávallt við loforð um hagkvæmni, áreiðanleika og góða þjónustu er mikilvægt að hafa fleiri en valkost í flutningum. Á sama tíma eru fjölþátta flutningslausnir mun umhverfisvænni og hjálpa okkur og viðskiptavinum að draga úr kolefnisfótspori.
Við erum Samskip og hver ferð skiptir máli!








