Leiðandi í sérsniðnum flutningslausnum
Við bjóðum fjölþættar og sérsniðnar flutningslausnir sem tengja Ísland við umfangsmikið flutningsnet í Evrópu og víðar. Með blöndu af staðbundinni sérfræðiþekkingu og alþjóðlegu tengslaneti þjónustum við fjölbreyttar atvinnugreinar og ólíkar flutningsþarfir, allt frá hráefnum og iðnaðarvörum til ferskra, kældra og verðmætra sendinga.
Þjónusta okkar er hönnuð til að mæta kröfum ólíkra viðskiptavina, vara og markaða. Við flytjum vörur til og frá Íslandi í 20 og 40 feta þurr-, kæli- og frystigámum, með áframflutningum innanlands um allt land. Í Evrópu byggir þjónusta Samskipa á öflugu neti sem nær frá upphafi til enda, þar sem nýttir eru 45 feta gámar, sérhæfður gámahleðslubúnaður og samþættar flutningsleiðir á vegum, járnbrautum, sjó og vatnaleiðum.
Að auki bjóðum við vörugeymslur og sérhæfð tæki til að tryggja að farmur viðskiptavina sé varinn, rekjanlegur og öruggur alla leið, frá upphafi til enda.
Af hverju að flytja með Samskipum?
Sérfræðiþekking
Sérþekking og áralöng reynsla í flutningum þvert á atvinnugreinar, sem gerir Samskip að traustum samstarfsaðila.
Öflugt flutningsnet
Samþætt flutningsnet innanlands og erlendis sem tryggir skilvirkar lausnir frá upphafi til enda.
Áreiðanleiki
Við tryggjum að vörur viðskiptavina berist á öruggan, skilvirkan og áreiðanlegan hátt – á réttum tíma.
Persónuleg þjónusta
Við leggjum áherslu á náið samstarf og persónulega þjónustu sem er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar.
Matvara og þurrvara
Hvort sem viðskiptavinur starfrækir fyrirtæki í heildsölu eða smásölu bjóða Samskip heildarlausnir sem styðja við allan flutnings- og dreifingarferilinn. Við flytjum inn og út þurrvörur, kælivörur og frystivörur og getum séð um allt í einum samfelldum pakka, allt frá því vara er sótt til birgja þar til hún berst á lager eða í verslanir.
Matvæli og þurrvara eru meðal stærstu vöruflokka sem fluttir eru til landsins. Með öflugu flutningsneti Samskipa um alla Evrópu tryggjum við skilvirkar og áreiðanlegar leiðir til og frá Íslandi, óháð magni eða afhendingarkröfum.
Að auki bjóðum við þjónustu við vöruhýsingu, frísvæði og dreifingu um allt land í gegnum innanlandsnet Samskipa. Viðskiptavinir geta haft lager sinn hjá okkur, pantað af honum eftir þörfum og látið okkur sjá um vörutínslu, samantekt og dreifingu í margar verslanir, allt byggt á rafrænum pöntunum og skilvirkum ferlum.
Fáðu tilboð í heildarlausn flutninga, vöruhýsingu og dreifingu hjá Samskipum.


Sjávarútvegur – sérþekking frá hafi til markaða
Samskip búa yfir áralangri reynslu og sérþekkingu á flutningum fyrir sjávarútveg. Við vinnum í nánu samstarfi við útgerðir og fiskútflutningsaðila og skiljum mikilvægi þess að ferskar og verðmætar afurðir skili sér hratt, örugglega og í réttum gæðum á erlenda markaði. Við flytjum fjölbreyttar sjávarútvegsafurðir, þar á meðal ferskan fisk, frosnar og saltaðar afurðir, sem og skreið.
Við erum stolt af fullkomlega samþættu evrópsku frystikerfi okkar sem er sérstaklega hannað fyrir hnökralausa flutninga á hitastýrðum farmi. Kerfið tryggir samfellu í kæli- og frystikeðju frá uppruna til áfangastaðar og styður við kröfur sjávarútvegsins um nákvæmni, rekjanleika og áreiðanleika.
Með sérstakri stjórn á allri frystikeðjunni tryggjum við að viðkvæmar vörur séu meðhöndlaðar af varkárni á öllum stigum flutningsins. Þá geta útgerðir landað frosnum afurðum beint í Ísheima í Kjalarvogi til geymslu eða afgreiðslu, sem einfaldar ferlið og styður við skilvirka áframhaldandi dreifingu.
Stóriðja og iðnaður – sérhæfðar lausnir fyrir flókna flutninga
Samskip búa yfir áralangri reynslu í þjónustu við stóriðju og iðnað á Íslandi og hafa sérhæft sig í flutningum sem gera ríkar kröfur um skipulag, nákvæmni og áreiðanleika. Við skiljum umfang og flækjustig iðnaðarflutninga og vinnum náið með viðskiptavinum að lausnum sem styðja við stöðugan rekstur og skilvirkar aðfangakeðjur.
Teymi okkar samanstendur af sérfræðingum í iðnaði og búnaði, með sérstaka tengiliði fyrir hverja atvinnugrein og landsvæði sem við þjónum. Með öflugum staðbundnum stuðningi tryggjum við skýr samskipti, virka eftirfylgni og skjót viðbrögð á öllum stigum flutningsferlisins.
Við önnumst flutning á fjölbreyttum hráefnum og iðnaðarvörum, þar á meðal olíu, plasti, áli, stáli og timbri. Með fjölþættu flutningsneti og sérhæfðri þekkingu tryggjum við öruggan og skilvirkan flutning, óháð magni, þyngd eða flutningsleið.


Byggingariðnaður – flutningslausnir sem halda framkvæmdum á áætlun
Við erum sérfræðingar í flutningum fyrir byggingariðnað og finnum bestu lausnina hvort sem verkefnið snýr að uppbyggingu, breytingum eða endurbótum. Við flytjum fjölbreytt byggingarefni og einingar, þar á meðal stálgrindahús, járn, glugga, hurðir, gólfefni, innréttingar og húseiningar.
Við höfum víðtæka reynslu af þjónustu við byggingarfyrirtæki, bæði stór og smá, og bjóðum öflugar tengingar og flutningslausnir frá helstu framleiðslusvæðum í Eystrasaltslöndunum og Mið-Evrópu til Íslands. Með skilvirkri áætlanagerð tryggjum við að efni og einingar berist á réttum tíma og styðji við framgang framkvæmda.
Þegar um er að ræða stærri einingar eða vörur sem ekki henta hefðbundnum gámaflutningum bjóðum við heilfarmsflutninga og sérlausnir, sniðnar að þörfum hvers verkefnis. Að auki önnumst við innanlandsakstur og afhendum vörur beint á byggingarsvæði viðskiptavina, sé þess óskað.
Bílainnflutningur –
örugg og skilvirk þjónusta
örugg og skilvirk þjónusta
Bílaumboð
Samskip hafa um áratugaskeið flutt inn bíla fyrir bílaumboð á Íslandi og byggt upp sterka sérþekkingu á öllum þáttum bílainnflutnings. Með víðtækri reynslu í höfnum Samskipa í Evrópu og á Íslandi tryggjum við öruggan flutning, skilvirka afgreiðslu og áreiðanlega afhendingu nýrra bíla. Við leggjum mikla áherslu á góða þjónustu og náið samstarf við bílaumboð og þekkjum vel þarfir þeirra og kröfur.
Samskip reka stórt bílaport í Kjalarvogi við hafnarbakkann sem rúmar yfir 1.000 innflutta bíla, sem einfaldar móttöku, geymslu og áframhaldandi afhendingu til umboða.
Einstaklingar
Samskip aðstoða einstaklinga við að flytja inn bíla með öruggum og sveigjanlegum lausnum. Við getum séð um flutninginn frá A–Ö, sótt bílinn erlendis, komið honum um borð og keyrt hann heim að dyrum viðskiptavina. Einnig er mögulegt að viðskiptavinir sjái sjálfir um að koma bílnum til hafnar erlendis, eftir því sem hentar best. Sama gildir um útflutning bíla og tækja.
Frá bílaporti Samskipa í Kjalarvogi bjóðum við þjónustu við útflutning ökutækja úr landi, hvort sem um er að ræða einkabíla eða tæki.


Endurvinnsla og sorp – flutningar sem styðja hringrásarhagkerfið
Við búum yfir mikilli reynslu í þjónustu við fyrirtæki í sorpvinnslu og endurvinnslu á Íslandi og höfum sérhæft okkur í flutningum sem gera kröfur um skipulag, rekjanleika og áreiðanleika. Við vinnum náið með endurvinnslufyrirtækjum að skilvirkum lausnum fyrir flutning á hráefni til endurvinnslu og orkunýtingar erlendis.
Flokkað sorp er flutt í gámum til viðurkenndra endurvinnslu- og orkuvinnslustöðva erlendis, þar sem lögð er áhersla á örugga meðhöndlun og ábyrg ferli. Með öflugu flutningsneti okkar tryggjum við stöðugar og hagkvæmar flutningsleiðir frá Íslandi til helstu endurvinnslumarkaða.
Siglingaleiðir okkar til Skandinavíu henta sérstaklega vel fyrir flutning á hráefni til endurvinnslu, enda eru margar helstu endurvinnslustöðvar Evrópu staðsettar þar. Með reglubundnum siglingum og sérhæfðri þjónustu styðjum við við sjálfbæra lausn í úrgangsmálum.
Efnavara og hættuleg efni – flutningar með öryggi að leiðarljósi
Flutningar á efna- og hrávöru, sem og hættulegum efnum og vökvum, gera ríkar kröfur um varkárni, sérþekkingu og strangt regluverk. Samskip búa yfir áratuga reynslu í slíkum flutningum og bjóða sérsniðnar lausnir sem tryggja öruggan flutning verðmætra vara í samræmi við alla viðeigandi öryggisstaðla.
Sérþekking okkar nær til flutninga á bæði hættulegum og óhættulegum vökvum, eldfimum efnum og sérleyfisskyldum varningi (ADR). Við vinnum samkvæmt gildandi alþjóðlegum reglugerðum, þar á meðal IMO-kröfum, og tryggjum að flutningar séu skipulagðir og framkvæmdir með fyllstu nákvæmni.
Til að tryggja rétta meðhöndlun er mikilvægt að IMO-flokkur efnisins fylgi við bókun flutnings. Þjónustufulltrúar og viðskiptastjórar Samskipa veita faglega ráðgjöf og aðstoða við undirbúning flutninga, svo ferlið verði öruggt, skilvirkt og hnökralaust frá upphafi til enda.

Kæliflutningar Samskipa erlendis
Sjálfbærari flutningslausnir
Lágmarks losun CO₂ við flutninga
Aukning grænna flutningskosta
Minnkun kolefnisfótspors
Á sama tíma og við viðhöldum sveigjanleika, áreiðanleika og afhendingaröryggi.
Þjónusta við viðskiptavini okkar
Við vinnum með viðskiptavinum að sjálfbærari flutningslausnum án þess að fórna bestu flutningsleiðum.
Sjálfbærari flutningslausnir
Lágmarks losun CO₂ við flutninga
Aukning grænna flutningskosta
Minnkun kolefnisfótspors
Á sama tíma og við viðhöldum sveigjanleika, áreiðanleika og afhendingaröryggi.
Þjónusta við viðskiptavini okkar
Við vinnum með viðskiptavinum að sjálfbærari flutningslausnum án þess að fórna bestu flutningsleiðum.









