Uppskipun

Samskip geta séð um afgreiðslu afla og uppskipun fyrir báta og togara í höfnum.

Okkar sérgrein og lausnir
Með frystigeymslunum Ísheimum geta Samskip veitt heildarþjónustu í uppskipun og geymslu á afla og afurðum fyrir útgerðir og innflutningsaðila.

Góð þjónusta og afgreiðsla er okkar fag og viðskiptavinir geta nálgast vörur sínar eftir þörfum eða fengið sendar með flutningsþjónustu Samskipa.

Fáðu nánari upplýsingar um lausnir og þjónustu varðandi uppskipun og vöruhýsingar í kæli- og frystigeymslum okkar hjá Elmari P. Lárussyni.

Alhliða þjónusta

Heildarlausnir og afgreiðsla á einum stað, bæði löndun og kæligeymslur

Hröð afgreiðsla

Til að mæta mismunandi þörfum viðskiptavina eins og hentar hverjum og einum

Reynsla

Áralöng reynsla og skilningur á þörfum viðskiptavina okkar í sjávarútveginum

Sérhæfing

Tæknivæddar geymslur og sérhæfð þjónusta fyrir sjávarútveg

Ahliða þjónusta

heildarlausnir og afgreiðsla á einum stað, bæði löndun og kæligeymsl.

Hröð afgreiðsla

til að mæta mismunandi þörfum viðskiptavina eins og hentar hverjum og einum.

Reynsla

áralöng reynsla og skilningur á þörfum viðskiptavina okkar í sjávarútveginum.

Sérhæfing

tæknivæddar geymslur og sérhæfð þjónusta fyrir sjávarútveg.

Togaralöndun

Samskip geta afgreitt útgerðir með togaralöndun á hafnarsvæðinu í Kjalarvogi og landað afla beint inn í frystigeymslur Ísheima af hafnarbakkanum á Vogarbakka.

Hægt er að geyma frystivörur í Ísheimum og taka út eftir þörfum og/eða láta sækja þangað allar vörur eftir að búið er að landa.

Samskip Agency
Móttaka skemmtiferðaskipa

Samskip veita alhliða hafnarþjónustau á Íslandi fyrir skemmtiferðaskip. Auk gáma-, hefðbundinna vöruflutninga og verkefnaflutninga, veita Samskip sveigjanlega og áreiðanlega hafnarumboðsþjónustu á Íslandi og starfa nú fyrir nokkur helstu skemmtiferðaskipa fyrirtækin sem sigla til Íslands.

Reyndir starfsmenn okkar hafa traustan skilning á þörfum skemmtiferðaskipa viðskiptavina okkar og vinna náið með íslenskum yfirvöldum, höfnum og söluaðilum í ferðageiranum.

Bílaport Samskipa

Bílaport Samskipa er staðsett í bakhúsi hafnarsvæðisins að Holtavegi 8 merkt J á kortinu (Hús H á korti hér til hliðar). Aðkoma í portið er frá Vatnagörðum þar sem ekið er niður meðfram verslunarkjarnanum (Miklagarði) og þar inn á svæðið bakatil.

Bílaportið er afgreiðslustaður bíla, bifhjóla og farartækja sem er verið að annaðhvort sækja eða skila fyrir flutning.

Afgreiðslutímar:
Afgreiðslutími er frá 08:00-16:00 mánudaga til fimmtudaga og til 15:00 á föstudögum.