Um Samskip

Samskip hf.

Samskip eru alþjóðlegt flutningafyrirtæki sem bjóða flutningslausnir og tengda þjónustu á landi, sjó og í lofti með hagkvæmni og sjálfbærni að leiðarljósi.

Frá stofnun fyrirtækisins á Íslandi árið 1990 og til dagsins í dag, með höfuðstöðvar í Rotterdam í Hollandi, hafa Samskip vaxið jafnt og þétt, bæði með innri vexti og markvissum yfirtökum, og eru í dag eitt af leiðandi flutningafyrirtækjum Evrópu. Net Samskipa nær nú til yfir 30 landa í Evrópu, Ameríku, Afríku, Asíu og Ástralíu, og er stutt af um 1.500 metnaðarfullum sérfræðingum víðs vegar um heiminn.

Sérþekking okkar nær yfir fjölbreytta flutninga- og flutningsþjónustu, allt frá fjölþátta flutningum innan Evrópu og samþættum lausnum á Norður-Atlantshafi til hitastýrðra alþjóðlegra flutninga og flókinna lausna fyrir lausafarm, þungafarm og verkefnaflutninga. Hvaða flutningsáskorun sem fyrirtæki standa frammi fyrir, skila Samskip snjöllum, sjálfbærum og áreiðanlegum lausnum.

Sagan okkar

Samskip eru leiðandi evrópskt flutningafyrirtæki með ríka sögu sem spannar nokkra áratugi. Fyrirtækið var stofnað árið 1990 við sameiningu tveggja íslenskra skipafélaga. Frá þeim tíma hafa Samskip vaxið jafnt og þétt, bæði með innri vexti og markvissum yfirtökum.

Í dag eru Samskip viðurkenndur og traustur samstarfsaðili fyrirtækja sem leita eftir áreiðanlegum og skilvirkum flutningslausnum víðs vegar um Evrópu. Með sterka áherslu á nýsköpun, sjálfbærni og ánægju viðskiptavina eru Samskip áfram í fararbroddi flutningaiðnaðarins og leiðandi í að mæta síbreytilegum þörfum alþjóðaviðskipta á 21. öldinni og til framtíðar.

Kraftmikill vinnustaður með fólk í forgrunni

Samskip eru kraftmikill og lifandi vinnustaður þar sem fjölbreyttur hópur fólks starfar saman að sameiginlegum markmiðum. Hjá Samskipum á Íslandi telur starfsfólkið tæplega 500 í ólíkum störfum víðs vegar um landið, sem endurspeglar breidd starfsemi fyrirtækisins og þau tækifæri sem þar eru í boði.

Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti, gagnkvæma virðingu og sterka liðsheild. Hjá okkur skiptir máli að hver og einn finni fyrir trausti og stuðningi í starfi, og að aðstæður og búnaður á starfsstöðvum séu til fyrirmyndar.

Þekking, hæfni og þróun starfsfólks er lykill að árangri. Því leggjum við áherslu á markvissa endurgjöf, fræðslu og starfsþróun, og styðjum starfsfólk í að vaxa og dafna í starfi.

Samskip og samfélagið

Samskip taka samfélagslega ábyrgð alvarlega og sýna það í verki með virkri þátttöku í samfélaginu. Flutningafyrirtæki eru einn af máttarstólpum samfélagsins og gegna þýðingarmiklu hlutverki.

Samskip huga að mörgum þáttum sem tengjast samfélagslegri ábyrgð, s.s. umhverfismálum, vinnuvernd og öryggismálum, orkumálum, mannauðsmálum auk sjálfbærni og hafa markað sér stefnu í þeim málaflokkum og fylgja henni fast eftir þannig að fléttist saman við starfshætti félagsins.

Samskip leggja margvíslegum málefnum lið á ári hverju, bæði góðgerðarmálum, menningarmálum og styrkja íþróttastarf á landinu. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að styrkja fjölbreytta starfsemi er tengist landsbyggðinni. Við erum auk þess þátttakandi í ýmsum félagasamtökum er tengjast atvinnugreininni og leggja sitt af mörkum til að auka veg og virðingu hennar.

Fyrir óskir um auglýsingar og styrki, vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið styrkir@samskip.com

Viðurkenningar og vottanir

Samskip á Íslandi hófu að mæla árangur sinn árið 2020 hjá EcoVadis og fengu fyrst silfur vottun. Árið 2023 og 2024 hlutu Samskip á Íslandi gull sem er næst hæsta stig einkunnagjafar EcoVadis.

EcoVadis býður upp á heildræna sjálfbærnimatsþjónustu fyrir fyrirtæki, sem nær yfir fjölbreytt svið stjórnunarkerfa sem ekki tengjast fjármálum, þar á meðal umhverfismál, vinnuréttindi og mannréttindi, viðskiptasiðfræði og áhrif sjálfbærra innkaupa. Vottun hjálpar fyrirtækjum að bæta sjálfbærnihætti sína, byggja upp orðspor sitt og sýna fram á skuldbindingu sína við ábyrga viðskiptahætti.

Okkar fimm helstu áherslur í starfi

Gildin okkar

Brautryðjendur

Okkar eiginleikar

Við erum traust gagnvart okkar fólki, samstarfsaðilum og umhverfinu og berum ábyrgð á gjörðum okkar og áhrifum þeirra á heiminn í kringum okkur.

Áræðanleiki

Okkar viðhorf

Við erum áreiðanlegt fyrirtæki sem standur við loforð okkar gagnvart starfsfólki okkar, samstarfsaðilum og viðskiptavinum.

Skuldbinding

Okkar siðferði

Við vinnum saman og hjálpum hvert öðru að ná árangri, saman sköpum við hvetjandi vinnuumhverfi, saman náum við árangri.

Vinnum saman

Okkar hugarfar

Við trúum því að tækifæri skapist með nýsköpun, með því að ögra stöðunni, með gagnrýninni og skapandi hugsun.

Helstu tölur úr starfseminni

0

Fluttar gámaeiningar
á ári (TEUs)

0

milljónir evra í
ársveltu

0

ferðir lesta í
Evrópu á viku

0

siglingar skipa
á viku

0

flutningagámar
í umferð

0

skrifstofur
um allan heim

0

skip sem sigla á
100% lífeldsneyti

0

starfsmenn
um allan heim