Klæðskerasniðnar heildarlausnir í vöruhýsingu

Samskip bjóða klæðskerasniðnar heildarlausnir í vöruhýsingu sem styðja við flæði vara frá móttöku til afhendingar. Í vöruhúsi okkar í Kjalarvogi önnumst við vöruhýsingu, afgreiðslu, vörutínslu og innanlandsakstur, allt eftir þörfum viðskiptavina.

Þjónustufulltrúar okkar veita persónulega þjónustu og hafa umsjón með móttöku vara, skráningu, afhendingu og daglegri afgreiðslu. Þá sjá þeir einnig um skjalavistun, flokkun og frágang tollskjala og annarra fylgigagna, sem tryggir skilvirk og hnökralaus ferli.

Við bjóðum heildarlausnir fyrir bæði innflutning og almenna vöruhýsingu. Viðskiptavinir geta tekið út sendingar í heild eða í hlutum, með eða án heimaksturs innanlands, eftir því sem hentar rekstrinum hverju sinni. Fyrirtæki sem hýsa vörur hjá okkur geta jafnframt nýtt sér vörutínslu eftir rafrænum pöntunum, til dæmis fyrir matvöruverslanir eða dreifingu í margar verslanir, ásamt skipulagðri dreifingu á tiltekna staði.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og lausnir sem sniðnar eru að rekstri fyrirtækja.

Heildarlausnir í vöruhúsi

Vöruhýsing fyrir vörur af öllum stærðum og gerðum, sniðin að þínum rekstri

Virðisaukandi
þjónusta

Merkingar, endur­pökkun, samsetning, vörutínsla og sérlausnir eftir þörfum

Öruggar og sérhæfðar geymslur

Þurr-, kæli- og frystigeymslur, auk lausna fyrir lyf og hættulegan varning

Tollasvæði og sveigjanleiki

Tollageymsla sem veitir sveigjanleika við innflutning og afhendingu vara

Miðpunktur flæðis og dreifingar

Vöruhús Samskipa gegnir lykilhlutverki í flutningskerfi fyrirtækisins og er sú miðstöð þar sem millilanda- og innanlandsflutningar mætast. Þar samþættum við kerfi og ferla til að tryggja skilvirkt flæði sendinga, betri yfirsýn og hraðari afgreiðslu.

Allar sendingar á leið til og frá landinu með Samskipum og Jónum Transport fara um vöruhúsið, auk allra sendinga með Samskipum innanlands, sem sinna flutningum um allt land og dreifingu á höfuðborgarsvæðinu. Með þessari samþættingu skapast sterk tenging milli alþjóðlegra flutningsleiða og innanlandsdreifingar.

Auk umferðar sendinga í gegn gegnir vöruhúsið mikilvægu hlutverki í vöruhýsingu. Þúsundir bretta fara þar um árlega í beinni hýsingu, þar sem áhersla er lögð á skipulag, öryggi og skilvirka meðhöndlun vara á öllum stigum.

Við bjóðum meðal annars upp á eftirfarandi þjónustu:

  • Vöruhýsing: Geymsla á vörum í 7.500 m² vöruhúsi Samskipa
  • Tollasvæði: Frítollsvæði innan vöruhússins
  • Lyfjageymslur: Sérhannaðar og vottaðar geymslur fyrir meðferð og geymslu á lyfjum
  • Hættuleg efni: Sérstakar geymslur fyrir efni sem þurfa sérstaka meðhöndlun
  • Móttaka og losun gáma: Frá innflutningi til landsins, frágangi, áframsendingu og dreifingu
  • Vörutínsla: Afgreiðsla á vörum af lager til viðskiptavina eftir þeirra óskum
  • Innanlandsakstur: Afgreiðslustöðvar og akstur um allt land

Nánar um þjónustuna

Vöruhús geymir vörur af öllum stærðum og gerðum, hvort sem um er að ræða almenna þurrvöru, frystivöru, kælivöru eða hættulegan varning. Fjölbreyttar hólfagerðir tryggja að vara er geymd í hentugu hólfi sem lækkar geymslukostnað.

Í vöruhúsi eru bæði geymdar tollafgreiddar og ótollafgreiddar vörur og býður það upp á sveigjanleika fyrir innflytjendur sem geta látið tollafgreiða hluta af sendingum eins og hentar hverju sinni.

Helsti ávinningur viðskiptavina af hýsingu hjá Samskipum er minni fjárbinding, þar sem viðskiptavinir greiða einungis fyrir notað pláss og þjónustu í stað fasts kostnaðar við eigið húsnæði og annað sem því fylgir.

Kostnaður er því í samræmi við umfang starfseminnar á hverjum tíma. Árstíðabundnar sveiflur eru þekktar í mörgum atvinnugreinum og þá þarf ekki að greiða fyrir ónýtt rými þess á milli.

Allar vörur sem fara í gegnum vöruhúsið fá strikamerki og eru skannaðar inn í húsið. Strikamerkin auðvelda rekjanleika vörunnar og tryggja áreiðanleika í birgðahaldi og lágmarkar rýrnun.

Öflugt upplýsingakerfi gerir viðskiptavinum kleift að fylgjast með stöðu á birgðum í rauntíma og senda rafrænar pantanir til okkar.

Vara kemur til geymslu ýmist í innflutningi eða frá innlendum birgja. Varan er móttekin, sett í geymslu (geymsluhólf).
Vara er ýmist afhent beint úr geymsluhólfi (heilpallar) eða afhent úr tínsluhólfum (kassar, einingar) og byggður upp pallur eða pallar til afhendingar.

Vara kemur frá birgja á einu bretti og er afhent á marga fyrirfram skilgreinda staði með svokölluðu „Put to store“ kerfi, þar sem brettinu er skipt upp á afgreiðslustaði viðskiptavinar.

Vara kemur á brettum til vöruhúss, þar sem sérhvert bretti hefur ákveðinn móttakanda (cross-docking) og eru þau svo afhent á viðeigandi afhendingarstað.

Vöruhús veitir ýmsa aðra þjónustu s.s. merkingu á vörum, pökkun (í stærri umbúðir, fleiri vörur í sömu pakkningu), samsetningu á vörum (t.d. grill) o.fl.

Fáðu tilboð í vöruhúsaþjónustu hjá Samskipum

Þjónustufulltrúar okkar í vöruhúsi veita faglega ráðgjöf um alla þætti vöruhúsaþjónustu Samskipa. Í nánu samtali við viðskiptavini greinum við þarfir rekstursins og leggjum til lausnir sem henta best – allt frá vöruhýsingu og afgreiðslu til vörutínslu og dreifingar.

Með vöruhýsingu hjá Samskipum njóta viðskiptavinir aukins sveigjanleika og minni fjárbindingar. Eingöngu er greitt fyrir það pláss og þá þjónustu sem nýtt er hverju sinni, í stað þess að bera fastan kostnað af eigin húsnæði og rekstri. Öflugt upplýsingakerfi okkar veitir jafnframt rauntímayfirsýn yfir birgðastöðu og gerir viðskiptavinum kleift að senda rafrænar pantanir beint til vöruhúss – einfalt, skilvirkt og gagnsætt.

Viðskiptavinir geta fengið tilboð sniðið að þeirra þörfum.