Gámategundir og tækniupplýsingar
Hér finnur þú allar helstu upplýsingar um gáma og gámaþjónustu okkar. Samskip bjóða ýmsar tegundir gáma fyrir mismunandi flutninga og tegundir farms. Við notum mest 20 og 40 feta þurrgáma, kæli- og frystigáma og fleti. Við getum að auki flutt stóra farma utan gáma eins og við á og sinnum sérlausnum í flutningum.
Hafðu samband við okkur til að finna hentugustu lausnina fyrir þína flutninga og tegund farms.
Nánari lýsingu, mál og stærðir á gámategundum sem í boði eru



Gámaleiga
Gámaleiga hefst þegar gámur er losaður frá borði og lýkur þegar hann hefur verið tilkynntur tómur. Frá komudegi gáms í höfn reiknast 4 frídagar, nema annað hafi verið samið sérstaklega. Að þeim loknum hefst gámaleiga samkvæmt gildandi gjaldskrá.
- Frídagar og leigudagar telja alla almanaksdaga, þar með talið helgar og helgidaga.
- Viðskiptavinir sem flytja búslóð fá 14 daga án endurgjalds frá komu skips áður en gjöld taka gildi.
- Sjá gildandi gjaldskrá hér fyrir neðan:
Stæðaleiga
Stæðaleiga er gjald sem fellur til þegar gámur stendur á gámavelli Samskipa lengur en sá frítími sem veittur er. Frá komudegi gáms í höfn reiknast 4 frídagar, nema annað hafi verið sérstaklega um samið.
Að þeim tíma loknum leggst svæðisgjald á fyrir þann tíma sem gámurinn er geymdur á athafnasvæði Samskipa áður en hann er sóttur, samkvæmt gildandi gjaldskrá.
Afhending gáms
Beiðnir um akstur, afhendingu eða skil á tómum gámum skulu berast í gegnum þjónustuvef Samskipa eða á netfangið inn@samskip.com.
Athugið að bílstjórar og annað starfsfólk hafa ekki heimild til að staðfesta eða taka við slíkum beiðnum.
Berist beiðni eftir kl. 16:00 telst hún móttekin kl. 08:00 næsta virka dag.
Gjaldskrá gámaleigu
Hér er að finna gjaldskrá fyrir gámaleigu hjá Samskipum. Verð eru án VSK.
Gildir frá maí 2025.

| Gámategund | ISO kóði | Verð pr. dag $USD |
|---|---|---|
| 20 feta þurrgámur (20DC) | 22G1 | $120 |
| 20 feta lausafarmsgámur (20BK) | 22B1 | $120 |
| 20 feta fleti (20FR) | 22P3 | $120 |
| 20 feta gámur með opnum topp og segli (20OT) | 22U1 | $120 |
| 20 feta tankur (20TK) | 22T1 | $350 |
| 20 feta frystigámur (20RF) | 22R1 | $350 |
| 40 feta þurrgámur (40DC) | 42G1 | $180 |
| 40 feta fleti (40FR) | 42P3 | $400 |
| 40 feta gámur með opnum topp og segli (40OT) | 42U1 | $400 |
| 40 feta hár gámur (40HC) | 45G1 | $180 |
| 40 feta hærri og breiðari gámur (40PH) | 4EG1 | $180 |
| 40 feta breiðari gámur (40PW) | 4CG1 | $180 |
| 40 feta lágþekjufrystigámur (40RF) | 42R1 | $480 |
| 40 feta háþekjufrystigámur (40HR) | 45R1 | $480 |
| Gámar í leigu annara skipalína (SL/SO) | ||
|---|---|---|
| 20 feta tegundir nema frystigámar | N/A | $380 |
| 40 feta tegundir nema frystigámar | N/A | $380 |
| Svæðisgjöld á Íslandi (4 frídagar innifaldir í flutningsgjöldum) | 20ft á dag (ISK) | 40ft á dag (ISK |
|---|---|---|
| Þurrgámar | 5.000 | 10.000 |
| Opnir gámar | 5.000 | 10.000 |
| Fleti | 10.000 | 10.000 |
| Frystigámar | 10.000 | 10.000 |
Hámarksþyngdir gáma
Í töflunni hér til hliðar er að finna leyfilega hámarks innihaldsþyngd gáma (Cargo Gross MT) eftir löndum. Við hvetjum viðskiptavini til að kynna sér vel leyfilega þyngd á gámum, því yfirvöld í mörgum löndum líta brot af þessu tagi alvarlegum augum.
Hægt er að skoða nánar upplýsingar á mynd hér til hliðar eða í töflu fyrir neðan sem og á vef International Transport Forum.
Afhending á tómum gámum
Þegar tómum gámum er skilað eftir notkun eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga.
Viðskiptavinir eru beðnir um að athuga eftirfarandi:







