Til að tryggja öryggi skips, áhafnar, starfsfólks í landi og farms þarf staðfest heildarþyngd fullhlaðins gáms, VGM, að liggja fyrir áður en gámur er lestaður um borð. Rétt VGM er forsenda öruggrar hleðsluáætlunar og sjóflutnings.

Samkvæmt alþjóðlegum SOLAS-reglum ber sendandi farms ábyrgð á að VGM sé rétt skráð og berist Samskipum fyrir uppgefinn skilafrest. Liggi VGM ekki fyrir innan frests verður gámurinn ekki lestaður um borð.

Hvað er VGM?

VGM, eða Verified Gross Mass, er staðfest heildarþyngd fullhlaðins gáms. Hún er samanlögð þyngd:

  • vörunnar

  • umbúða og bretta

  • pökkunar- og festibúnaðar

  • eigin þyngdar gámsins

VGM er því ekki eingöngu þyngd vörunnar, heldur samanlögð þyngd gámsins og alls þess sem í honum er.

Hver ber ábyrgð á VGM?

Samkvæmt alþjóðlegum SOLAS-reglum, VI. kafla, reglu 2, ber sendandi farms ábyrgð á að:

  • VGM sé ákvörðuð með viðurkenndri aðferð

  • uppgefin þyngd sé rétt

  • VGM sé skráð með fullnægjandi hætti

  • upplýsingunum sé skilað innan tilskilins frests

Þetta á við óháð því hvort sendandi annast sjálfur pökkun og vigtun eða felur öðrum aðila að framkvæma hana.
Komi til sekta eða annars kostnaðar vegna rangra eða villandi VGM-upplýsinga sem sendandi hefur veitt, ber sendandi þann kostnað samkvæmt gildandi reglum og flutningsskilmálum Samskipa.

Hvernig er VGM ákvörðuð?

SOLAS-reglurnar heimila tvær aðferðir við ákvörðun VGM:

  • Aðferð 1: Fullhlaðinn gámur vigtaður
    Fullhlaðinn og innsiglaður gámur er vigtaður með kvarðaðri og löggiltri vog.

  • Aðferð 2: Þyngd allra eininga lögð saman
    Þyngd vörunnar, umbúða, bretta og alls pökkunar- og festibúnaðar er lögð saman. Eigin þyngd gámsins er síðan bætt við.
    Við þessa aðferð skal nota vottaða aðferð sem viðurkennd er af lögbæru stjórnvaldi í því landi þar sem gámurinn er pakkaður og honum lokað.

Þetta á við óháð því hvort sendandi annast sjálfur pökkun og vigtun eða felur öðrum aðila að framkvæma hana.
Komi til sekta eða annars kostnaðar vegna rangra eða villandi VGM-upplýsinga sem sendandi hefur veitt, ber sendandi þann kostnað samkvæmt gildandi reglum og flutningsskilmálum Samskipa.

Hvenær og hvernig þarf að skila VGM?

VGM þarf að berast tímanlega svo hægt sé að nota upplýsingarnar við gerð hleðsluáætlunar skipsins. Viðskiptavinir skrá VGM við viðkomandi bókun á þjónustuvef Samskipa.

Eftirfarandi skilafrestir gilda fyrir sendingar lestaðar á Íslandi:
  • Reykjavík, Arnarfell og Helgafell: Fyrir lok dags á þriðjudegi

  • Reykjavík, Skaftafell og Hoffell: Fyrir lok dags á föstudegi

  • Ísafjörður, Sauðárkrókur, Akureyri og Vestmannaeyjar:
    Eigi síðar en 24 klukkustundum fyrir áætlaða brottför skips frá viðkomandi lestunarhöfn

Vinsamlegast athugið að gámur verður ekki lestaður um borð ef VGM hefur ekki borist innan tilskilins frests.

Skilafrestir geta breyst vegna breytinga á siglingaáætlun eða öðrum rekstrarlegum aðstæðum.
Viðskiptavinir eru því hvattir til að kynna sér upplýsingar sem fylgja bókun hverju sinni.

Vigtunarþjónusta Samskipa

Samskip bjóða upp á eftirfarandi vigtunarþjónustu í Reykjavík:

  • FCL, heilgámasendingar:
    Viðskiptavinir geta óskað eftir vigtun heilgáma sem eru lestaðir í Reykjavík.
    Verð er 12.500 kr. fyrir hvern gám.

  • LCL, lausavara:
    Öll lausavara er vigtuð í vörumiðstöð Samskipa í Reykjavík.
    Verð er 2.500 kr. fyrir hvert bretti.

Tímanleg skil á réttum VGM-upplýsingum stuðla að öruggri og hnökralausri afgreiðslu og draga úr hættu á töfum og viðbótarkostnaði.