
Flutningar fyrir húsgögn og heimilistæki – öruggir, skilvirkir og áreiðanlegir
Við skiljum mikilvægi skilvirkra og áreiðanlegra flutninga í húsgagna- og heimilistækjaiðnaðinum, sem og fyrir heildsölur og verslanir sem flytja inn almennar neysluvörur. Með sérsniðnum flutningslausnum og sérþekkingu í meðhöndlun þessara vara tryggjum við örugga, stundvísa afhendingu og viðhaldum ströngum gæðakröfum á hverju stigi flutningskeðjunnar.
Samskip búa yfir víðtækri reynslu í flutningum á húsgögnum og heimilistækjum og bjóða fjölbreyttar lausnir sem styðja við alla þætti framboðskeðjunnar. Með öflugu siglinganeti tengjum við Ísland við lykilmarkaði í Skandinavíu, Mið-Evrópu og á Balkanskaga.
Áralöng reynsla og þekking
Af flutningum á húsgögnum, heimilistækjum og öðrum stórum neysluvörum til og frá Íslandi
Örugg og áreiðanleg afhending
Við tryggjum örugga meðhöndlun og stundvísa afhendingu með öflugu flutningsneti og traustum samstarfsaðilum
Lausnir fyrir verslanir og heildsölur
Við skiljum þarfir verslana og birgðakeðja og bjóðum sveigjanlegar flutningslausnir sem styðja við stöðugt vöruflæði
Sterkt flutningsnet í Evrópu
Við tengjum Ísland við lykilmarkaði í Skandinavíu, Mið-Evrópu og á Balkanskaga með reglulegum og áreiðanlegum siglingum
Af hverju að velja Samskip?
Sérhæfðar flutningslausnir
Floti okkar af ökutækjum og sérhæfðum meðhöndlunarbúnaði tryggir örugga og vandaða meðhöndlun húsgagna og heimilistækja. Við tökum mið af sérstökum kröfum, hvort sem um er að ræða viðkvæman farm eða fyrirferðarmiklar sendingar. Með reglulegum viðkomum í lykilhöfnum á Norðurlöndum og á Balkanskaga, þar sem stór hluti húsgagnaframleiðslu fer fram og öflugu flutningsneti tryggjum við skilvirka flutninga og skjótan afhendingartíma.
Skilvirk birgðakeðja
Við styðjum við skilvirka birgðakeðju með lausnum sem einfalda vöruflæði frá framleiðslu til afhendingar. Með góðri yfirsýn yfir flutninga, leiðabestun og náinni samvinnu við viðskiptavini hjálpum við til við að tryggja stöðugt og áreiðanlegt vöruflæði.
Sérsniðnar umbúðalausnir
Við bjóðum lausnir sem stuðla að öruggri meðhöndlun húsgagna og heimilistækja í flutningi. Með vönduðum og sérsniðnum umbúðum er dregið úr hættu á skemmdum og tryggt að vörur skili sér til áfangastaðar í sama ástandi og þær fóru af stað.

Meðal þjónustu í boði
Hafið samband við okkur fyrir frekari upplýsingar.







