Búslóðaflutningar innanlands
Boðið er upp á flutninga frá dyrum sendanda að dyrum móttakanda hvar á landinu sem er, hvort sem um er að ræða flutning á heilum gámum (20 eða 40 feta) eða lausavörusendingar. Allir flutningar fara fram landleiðina með fullkomnum bílaflota fyrirtækisins. Boðið er upp á flutninga frá dyrum sendanda að dyrum móttakanda hvar á landinu sem er.
Umfang búslóðar
Boðið er upp á flutning í heilum gámum í tveimur stærðum, 20 feta og 40 feta. Einnig taka Samskip innanlands að sér að flytja búslóðina lausa í flutningabílum. Þegar þannig er flutt er ávallt meiri hætta á hnjaski þar sem hvert stykki er meðhöndlað oftar en ef um gámaflutning er að ræða. Rétt er að miða pökkun og frágang við það. Verðlagning búslóðaflutninga er mismunandi eftir því hvaðan og hvert verið er að flytja. Einnig fer hún eftir því hvort um er að ræða heila gáma eða lausavöru.
Hægt er að fá hugmynd um umfang búslóðar í þar tilgerðu reiknilíkani. Endanlegt umfang reiknast þó ávallt við móttöku vöru.
Flutningur og pökkun
Í öllum tilfellum er nauðsynlegt að ganga mjög vel frá búslóðinni og pakka sem mestu í kassa og setja pappa eða þykkt plast utan um húsgögn og tæki. Á stærri hlutum þarf að hlífa öllum hornum. Ef búslóð er flutt laus í flutningabílum þá þarf að merkja alla hluti vandlega.
Tryggingar
Allar vörur sem fluttar eru með Samskipum innanlands eru tryggðar. Miðast tryggingaverndin við verðmæti varnings allt að 10.000.000 kr. Fari verðmæti vöru upp fyrir 10.000.000 kr. þarf að tryggja hana sérstaklega.
Bókun flutnings
Þegar flutningur er pantaður þarf að gefa upp brottfarar- og áfangastað og hvort um flutning í heilum gámum eða lausavöru er að ræða. Einnig þarf að taka fram hvort óskað sé eftir að varan sé sótt og hvort óskað er eftir heimakstri á áfangastað. Þegar pantaður er flutningur fyrir lausavöru þá þarf að reikna umfang og rúmmál vörunnar (búslóðarinnar) að liggja fyrir.
Óskið eftir tilboði í flutning, einnig er hægt að hafa samband við þjónustufulltrúa okkar eða hringja í síma 458-8000.

Reiknivél
Til að finna út ummál og magn búslóðar.
Fá tilboð
Form til að fylla út og óska eftir búslóðaflutningi til eða frá landinu.
Samþykkja tilboð
Eftir að þú hefur fengið tilboð getur þú staðfest það hér.
Innanlandsakstur
Hægt er að óska eftir tilboð í innanlandsakstur heim að dyrum.
Skilmálar
Hér eru almennir skilmálar fyrir búslóðaflutninga. Ef þig vantar nánari upplýsingar erum við tilbúin til að aðstoða á netfanginu buslodir@samskip.com eða í síma 458-8000.

Algengar spurningar fyrir búslóðaflutninga
Hér fyrir neðan eru nokkrar af helstu spurningum og svörum sem gott er að lesa nánar um varðandi búslóðafluttninga hjá okkur.
Ef þig vantar nánari upplýsingar erum við tilbúin til að aðstoða á netfanginu buslodir@samskip.com eða í síma 458–8000.
Hafðu samband við þjónustudeild okkar varðandi búslóðaflutninga

Samskip innanlands
Samskip innanlands
Þjónustudeild / Customer Service
Þjónustudeild / Customer Service






