
Hráefni til endurvinnslu erlendis
Samskip búa yfir víðtækri reynslu af flutningum á hráefnum til endurvinnslu og áfram-vinnslu, svo sem málmum, plasti og öðrum endurvinnanlegum efnum. Við tryggjum örugga og skilvirka flutninga til erlendra samstarfsaðila þar sem efnið fær nýtt líf í fram-leiðslu eða orkusköpun.
Með reglulegum siglingum og öflugu flutningsneti tengjum við íslenskan iðnað við helstu móttökuaðila endurvinnsluefna í Evrópu. Þannig styðjum við við hagkvæma og áreiðanlega flutningskeðju frá uppruna til áfangastaðar.
Við bjóðum sérhæfðar flutningslausnir fyrir úrgang og hráefni til endurvinnslu og tryggjum að flutningar fari fram í samræmi við gildandi lög, alþjóðlegar reglur og bestu starfsvenjur í greininni.
Á öllum stigum ferlisins leggjum við áherslu á öryggi, rekjanleika og ábyrga með-höndlun efna.
Öflugt flutningsnet til Evrópu
Með reglulegum siglingum og víðtæku flutningsneti tengjum við íslensk endurvinnsluefni við helstu móttökuaðila í Evrópu og tryggjum skilvirka og áreiðanlega flutninga
Lausnir fyrir endurvinnsluefni
Við bjóðum sérhæfðar flutningslausnir fyrir málma, plast og önnur endurvinnanleg efni, með áherslu á örugga meðhöndlun og skilvirka flutningskeðju
Akstur og þjónusta innanlands
Við sjáum um akstur til og frá endurvinnslufyrirtækjum, vöruhúsum og höfnum um allt land og tryggjum samfellda flutningskeðju frá uppruna til útflutnings
Reynsla og sérþekking
Áratuga reynsla af flutningum á endurvinnsluefnum gerir okkur kleift að bjóða öruggar og hagkvæmar lausnir í samræmi við reglur og kröfur greinarinnar
Af hverju að velja Samskip fyrir flutning á hráefni til endurvinnslu?

Meðal þjónustu í boði
Hafið samband við okkur fyrir frekari upplýsingar.







