Búslóðaflutningar frá Íslandi
Samskip leggja áherslu á að veita góða alhliða þjónustu í búslóðaflutningum en margt þarf að hafa í huga þegar flytja á búslóð.
Hér getur þú farið yfir flutningsferlið hjá Samskipum, hvað þarf að gera og í hvaða röð:
- Óska eftir tilboði í flutning án skuldbindingar. Hér er hægt að nota búslóðareiknivélina til að áætla umfang.
- Staðfesta tilboðið frá okkur. Nauðsynleg skjöl – Fylla út bókunar- og innihaldslista við pökkun búslóðar.
- Panta flutning með þriggja daga fyrirvara – koma vöru til Samskipa erlendis eða biðja um að láta sækja.
- Tollaafgreiða með komutilkynningu, innihaldslista og búslóðaryfirlýsingu Tollstjóra.
- Greiða fyrir flutninginn.
- Huga að hvort panta þurfi heimakstur td. á gám heim að húsi við komuna til landsins.
1. Fá tilboð og áætla stærð búslóðar
Mikilvægt er að fylla út í alla * merkta reiti sem og magn búslóðar sem á að flytja. Við reiknum þá út tilboðið miðað við magn og hvaðan hún fer og hvert hún á að fara.
Hversu mikið magn flytur þú með þér? Hér getur þú reiknað út rúmmál búslóðar. Þar er hægt að fá viðmiðunartölu fyrir stærð búslóðar til að nota í tilboðsbeiðni.
Ef þessi tala er hærri en 16 m3 þá er oftast hagkvæmara að taka gám.
2. Staðfesting á tilboði
Eftir að við höfum farið yfir þínar þarfir í tilboðsforminu staðfestum við og sendum þér tilboð með verði til baka, þú staðfestir tilboðið frá Samskipum til að hefja ferlið formlega.
3. Skjöl sem þarf að fylla út áður en búslóð er flutt
Innihaldslisti er fylltur út um leið og búslóð er pakkað. Á sama blaði er verðmætalisti fyrir tryggingar sem einnig þarf að fylla út. Samskip gera þá kröfu að farmflytjandi (sendandi) láti tryggja búslóð fyrir flutning. Flestir hafa heimilistryggingu á eigum sínum og er því jafn sjálfsagt að tryggja þær við flutning í bílum og skipum um heiminn. Starfsfólk Samskipa gefur allar upplýsingar um tryggingaskilmála og aðstoðar við kaup á tryggingum.
Þegar búslóð er afhent til útflutnings og innihaldslista er skilað til Samskipa, þarf að fylla út tollskýrslu þess lands sem flytja á til.
Mismunandi er eftir löndum hvort skila þurfi inn frekari pappírum.
4. Panta flutning
Panta þarf allan flutning með minnst þriggja (3) daga fyrirvara og er það gert á skrifstofu Samskipa í Reykjavík í síma 458-8000 eða með tölvupósti á netfangið buslodir@samskip.com.
Skila þarf búslóðum til Samskipa í Kjalarvogi 7-15 í Reykjavík fyrir eftirtalda skilatíma:
- Heilgámur (FCL) · Þriðjudagar kl. 12:00
- Lausavara (LCL) · Mánudagar kl. 15:00
· Sjá staðsetningu á götukorti
· Sjá kort af afgreiðslusvæði Samskipa
5. Greiðsla
Ganga þarf frá flutningsgjöldum áður en búslóðin fer um borð í skip.
Hægt er að greiða með símgreiðslu, raðgreiðslusamningi fyrir korthafa eða staðgreiðslu.
Annað gagnlegt efni og upplýsingar:
Koma skips og tollafgreiðsla
Búslóðareigandi ber ábyrgð á að fylgjast með komu skips og tollafgreiðslu. Búslóð verður að vera skráð á þann aðila sem er að flytja til landsins (ekki er leyfilegt að skrá búslóð á fyrirtæki).
Áður en búslóð fæst afhent þarf eigandi eða umboðsaðili eiganda að láta tollafgreiða búslóðina og er það í flestum tilfellum gert hjá Samskipum.
Gámaleiga og geymslugjöld
Gámaleiga og geymslugjöld eru mismunandi eftir höfnum. Vinsamlegast hafið samband við næstu skrifstofu Samskipa til að fá upplýsingar um gjöld á hverjum stað.
Ef þig vantar nánari upplýsingar þá vinsamlegast sendu okkur fyrirspurn á buslodir@samskip.com eða hringdu í síma 458-8000.
Námsmenn og eldri borgarar
Eldri borgarar og námsmenn njóta 15% afsláttar af sjóflutningi hjá Samskipum, innan Evrópu (gegn framvísun sönnunar um skólavist fyrir námsmenn).
Allar nánari upplýsingar um verð og flutningsleiðir er að hægt að nálgast hjá þjónustufulltrúum okkar í þjónustudeild.
Skilmálar
Hér eru almennir skilmálar fyrir búslóðaflutninga. Ef þig vantar nánari upplýsingar erum við tilbúin til að aðstoða á netfanginu buslodir@samskip.com eða í síma 458-8000.
Skilmálar eru hluti af samningi á milli Samskipa og viðskiptavina.
- Almennir flutningsskilmálar Samskipa gilda um flutninga á búslóðum og búslóðabílum og má finna á heimasíðu Samskipa.
- Samskip gera þá kröfu að eigandi búslóðar tryggi búslóð fyrir flutning. Flestir hafa heimilistryggingu á eigum sínum og er því jafn sjálfsagt að tryggja þær við flutning í bílum og skipum um heiminn. Starfsfólk Samskipa getur aðstoðað við kaup á tryggingum.
- Sendandi búslóðar ber ávallt ábyrgð á pökkun búslóðar. Í öllum tilfellum er mikilvægt að ganga vel frá fyrir flutning og pakka í kassa og setja pappa eða þykkt plast utan um húsgögn og tæki. Á stærri hlutum þarf að hlífa öllum hornum. Aðstoð við burð á búslóðum er ekki innifalin í verðum, hvorki á Íslandi né erlendis.
- Einungis má vera ein búslóð skráð í heilgámaflutningum til og frá landinu.
- Þegar um heilgáma, í útflutningi frá Íslandi, er að ræða ber eigandi búslóðar ábyrgð á að fá innsiglisvotta (farmvernd) hjá viðurkenndum aðilum.
- Ekki er heimilt að setja búslóðir eða búslóðahluta inn í bíl í flutningi.
- Skila þarf búslóð til Samskipa fyrir tilsettan lokunartíma vörumóttöku í hverju landi. Ef ekki næst að skila búslóð fyrir tilsettan lokunartíma, þá fer hún með næsta mögulega skipi. Lokunartími kemur fram á heimasíðu Samskipa undir siglingaáætlun.
- Í útflutningi frá Íslandi þarf að greiða fyrir flutning eigi síðar en tveimur dögum áður en skip leggur úr höfn. Búslóð er ekki lestað í skip nema greiðsla liggi fyrir.
- Eigandi búslóðar þarf alltaf að sjá til þess að tollafgreiða búslóðina inn í viðkomandi land en lög um tollafgreiðslu eru mismunandi eftir löndum. Upplýsingar um tollareglur ýmissa landa má finna á heimasíðu Samskipa og tollembætta í viðkomandi löndum.
- Í innflutningi til Íslands þarf heimild tollstjóra og greiðsla fyrir flutning að liggja fyrir, áður en flutningur er afhentur til búslóðaeiganda.
- Þjónustustaðlar varðandi losun skips, afgreiðslu og aksturs eru mismunandi eftir löndum. Það er á ábyrgð eiganda búslóðar að fylgjast með komu skipa í viðkomuhöfn og setja sig í samband við skrifstofur Samskipa til að fá aðstoð við lokaskrefin í flutningaferlinu.
- Samskip bjóða uppá akstur á gámum og lausavöru. Allar tímasetningar á akstri eru áætlaðar og geta breyst.
- Eigandi búslóðar er ábyrgur fyrir því að flutningabíll komist að dyrum á ákvörðunarstað.
- Losunar og hleðslutímar á gámum eru mismunandi eftir löndum en oftast 1-2 klukkustundir og er verðlagning miðuð við það í hverju landi.
- Gámaleiga, stæðaleiga og geymslugjöld eru mismunandi eftir löndum en á Íslandi reiknast þessi gjöld sjö (7) dögum eftir að búslóðin kemur til landsins.

Algengar spurningar fyrir búslóðaflutninga
Hér fyrir neðan eru nokkrar af helstu spurningum og svörum sem gott er að lesa nánar um varðandi búslóðafluttninga hjá okkur.
Ef þig vantar nánari upplýsingar erum við tilbúin til að aðstoða á netfanginu buslodir@samskip.com eða í síma 458–8000.
Við byrjum á því að gefa viðskiptavinum tilboð í flutninginn en til þess þarf að fylla út tilboðsbeiðni á vefnum okkar. Vert er að benda á að ef flytja á búslóðina á brettum (lausavara, en ekki heill gámur) þarf þá að gefa upp rúmmetrafjölda í beiðninni þar sem tilboðin eru gefin eftir rúmmetrum.
Hér á vefnum er að finna búslóðareikni sem getur hjálpað til við að gefa þér hugmynd um stærð búslóðarinnar. Einnig getur verið gott að miða við 2 rúmmetra á hvert (euro) bretti (0,8*1,2*2).
FCL er skammstöfun fyrir Full Container Load. Á íslensku er talað um heilgámasendingu og miðar þá við að búslóðin fari í 20ft eða 40ft gám.
LCL er skammstöfun á Less Than Container Load. Á íslensku er talað um lausavörusendingu og miðar þá við að búslóðin sé stöfluð á bretti. Búslóðin tekur þá einungis hluta af gámi.
Bílar með aftanívögnum (sideloaders) eru notaðir hér á Íslandi til þess að setja gámana niður á jörðina. Slíkir bílar eru sjaldgæfir erlendis og þess vegna þarf að borga sérstaklega fyrir þá þjónustu. Einnig er hægt að fá lengri tíma til þess að losa/hlaða gáminn en þá er algengast að hver klukkustund kosti aukalega.
Fáðu nánari upplýsingar hjá þjónustudeild Samskipa varðandi verð og tíma sem þú hefur erlendis til þess að losa/hlaða gáminn.
Einungis má vera ein búslóð skráð í heilgámaflutningum (FCL) til og frá landinu.
Já, Samskip geta haft milligöngu um tryggingar búslóða og búslóðabíla hjá Sjóvá. Skylda er að búslóðin sé tryggð í flutningi hvort sem Samskip hafa milligöngu um tryggingar eða ekki.
Ef Samskip sjá um tryggingar þá er iðgjald 0,75% af heildarverðmæti búslóðarinnar, lágmark ISK 3.000 og er sjálfsábyrgðin ISK 25.000.
Ef Samskip hafa milligöngu um tryggingu á búslóðinni þá skaltu vinsamlegast fylla út flutningstjónabeiðni inn á sjova.is. Starfsmaður frá Sjóvá hefur samband við tjónþola varðandi næstu skref.
Það er mismunandi eftir löndum, en alltaf þarf að fylla út innihaldslista. Útfylling á tollskýrslu í viðkomandi landi fer eftir reglum á áfangastað. Fáðu nánari upplýsingar hjá þjónustufulltrúa Samskipa um hvað þarf að fylla út.
Bílar með aftanívögnum (sideloaders) eru notaðir hér á Íslandi til þess að setja gámana niður á jörðina. Slíkir bílar eru sjaldgæfir erlendis og þess vegna þarf að borga sérstaklega fyrir þá þjónustu. Einnig er hægt að fá lengri tíma til þess að losa/hlaða gáminn en þá er algengast að hver klukkustund kosti aukalega.
Fáðu nánari upplýsingar hjá þjónustudeild Samskipa varðandi verð og tíma sem þú hefur erlendis til þess að losa/hlaða gáminn.
Búslóðin ætti að vera tollfrjáls ef viðkomandi hefur haft fasta búsetu í landi sem er flutt úr í a.m.k. 12 mánuði fyrir búferlaflutning. Ef búslóðarmunir eru nýir, þá verður að tollafgreiða þá sérstaklega og geta Jónar Transport aðstoðað viðskiptavini við það.
Ekki er leyfilegt að flytja aðra hluti í bílnum en þá sem tilheyra bifreiðinni. Þar af leiðandi er ekki heimilt að setja búslóðina í bifreið sem Samskip flytja.
Ef um flutning frá Íslandi er að ræða greiðist flutningurinn áður en skipið fer frá landi. Ef greiðsla hefur ekki borist fer búslóðin ekki með skipinu.
Ef um flutning til Íslands er að ræða greiðast flutningsgjöld áður en búslóðin er afhent.
Já, hægt er að gera raðgreiðslusamning í gegnum Valitor. Nauðsynlegt er að vera með íslenskt kreditkort og þarf sá hinn sami og tekur kortalánið að skrifa sjálfur undir samninginn í þjónustudeild Samskipa. Nánari upplýsingar varðandi kortalán veitir Valitor.
Aðrir greiðslumöguleikar eru millifærsla á reikning, staðgreiðsla eða greiðsla með kreditkorti.
Reikningsupplýsingar Samskipa:
Reikningur: 0301–26–1170
Kennitala: 4409861539
Kvittun sendist á buslodir@samskip.com
Það er mismunandi – hafðu samband við tryggingafélagið þitt og fáðu upplýsingar um það hvort farmtrygging sé hluti af þinni heimilistryggingu.
Hvað er farmvernd?
Allir vörugámar sem fermdir eru hér á landi til útflutnings skulu vera innsiglaðir með svokölluðu flöskuinnsigli. Bent er á pökkunarfyrirtæki og Tollstjórann í Reykjavík hvað varðar vottun á flutningi heimilismuna. Samskip veita ráðgjöf hvað þetta varðar.
Nei, Samskip sjá ekki um þá þjónustu.
Pökkun og flutningar ehf sjá um að farmvernda búslóðagáma og innheimta þeir þann kostnað. Vert er að benda á að Samskip sækja ekki fulla búslóðagáma til útflutnings fyrr en búið er að innsigla og farmvernda gáminn.
Í flestum tilfellum þarf þess ekki en þess má þó geta að ef um lausavörusendingu er að ræða verður alltaf greitt fyrir þann rúmmetrafjölda sem búslóðin mælist. Erfitt getur verið að áætla nákvæman rúmmetrafjölda en þess vegna er búslóðin alltaf mæld í vöruhúsinu er greitt samkvæmt mælingum.
Ef viðskiptavinur hefur hugsað sér að fá gáminn niður á jörð eða er lengur að losa/hlaða gáminn erlendis þá bætast aukagjöld við upphaflega tilboðið en allar upplýsingar um þann kostnað er að finna á tilboðinu.
Gámaleiga og geymslugjöld geta einnig fallið til en búslóða viðskiptavinir hafa sjö (7) daga fría frá komu skips. Hægt er að fá gáminn að heimili á Íslandi sjö (7) dögum fyrir brottför skips án þess að greiða gámaleigu.
Nei, Samskip bjóða ekki upp á slíka þjónustu.
Samskip á Íslandi útvega bretti og plast (þetta á ekki við í erlendum höfnum) en sjá ekki um að hlaða á brettin eða fylla í gám fyrir viðskiptavini.
Starfsfólk þjónustudeildar Samskipa geta bent á trausta aðila til þess að sjá um pökkun og burð.
Ef búslóðin er sótt og sett í flutningabíl er nauðsynlegt að fá upplýsingar hjá þjónustudeild um hvort búslóðin þurfi að vera plöstuð á brettum eða ekki, en það er mismunandi eftir löndum.
Áður en búslóðin er afhent þarf að fá tollafgreiðslu og greiða fyrir flutninginn. Til þess að tollafgreiðslan geti farið fram þarf að skrá viðkomandi inn í landið hjá Þjóðskrá Íslands og skila útfylltri búslóðayfirlýsingu, innihaldslista og komutilkynningu inn til Jóna Transport eða Tollstjóra.
Algengur afgreiðslutími hjá tollayfirvöldum eru einn til tveir sólarhringar en getur þó tekið lengri tíma.
Þú getur flutt búslóðina þína án þess að skrá þig inn í landið en þá gætir þú þurft að borga toll af búslóðinni.
Til þess að búslóðin sé tollfrjáls þarftu að skrá lögheimilið til Íslands.
Það er hægt að nota sinn eigin gám í flutninga á milli landa en CSC-vottun á gámnum þarf að liggja fyrir.
Það er gert með því að senda okkur mynd af CSC plötu gámsins.
Eitt stærsta siglinganet Evrópu
Sjálfbærar og fjölþátta flutningslausnir
Samskip bjóða upp á heildarþjónustu á Íslandi og í Færeyjum, fjölþátta gámaflutningaþjónustu um alla Evrópu, frystiflutninga og flutningsmiðlun um allan heim. Kynntu þér flutningsnetið okkar og siglingaáætlanir.









