Alhliða flutningsþjónusta innanlands

Samskip annast flutning á vörum í öllum stærðum og gerðum um land allt. Við bjóðum heildstæða flutningsþjónustu bæði á landi og sjó, allt eftir þörfum viðskiptavina. Þjónustan nær til almennra vöruflutninga, búslóðaflutninga, heilfarma, gámaflutninga, heimaksturs á vörum og annarra sérlausna.

Við rekum afgreiðslustöðvar víðs vegar um landið og byggjum þjónustu okkar á öflugu áætlunarkerfi fyrir innanlandsakstur og strandsiglingar. Með reglubundnum ferðum tryggjum við áreiðanlegar tengingar milli landshluta allan ársins hring. Bílstjórar Samskipa aka samanlagt jafnvirði um 14 hringi í kringum landið í hverri viku, sem endurspeglar umfang, stöðugleika og afhendingaröryggi þjónustunnar.

Sölufulltrúar okkar á innanlandssviði veita ráðgjöf og allar nánari upplýsingar um verð, tilboð og flutningslausnir sem henta rekstri viðskiptavina, hvort sem um er að ræða stakar sendingar eða reglubundna flutninga milli landshluta.

Bóka sendingu

Bókaðu flutning á sendingu innanlands á netinu.

Þín sending

Finndu hvar sending er stödd með því að fletta upp sendingarnúmeri.

Reikna verð

Reiknivél fyrir áætlað magn og kostnað á flutningi.

Fá tilboð í flutning

Hér er hægt að fylla út form og fá tilboð í flutning með Samskipum innanlands.

Áætlanir bíla og dreifing innanlands

Hér er að finna áætlanir okkar fyrir innanlandsflutninga í þéttbýli með því að velja brottfarar- og áfangastað. Einnig er hægt að finna allar áætlanir og tímasetningar fyrir innanlandsflutninga hér fyrir neðan og velja upphafs- og móttökustað til að finna hentugustu sendingaleið hverju sinni.
Athugið að vara þarf að berast að minnsta kosti tveimur klukkustundum fyrir brottför.

Afgreiðslustaðir innanlands

Þjónustudeild Samskipa innanlands veitir upplýsingar um stöðu sendinga og annað sem snýr að flutningum innanlands. Viðskiptavinir okkar geta fengið aðgang að þjónustuvef Samskipa og þannig fylgst með stöðu sendinga sinna.

Opnunartímar þjónustu innanlands

Afgreiðsla og vörumóttaka í Kjalarvogi Reykjavík og símsvörun þjónustudeildar:

Opið mánudaga til fimmtudaga: 08:00-16:00 og föstudaga til 15:00.

Afgreiðsla og vörumóttaka, Akureyri og Egilstöðum:
Opið mánudaga til fimmtudaga: 08:00-16:00 og föstudaga til 15:00.

Ísheimar og Hús-B (bílaport):
Opið mánudaga til fimmtudaga: 08:00-16:00 og föstudaga til 15:00.

 

Gjaldskrá og skilmálar

Upplýsingar um lög, tryggingar og skilmála sem gilda vegna flutninga á sendingum innanlands:

Við útreikning farmgjalda reiknast einn rúmmetri sem 350 kg. Ef umreiknuð þyngd á rúmmetra er undir 350 kg er stuðst við rúmmálsútreikning.

Vilji móttakandi gera athugasemd um hvarf eða skemmdir á sendingu ber að tilkynna það innan 48 klst. frá móttöku hennar.
Þjónustuskilmálar Samtaka verslunar og þjónustu gilda um alla þjónustu innanlandsdeildar Samskipa aðra en landflutninga.

Farmtryggingar í innanlandsflutningi:

Samskip innanlands og Sjóvá-Almennar tryggingar hafa undirritað samning til hagsbóta fyrir viðskiptavini Samskipa innanlands.

Með samningnum eru allar sendingar sem fluttar eru með Samskipum innanlands tryggðar. Miðast tryggingaverndin við verðmæti varnings allt að 10.000.000 kr.
Fari verðmæti sendingar upp fyrir 10.000.000 kr. þarf að tryggja hana sérstaklega.

Sendingar eru tryggðar samkvæmt vátryggingaskilmálum flutningstrygginga Sjóvá. Verð fyrir þessa tryggingavernd er 100 kr. með VSK. og er gjaldið hluti af þjónustugjaldi félagsins (vegna flutninga). Fyrir þennan viðbótarkostnað á sendingu fær farmeigandinn tryggingu sem er vel umfram þær bætur sem honum eru tryggðar í lögum um landflutninga.

Gildir frá 1. maí 2025. Verð eru með virðisaukaskatti.

1 rúmmetri = 350 kg.

Vegna sérstakrar vörumeðhöndlunar bætist eftirfarandi álag á almennar verðskrár:

  • Frysti- og kælivörur: 20%
  • Brothættur varningur: 20%
  • Hættulegur varningur: 20%
  • Álag vegna flýtiþjónustu: 20%
  • Rúmfrekar illmælanlegar vörur: Tvöföld þyngd viðkomandi vöru.

Verðskrár eftir landsvæðum: Gildir frá ágúst 2025

Athugið:

  • Þjónustugjald, 1.231 kr. með vsk, olíuálag og gjald pr. flutningseiningu reiknast á hvert fylgibréf.
  • Olíuálag tekur breytingum í byrjun hvers mánaðar í samræmi við olíuverð. Olíuálag frá 1. júlí 2025 er 25,9%.
  • Gjald fyrir hverja flutningseiningu umfram þá fyrstu er 393 kr. með VSK.
  • Geymslugjöld reiknast eftir fjóra (4) daga frá komudegi, 400 kr. með VSK á dag á sendingu.
  • Breytingargjald fyrir hverja bakfærða reikningsfærða sendingu er 615 kr. með VSK pr. sendingu.
  • Skráningargjald er 450 kr. með VSK.
  • Verðskráin miðast við afhendingu á ofangreindum þéttbýlisstöðum. Ef afhent er í dreifbýli bætast við gjöld skv. verðskrá um dreifingu í dreifbýli.
  • Verðskrár breytast ársfjórðungslega í samræmi við breytingar á samsettri vísitölu, 65% launavísitölu og 35% vísitölu neysluverðs.

Ef vöruvöntun eða tjónamál koma upp hjá viðskiptavinum er nauðsynlegt að kynna sér upplýsingarna hér fyrir neðan:

Vöntun í sendingu

Þegar uppgefinn fjöldi á fylgibréfi og vörumagn fer ekki saman við afhendingu er talað um vöntun.

Tilkynning um vöruvöntun þarf að hafa borist umsjónarmanni vantana hjá innanlandsdeild Samskipa á netfangið tjonogvantanir@samskip.com innan 72 klst. frá brottför flutningabíls frá stöð.

Aðeins flutningsaðili getur tilkynnt um vöntun og þarf því móttakandi að tilkynna vöntun til umsjónarmanns sem allra fyrst og eigi síðar en innan 72 klst.

Ábyrgðartilflutningur á sér stað á öllum stigum ferilsins.

  • Við móttöku vöru hjá innanlandsdeild færist ábyrgð yfir á Samskip.
  • Við lestun flutningabíls færist ábyrgð yfir á flutningsaðila.
  • Við losun bíls í afgreiðslu færist ábyrgð yfir á viðkomandi afgreiðslu.
  • Við afhendingu vöru flyst ábyrgð yfir á viðtakanda.

Viðmiðunin er að reyna að leysa úr málum einstaklinga á 2-5 dögum en mál fyrirtækja geta tekið 1-3 vikur. Leysist málið ekki telst það orðið tjónamál.

Þegar innanlandsdeild er send tjónakrafa, á þar til gerðu eyðublaði hér á vefnum, þurfa eftirfarandi gögn að fylgja bótakröfu.

  • Afrit fylgibréfs.
  • Staðfesting yfirmanns hjá innanlandsdeild eða öðrum afgreiðslum innanlandsdeildar.
  • Afrit af upprunareikningi vöru til viðtakanda til staðfestingar á verðmæti sendingar.

Athugið að vara er alltaf bætt á sama verði og viðtakandi kaupir hana á, óháð afsláttum og tilboðum

Tjónamál

Tjón telst hafa orðið hafi vara skemmst í meðförum starfsmanna Samskipa eða orðið fyrir skemmdum í flutningum. Ef tjón verður á vöru skal fylla út tjónakröfu. Tilkynning um tjón þarf að hafa borist umsjónarmanni tjóna hjá innanlandsdeild Samskipa á netfangið tjonogvantanir@samskip.com innan 72 klst. frá brottför flutningabíls frá stöð.

Aðeins flutningsaðili getur tilkynnt um tjón og þarf því móttakandi að tilkynna tjón til umsjónarmanns sem allra fyrst og eigi síðar en innan 72 klst.

Mál varðandi vöruvantanir sem ekki hefur tekist að leysa teljast tjónamál eftir ákveðinn tíma.

Um tjón þarf að gera athugasemd við afhendingu vöru og á það við á öllum stigum ferilsins.

  • Við móttöku hjá innanlandsdeild
  • Við lestun á flutningabíl.
  • Við losun í afgreiðslu.
  • Við endanlega vöruafhendingu.

Móttakandi vöru þarf að gera athugasemd vegna tjóns um leið og varan er afhent honum af flutningsaðila. Flutningsaðili útbýr þá tjónaskýrslu sem hann sendir umsjónarmanni tjónamála hjá innanlandsflutningum Samskipa. Áskilinn er réttur til að kalla til tjónaskoðunarmann frá tryggingarfélagi sé þess talin þörf.

Innanlandsflutningar Samskipa reyna að leysa öll tjónamál eins fljótt og auðið er. Þyki sannað að varan hafi skemmst í meðförum innanlandsdeildar er miðað við að leysa úr málum einstaklinga á 2-5 dögum og málum fyrirtækja á 1-3 vikum. Tryggingamál geta þó dregist lengur.

Þegar Innanlandsdeild Samskipa er send tjónakrafa, á þar til gerðu eyðublaði hér á vefnum, þurfa eftirfarandi gögn að fylgja bótakröfu.

  • Afrit fylgibréfs.
  • Staðfesting rekstrarstjóra hjá innanlandsdeild eða yfirmanns á afgreiðslum innanlandsdeildar
  • Afrit af upprunareikningi vöru til viðtakanda, til staðfestingar á verðmæti sendingar.

Athugið að vara er alltaf bætt á sama verði og viðtakandi kaupir hana á, óháð afsláttum og tilboðum.

Ef tjón verður á vöru skal fylla út tjónakröfu.
Nánari upplýsingar veitir tjónadeild í síma 458-8321 eða á netfangið: claims@samskip.com.

Sérfræðingar í flutningum

Með vel útbúnum flutningabílum geta Samskip innanlands tryggt viðskiptavinum sínum skjóta og örugga afhendingu á vörum hvert á land sem er. Leitast er við að fyrirtækið sé í fararbroddi hvað varðar vöruflutninga innanlands. Starfað er eftir kröfum GÁMES og er starfsfólk okkar þjálfað í meðferð og flutningi á hættulegum efnum.

Auk þess eru strangar kröfur gerðar til öryggis á þjóðvegum. Háþróaður kæli- og frystibúnaður í bílum og vörugeymslum okkar tryggja að matvæli komast fersk til móttakanda hvert á land sem er. Auk þess getum við boðið flutninga sjóleiðina og getur sú lausn oft verið mjög hagkvæm.

Láttu okkur sjá um dreifinguna

Margar verslanir og fyrirtæki hafa farið þá leið að láta okkur sjá um dreifingu á vörum innanlands. Við sjáum um að taka saman vörur, flytja þær úr vöruhúsi okkar og dreifa þeim í búðir og verslanir um land allt.

Hægt er að hafa þessa dreifingu fasta eftir áætlun eða sérsniðna eftir pöntunum til dæmis fyrir matvöruverslanir. Eins sjáum við um að sækja vörur í heildsölur og dreifa þeim eða keyra í vöruhúsið okkar fyrir viðskiptavini.

Við sækjum stakar sendingar og komum þeim á áfangastað og tryggjum að vörur viðskiptavina komist öruggar alla leið á áfangastað.

Fyrirtækjaþjónusta

Söludeild Samskipa innanlands veitir upplýsingar um allar þjónustur og lausnir sem í boði eru fyrir fyrirtæki. Auk þjónustuvefs Samskipa eru fulltrúar okkar ávallt í góðu sambandi við viðskiptavini til að mæta ólíkum þörfum þeirra.

Hafið samband til að fá frekari upplýsingar fyrir þitt fyrirtæki um þá sérþjónustu eða heildarlausnir sem við getum boðið viðskiptavinum okkar.

Hættulegur varningur

Öllum sendingum í innanlandsflutningum sem innihalda efni sem flokkast hættuleg skal fylgja eyðublað með ADR yfirlýsingu um hættulegan varning. Sendandi hættulegrar vöru er ábyrgur fyrir því að skila inn ADR yfirlýsingu um hættulegan varning.

Í yfirlýsingunni þurfa að koma fram upplýsingar um hvað er verið að flytja. Eins þarf að fylla út eyðublaðið ef verið er að flytja tómar umbúðir undan hættulegum varningi sem ekki hafa verið hreinsaðar á viðeigandi hátt.

ADR er stytting á European Agreement Concerning the International Carriage of Dangerous Goods by Road.

Búslóðaflutningar innanlands

Samskip bjóða alhliða þjónustu í búslóðaflutningum, hvort sem flutningurinn er innanlands eða til og frá Íslandi. Við sjáum um flutning á búslóð með fagmennsku og umhyggju, frá dyrum sendanda að dyrum móttakanda, sé þess óskað.

Búslóðaflutningar snúast ekki bara um að flytja hluti, heldur heimili og verðmæti. Með öflugu aksturs- og flutningsneti tryggjum við að búslóðin komist örugglega á réttan stað, á réttum tíma. Sérhæft starfsfólk okkar leiðbeinir viðskiptavinum í gegnum ferlið og sér til þess að flutningurinn gangi smurt fyrir sig, frá upphafi til enda.

Algengar spurningar vegna búslóðaflutninga

Hér fyrir neðan eru nokkrar af helstu spurningum og svörum sem gott er að lesa nánar varðandi búslóðafluttninga.

Fyrir allar nánari upplýsingar: buslodir@samskip.com eða sími 458-8000.

Við byrjum á því að gefa viðskiptavinum tilboð í flutninginn en til þess þarf að fylla út tilboðsbeiðni á vefnum okkar. Vert er að benda á að ef flytja á búslóðina á brettum (lausavara, en ekki heill gámur) þá þarf að gefa upp rúmmetrafjölda í beiðninni þar sem tilboðin eru gefin eftir rúmmetrum.

Hér á vefnum er að finna búslóðareikni sem getur hjálpað til við að gefa hugmynd um stærð búslóðarinnar. Einnig getur verið gott að miða við 2 rúmmetra á hvert (euro) bretti (0,8*1,2*2).

Ef vöruvöntun eða tjónamál koma upp hjá viðskiptavinum er nauðsynlegt að kynna sér upplýsingarna hér fyrir neðan:

Vöntun í sendingu

Þegar uppgefinn fjöldi á fylgibréfi og vörumagn fer ekki saman við afhendingu er talað um vöntun.

Tilkynning um vöruvöntun þarf að hafa borist umsjónarmanni vantana hjá innanlandsdeild Samskipa á netfangið tjonogvantanir@samskip.com innan 72 klst. frá brottför flutningabíls frá stöð.

Aðeins flutningsaðili getur tilkynnt um vöntun og þarf því móttakandi að tilkynna vöntun til umsjónarmanns sem allra fyrst og eigi síðar en innan 72 klst.

Ábyrgðartilflutningur á sér stað á öllum stigum ferilsins.

  • Við móttöku vöru hjá innanlandsdeild færist ábyrgð yfir á Samskip.
  • Við lestun flutningabíls færist ábyrgð yfir á flutningsaðila.
  • Við losun bíls í afgreiðslu færist ábyrgð yfir á viðkomandi afgreiðslu.
  • Við afhendingu vöru flyst ábyrgð yfir á viðtakanda.

Viðmiðunin er að reyna að leysa úr málum einstaklinga á 2-5 dögum en mál fyrirtækja geta tekið 1-3 vikur. Leysist málið ekki telst það orðið tjónamál.

Þegar innanlandsdeild er send tjónakrafa, á þar til gerðu eyðublaði hér á vefnum, þurfa eftirfarandi gögn að fylgja bótakröfu.

  • Afrit fylgibréfs.
  • Staðfesting yfirmanns hjá innanlandsdeild eða öðrum afgreiðslum innanlandsdeildar.
  • Afrit af upprunareikningi vöru til viðtakanda til staðfestingar á verðmæti sendingar.

Athugið að vara er alltaf bætt á sama verði og viðtakandi kaupir hana á, óháð afsláttum og tilboðum

Tjónamál

Tjón telst hafa orðið hafi vara skemmst í meðförum starfsmanna Samskipa eða orðið fyrir skemmdum í flutningum. Ef tjón verður á vöru skal fylla út tjónakröfu. Tilkynning um tjón þarf að hafa borist umsjónarmanni tjóna hjá innanlandsdeild Samskipa á netfangið tjonogvantanir@samskip.com innan 72 klst. frá brottför flutningabíls frá stöð.

Aðeins flutningsaðili getur tilkynnt um tjón og þarf því móttakandi að tilkynna tjón til umsjónarmanns sem allra fyrst og eigi síðar en innan 72 klst.

Mál varðandi vöruvantanir sem ekki hefur tekist að leysa teljast tjónamál eftir ákveðinn tíma.

Um tjón þarf að gera athugasemd við afhendingu vöru og á það við á öllum stigum ferilsins.

  • Við móttöku hjá innanlandsdeild
  • Við lestun á flutningabíl.
  • Við losun í afgreiðslu.
  • Við endanlega vöruafhendingu.

Móttakandi vöru þarf að gera athugasemd vegna tjóns um leið og varan er afhent honum af flutningsaðila.  Flutningsaðili útbýr þá tjónaskýrslu sem hann sendir umsjónarmanni tjónamála hjá innanlandsflutningum Samskipa.  Áskilinn er réttur til að kalla til tjónaskoðunarmann frá tryggingarfélagi sé þess talin þörf.

Innanlandsflutningar Samskipa reyna að leysa öll tjónamál eins fljótt og auðið er. Þyki sannað að varan hafi skemmst í meðförum innanlandsdeildar er miðað við að leysa úr málum einstaklinga á 2-5 dögum og málum fyrirtækja á 1-3 vikum. Tryggingamál geta þó dregist lengur.

Þegar Innanlandsdeild Samskipa er send tjónakrafa, á þar til gerðu eyðublaði hér á vefnum, þurfa eftirfarandi gögn að fylgja bótakröfu.

  • Afrit fylgibréfs.
  • Staðfesting rekstrarstjóra hjá innanlandsdeild eða yfirmanns á afgreiðslum innanlandsdeildar
  • Afrit af upprunareikningi vöru til viðtakanda, til staðfestingar á verðmæti sendingar.

Athugið að vara er alltaf bætt á sama verði og viðtakandi kaupir hana á, óháð afsláttum og tilboðum.

Ef tjón verður á vöru skal fylla út tjónakröfu.

Nánari upplýsingar veitir tjónadeild í síma 458-8321 eða á netfangið: claims@samskip.com.

  • Óskar Jensson

    Óskar Jensson

    Sölustjóri Samskipa innanlands / Sales Manager Domestic

    Sölustjóri Samskipa innanlands / Sales Manager Domestic

  • Sverrir Eyjólfsson

    Sverrir Eyjólfsson

    Viðskiptastjóri Innanlands / Key Account Manager

    Viðskiptastjóri Innanlands / Key Account Manager

  • Kristín Ösp Þorleifsdóttir

    Kristín Ösp Þorleifsdóttir

    Rekstrar- og þjónustustjóri / Operations and Service manager

    Rekstrar- og þjónustustjóri / Operations and Service manager

  • Lára Dís Albertsdóttir

    Lára Dís Albertsdóttir

    Þjónustufulltrúi / Customer Service

    Þjónustufulltrúi / Customer Service

  • Sólveig Sigurðardóttir

    Sólveig Sigurðardóttir

    Þjónustufulltrúi / Customer Service

    Þjónustufulltrúi / Customer Service