Bílaport

Bílaport Samskipa er staðsett í bakhúsi hafnarsvæðisins að Holtavegi 8 merkt J á kortinu hér til hliðar. Aðkoma í portið er frá Vatnagörðum þar sem ekið er niður meðfram verslunarkjarnanum Holtagörðum og þar inn á svæðið bakatil.

Bílaportið er afgreiðslustaður bíla, bifhjóla og annarra farartækja sem verið er að sækja eða skila til flutnings.

Mikilvægar upplýsingar vegna móttöku og afhendingar ökutækja:

  • Viðskiptavinur þarf að hafa bókunarnúmer tiltækt við afhendingu eða móttöku ökutækis.
  • Áður en ökutæki er sótt þarf að óska eftir afhendingu og fá staðfesta afhendingarheimild.
    Netfang þjónustudeildar: inn@samskip.com
    Netfang fyrir ferðamannabíla: tourist@samskip.com
  • Viðskiptavinur skal hafa samband við bílaport í síma: 858-8471 áður en hann mætir, þannig að starfsmaður geti tekið á móti honum.
  • Starfsfólk er ekki með fasta viðveru við afhendingarsvæðið og því er mikilvægt að hafa samband fyrirfram.

Afgreiðslutími í bílaporti:
Mánudaga til fimmtudaga kl. 08:00-16:00
Föstudaga kl. 08:00-15:00

Bílaport Samskipa