Hoffell tefst í nokkra daga

Viðgerð á Hoffellinu sem liggur í höfn á Eskifirði tekur lengri tíma en áður var áætlað. Við nánari skoðun á skipinu kom í ljós að kalla þurfti eftir varahlutum sem almennt er ekki að finna um borð og koma þeir frá útlöndum. Því er ljóst að skipið leggur ekki úr höfn í þessari viku.

Töfin kemur til með að raska tímabundið siglingaáætlun Samskipa. Unnið er að því að koma sendingum sem um borð í skipinu eru til viðtakenda eftir öðrum leiðum. Megnið fer með Skaftafelli, öðru skipi Samskipa, sem væntanlegt er til Reyðarfjarðar á laugardag.

Þá gera Samskip ráðstafanir til þess að bilunin í vél Hoffellsins hafi sem minnst áhrif á vörusendingar á leið til landsins.

Bilunarinnar í aðalvél skipsins varð vart þegar Hoffellið var á leið frá landinu á sunnudagskvöld og var skipið vélarvana um stund rétt úti fyrir Reyðarfirði. Eftir að tókst að koma aðalvél skipsins aftur í gang komst það fyrir eigin vélarafli til hafnar  á Eskifirði nokkru fyrir miðnætti á sunnudagskvöld.

Fyrst í stað leit út fyrir að hægt væri að gera við bilunina, sem varð í ventli, með varahlutum um borð, en nú liggur fyrir að viðgerðin er aðeins umfangsmeiri. Skipið heldur úr höfn jafnskjótt og viðgerð lýkur.