Leiðir fyrirtækið sem hefur fylgt honum alla ævi

12 febrúar 2026

Ólafur Orri Ólafsson tók á lokaársfjórðungi síðasta árs við sem forstjóri samsteypu Samskipa í Evrópu. Hann er öllum hnútum kunnungur hjá fyrirtækinu eftir að hafa starfað hjá því undanfarin sex ár. Tengsl hans við Samskip ná þó enn lengra aftur í tímann enda hafa foreldrar hans, Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir, verið aðaleigendur fyrirtækisins um langt skeið. Hann tók formlega við nýja starfinu í byrjun október og kveðst hafa verið fljótur að koma sér inn í það. Hann bendir á að frá því í byrjun árs 2025 hafi hann setið í framkvæmdastjórn hjá samsteypunni í Evrópu og því hafi hann þegar verið vel inni í flest öllu sem viðkemur starfseminni.

„Fyrstu mánuðirnir í nýju starfi hafa gengið vel. Ég hef ferðast mikið á milli landa og skrifstofa til að hitta samstarfsfólk og viðskiptavini. Það er mikill heiður að fá að leiða starfsemi Samskipa í Evrópu. Fyrirtækið stendur mjög nærri hjarta mínu enda hefur það fylgt mér í gegnum alla ævina. Þegar ég fæddist var faðir minn forstjóri Samskipa og ég á góðar æskuminningar tengdar fyrirtækinu. Mér þótti t.d. mjög skemmtilegt að rifja upp eina af þessum góðu minningum þegar það fundust nýverið gamlar myndir af mér fimm ára gömlum í geymslu hér á skrifstofunni. Myndirnar voru teknar í dorgunarkeppni sem starfsfólk Samskipa og fjölskyldur þeirra tóku þátt í,“ segir Ólafur Orri. Viðtalið var tekið í höfuðstöðvum Samskipa hér á landi í Kjalarvogi á meðan stuttri heimsókn hans til landsins stóð. Aðalskrifstofur Samskipa í Evrópu eru staðsettar í hollensku hafnarborginni Rotterdam og er Ólafur Orri búsettur í Hollandi.

„Ég flutti til Hollands í lok árs 2019 eftir að hafa búið í Bandaríkjunum í sex ár þar á undan þar sem ég sótti háskólanám auk þess að stunda vinnu. Við flutningana til Hollands hóf ég störf hjá Samskipum í Rotterdam og hef frá þeim tíma gegnt hinum ýmsu störfum hjá samsteypunni. Fyrst var ég verkefnastjóri í rekstrardeild og sá eftir það um að stofna nýtt sjálfbærniteymi og leiddi vinnu við að búa til heildarstefnu fyrirtækisins í þeim efnum. Þetta var mjög skemmtilegur og mikilvægur tími þar sem teknar voru stórar ákvarðanir um fjárfestingar í skipum sem verða þau fyrstu í heimi til að vera alfarið knúin vetni. Skipin eru enn í smíðum á Indlandi en munu bætast við flota Samskipa á næsta ári.“

Að því loknu stýrði Ólafur Orri starfsemi Samskipa á Spáni og í Portúgal og tók síðar að sér að stýra evrópska flutninganeti Samskipa, en Samskip eru líka með starfsemi fyrir utan Evrópu. Í byrjun árs 2025 tók hann eins og fyrr segir við sem einn af stjórnendum samsteypunnar í Evrópu. „Þetta er búinn að vera sérlega lærdómsríkur og skemmtilegur tími.“