Samskip beina bótakröfum að Eimskipi vegna rangra sakargifta

27 september 2023

Um er að ræða mjög alvarlega atlögu að Samskipum enda hefur Eimskip með þessu ranglega sakað félagið, sem og núverandi og fyrrverandi starfsmenn félagsins og Eimskips, um ólögmæta og eftir atvikum refsiverða háttsemi. Rangar sakargiftir af þessum toga eru ólögmætar og þær geta einnig verið refsiverðar fyrir þann sem í hlut á. Í þessu tilviki var þeim beint að helsta keppinauti Eimskips og voru augljóslega til þess fallnar að valda búsifjum í rekstri félagsins og hafa óeðlileg áhrif á samkeppnisstöðu félaganna, Samskipum til tjóns.

Lögmenn Samskipa hafa sent forstjóra Eimskips kröfubréf vegna framangreinds þar sem þess er einnig óskað að upplýst verði hvaða stjórnendur eða stjórnarmenn komu að ákvörðun um að undirgangast sáttina við SKE og veita stjórnvaldinu með því rangar upplýsingar.

Máli vísað til áfrýjunarnefndar samkeppnismála
Jafnframt hafa Samskip í dag skilað inn til áfrýjunarnefndar samkeppnismála kæru vegna ákvörðunar SKE frá 31. ágúst síðastliðnum um að leggja á Samskip 4,2 milljarða króna sekt fyrir þátttöku í meintu samráði við Eimskip. Farið er fram á að ákvörðun SKE verði felld úr gildi og að réttaráhrifum hennar verði frestað á meðan málið er til meðferðar hjá áfrýjunarnefndinni.

„Samskip gagnrýna harðlega ákvörðun Samkeppniseftirlitsins enda er hún efnislega röng og öll málsmeðferðin í brýnni andstöðu við ákvæði samkeppnislaga, sönnunarreglur og fjölmargar grundvallarreglur stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttarins. Félagið telur ljóst að fella verði hina kærðu ákvörðun úr gildi í heild sinni vegna þessara alvarlegu annmarka sem leitt hafi til endurtekinna rangra og haldlausra ályktana stofnunarinnar,“ segir Hörður Felix Harðarson, lögmaður Samskipa.

Í kærunni er bent á að rannsókn og ákvörðun SKE sé fordæmalaus fyrir margar sakir. Þær kenningar og ályktanir sem settar eru fram í ákvörðun SKE séu í grundvallaratriðum án tengsla við gögn málsins og raunveruleg atvik í rekstri skipafélaganna sem sökuð séu um samráð. Þá hafi SKE endurtekið misfarið með efni gagna og horft fram hjá sönnunargögnum og réttmætum skýringum Samskipa og Eimskips sem ekki hafi fallið að kenningum stofnunarinnar. Þá er með sektarfjárhæðinni farið gegn fjölmörgum réttarreglum og ljóst að til grundvallar þeirri ákvörðun liggja engin málefnaleg sjónarmið.