Með sjávarútveginum – alla leið til markaða
Samskip bjóða upp á sérhæfðar lausnir í flutningi og útflutningi sjávarafurða frá Íslandi til lykilmarkaða í Evrópu og víðar. Við tryggjum örugga kælikeðju, áreiðanlega sjóflutninga og skilvirka flutningskeðju frá bryggju til endanlegs viðtakanda.
Við skiljum íslenskan sjávarútveg, sem krefst hraða, nákvæmni og stöðugleika. Með áratuga reynslu af hitastýrðum flutningum, ferskum og frystum afurðum, styðjum við við samkeppnishæfni íslenskra útflutningsfyrirtækja.
Við legjum áherslu á persónulega, sveigjanlega þjónustu og lausnir sem hámarka ferskleika, gæði og afhendingaröryggi á hverju stigi ferlisins.


Við skiljum vertíðirnar
Sjávarútvegur einkennist af sveiflum, hraða og miklum verðmætum á stuttum tíma. Við vinnum náið með vinnslum og útflutningsfyrirtækjum:
Stöðug hitastýring í hverju skrefi
Nákvæm hitastýring, stöðugt eftirlit og áreiðanlegur búnaður sem tryggir gæði frá upphafi til enda
Siglingar til lykilmarkaða
Reglulegar tengingar við Evrópu, Norðurlönd og áfram í gegnum alþjóðlegt net Samskipa
Sveigjanlegt gámaflæði
Við bregðumst hratt við þegar magn eykst eða vertíðir breytast
Rauntímayfirsýn viðskiptavina
Upplýsingar og gagnsæi um stöðu sendinga í hverju skrefi
Stöðug hitastýring í hverju skrefi
Nákvæm hitastýring, stöðugt eftirlit og áreiðanlegur búnaður sem tryggir gæði frá upphafi til enda.
Siglingar til lykilmarkaða
Reglulegar tengingar við Evrópu, Norðurlönd og áfram í gegnum alþjóðlegt net.
Sveigjanlegt gámaflæði
Við bregðumst hratt við þegar magn eykst eða vertíðir breytast.
Rauntímayfirsýn viðskiptavina
Upplýsingar og gagnsæi um stöðu sendinga í hverju skrefi.
Af hverju að velja Samskip fyrir flutning á sjávarafurðum?


Togaralöndun í Ísheima
Samskip bjóða heildstæða þjónustu fyrir fjölveiðiskip og frystitogara. Löndun, flutningar og geymsla, allt á einum stað, með tengdri þjónustu sem tryggir skilvirkt og öruggt vöruflæði.
Lögð er áhersla á hraða, sveigjanleika og fagleg vinnubrögð. Aðstaðan er ein sú öflugasta á landinu; unnt er að afgreiða tvo togara samtímis við Vogabakka. Viðlegukantur er 200 metrar og dýpi við bryggju 8,5 metrar, sem tryggir gott aðgengi og skilvirka löndun.
Afgirt vaktað svæði
Frystimiðstöðin er í beinu framhaldi af bryggjunni, sem gerir kleift að landa beint inn í húsið. Flokkun afla fer fram í færanlegu, lokuðu löndunarrými þar sem tryggð eru gæði og hreinlæti. Aðstaða til sýnatöku og skoðunar er til staðar á svæðinu.
Þjónusta í boði
Hafið samband við okkur fyrir frekari upplýsingar.

Hafðu samband við sérfræðinga okkar í útflutningi

Gunnar Kvaran
Gunnar Kvaran
Framkvæmdastjóri útflutnings / CCO export
Framkvæmdastjóri útflutnings / CCO export

Þorkell Kristinsson
Þorkell Kristinsson
Sölustjóri / Sales Manager
Sölustjóri / Sales Manager

Bjarki Unnarsson
Bjarki Unnarsson
Viðskiptastjóri / Key Account Manager
Viðskiptastjóri / Key Account Manager

Marko Stosic
Marko Stosic
Viðskiptastjóri / Key Account Manager
Viðskiptastjóri / Key Account Manager

Eiríkur Ari Eiríksson
Eiríkur Ari Eiríksson
Viðskiptastjóri / Key Account Manager
Viðskiptastjóri / Key Account Manager

Jón Viðarsson
Jón Viðarsson
Viðskiptastjóri / Key Account Manager
Viðskiptastjóri / Key Account Manager







