Áralöng reynsla af þjónustu við stóriðjuna á Íslandi

Við tengjum framleiðslu og hráefni við markaði í Evrópu og víðar með skilvirkum, öruggum og sjálfbærum flutningum sérsniðnum að þörfum iðnaðar og stóriðju.

Við höfum áralanga reynslu af því að þjónusta stóriðjuna á Íslandi og höfum sérhæft okkur í þeim flutningum. Við siglum beint á hafnir stóriðjufyrirtækja bæði með hráefni til afhendingar sem og við sækjum tilbúnar afurðir til afhendingar í erlendum höfnum.

Um leið eru siglingar umhverfisvænni kostur en akstur landleiðina með þungan og umfangsmikinn farm.

Eitt stærsta flutningsnet Evrópu

Með reglulegum siglingum og öflugu flutningsneti tengjum við íslenskan iðnað við lykilmarkaði í Evrópu. Við tryggjum örugga og fyrirsjáanlega afhendingu hráefna og framleiðsluvara

Persónuleg þjónusta við viðskiptavini

Við vinnum náið með viðskiptavinum að skipulagningu flutninga og finnum lausnir sem styðja við stöðugt framleiðslu-flæði, áreiðanleika og hagkvæmni í rekstri

Akstur og þjónusta innanlands

Við sjáum um akstur til og frá höfnum, vöruhúsum og framleiðslustöðum um allt land. Þannig tryggjum við samfellda flutningskeðju frá uppruna til áfangastaðar

Reynsla af flutningum fyrir iðnað

Áratuga reynsla af flutningum fyrir stóriðju og iðnað gerir okkur kleift að bjóða öruggar og hagkvæmar lausnir fyrir þungan og umfangsmikinn farm

Af hverju að velja Samskip fyrir flutninga í stóriðju?

  • Flutningar á erlenda markaði

    Við bjóðum sérhæfðar flutningslausnir fyrir stóriðju og iðnað, frá Íslandi til lykilmarkaða í Evrópu og víðar. Með reglulegum siglingum og öflugu flutningsneti tryggjum við örugga og skilvirka afhendingu hráefna og framleiðsluvara.
  • Flutningar á búnaði og þungum farmi

    Við leysum flutningsþarfir fyrir þungan búnað og vélar og tryggjum örugga og tímanlega afhendingu til viðskiptavina. Hvort sem um er að ræða minni sendingar, heilgáma eða yfirstærðar flutninga, fyrir fyrirtæki í stóriðju á landinu.

  • Flutningar innanlands
    Við sjáum um akstur og flutninga til og frá höfnum, vöruhúsum og framleiðslustöðum um allt land. Með góðri skipulagningu, samhæfingu og reynslu tryggjum við samfellda og hagkvæma flutningskeðju frá uppruna til áfangastaðar.

Þjónusta í boði

Hafið samband við okkur fyrir frekari upplýsingar.

Frá innkaupum til afhendingar sjáum við um allt flutningsferlið og bjóðum upp á heildarlausnir fyrir flutningsþarfir viðskiptavina.

Það getur verið flókið að rata í gegnum tollareglur, sérstaklega þegar kemur að viðkvæmum vörum. Teymið okkar sér um allar tollafgreiðsluferla og tryggir greiðan og vandræðalausan flutning farms viðskiptavina.

Viðskiptavinir eru upplýstir á hverju stigi með háþróaðri eftirfylgni- og eftirlitskerfum okkar. Uppfærslur í rauntíma tryggja yfirsýn og gagnsæi í öllu flutningsferlinu og veita viðskiptavinum hugarró í vitneskju um að sendingar eru í góðum höndum.

Hafðu samband við sérfræðinga okkar í útflutningi

  • Gunnar Kvaran

    Gunnar Kvaran

    Framkvæmdastjóri útflutnings / CCO export

    Framkvæmdastjóri útflutnings / CCO export

  • Þorkell Kristinsson

    Þorkell Kristinsson

    Sölustjóri / Sales Manager

    Sölustjóri / Sales Manager

  • Bjarki Unnarsson

    Bjarki Unnarsson

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

  • Marko Stosic

    Marko Stosic

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

  • Eiríkur Ari Eiríksson

    Eiríkur Ari Eiríksson

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

  • Jón Viðarsson

    Jón Viðarsson

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager