Styrkveitingar
Samskip huga að mörgum þáttum sem tengjast samfélagslegri ábyrgð, s.s. umhverfismálum, vinnuvernd og öryggismálum, orkumálum, mannauðsmálum auk sjálfbærni og hafa markað sér stefnu í þeim málaflokkum og fylgja henni fast eftir þannig að fléttist saman við starfshætti félagsins.
Samskip leggja margvíslegum málefnum lið á ári hverju, bæði góðgerðarmálum, menningarmálum og styrkja íþróttastarf á landinu. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að styrkja fjölbreytta starfsemi er tengist landsbyggðinni. Við erum auk þess þátttakandi í ýmsum félagasamtökum er tengjast atvinnugreininni og leggja sitt af mörkum til að auka veg og virðingu hennar.
Þeir sem óska eftir auglýsingum og styrkjum, vinsamlegast sendið tölvupóst á netfangið styrkir@samskip.com
Hér má sjá nokkra sem fengið hafa styrki frá Samskipum
![]() |
Samskip eru einn af aðal styrktaraðilum handboltalandsliðanna og hafa verið það um árabil. |
![]() |
Samskip eru þátttakendur í Eurorap verkefninu þar sem vegir landsins eru metnir með tilliti til öryggis fyrir vegfarendur og niðurstöður notaðar til að þrýsta á um úrbætur. |
![]() |
Samskip hafa um árabil styrkt Andrésar Andar leikana á Akureyri en þar hafa margir efnilegir skíðamenn „runnið sinn fyrsta metra“. |
![]() |
Samskip styrkja tónlistarhátíðina Aldrei fór ég suður sem haldin er árlega á Ísafirði um páskana. |