Upplýsingar um Samskip og almenna starfsemi

Markaðs- og samskiptadeild Samskipa veita allar nánari upplýsingar um Samskip sé þess óskað.

Ágústa Hrund Steinarsdóttir
Forstöðumaður · Markaðs- og Samskiptadeild
Sími: 458-8325 / 666-1777

Skipurit Samskipa hf.

Skipurit Samskipa hf.

Hér til hliðar er skipurit Samskipa hf. á Íslandi. Smelltu á myndina til að skoða stærri mynd. Birkir Hólm Guðnason er forstjóri Samskipa hf. á Íslandi.

Framkvæmdastjórn Samskipa hf.

Birkir Hólm Guðnason
Forstjóri Samskipa hf. ❯❯ CEO

Guðmundur Þór Gunnarsson
Framkvæmdastjóri rekstrarsviðs ❯❯ COO Operations

Gunnar Kvaran
Framkvæmdastjóri útflutnings ❯❯ COO Export

Jón Ingi Þrastarson
Framkvæmdastjóri innanlands ❯❯ COO Domestic

Ottó Sigurðsson
Framkvæmdastjóri innflutnings ❯❯ COO Import

Fjölmiðlatorg: Merki og lógó

Markaðs- og samskiptadeild Samskipa hefur með höndum öll samskipti við fjölmiðla og þjónustar þá sem vilja nálgast upplýsingar um félagið.

Hér fyrir neðan er hægt að nálgast merki/lógó og liti Samskipa til almennrar notkunar ásamt notkunar leiðbeiningum. Vinsamlegast hafðu samband við okkur í marketing@samskip.com eða í síma 458-8000 ef þú finnur ekki það sem þú leitar að eða vantar frekari aðstoð, við aðstoðum með allar óskir og veitum ráðgjöf!

Athugið að ekki má með neinum hætti breyta merki eða litum Samskipa.

Fréttir og tilkynningar

Fylgstu með nýjustu fréttum, tilkynningum og áhugaverðu efni úr starfsemi Samskipa í fréttasafninu okkar.

Reglur um vernd uppljóstrara

Reglur Samskipa verklag við uppljóstrun starfsfólks um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi.

Reglur þessar eru settar með vísan til 1. mgr. 5. gr. laga nr. 40/2020

Starfsfólki Samskipa er heimilt að greina frá upplýsingum eða miðla gögnum í góðri trú um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi fyrirtækisins til aðila innan þess sem stuðlað getur að því að látið verði af eða brugðist við hinni ólögmætu eða ámælisverðu háttsemi eða til lögregluyfirvalda eða annarra opinberra eftirlitsaðila sem við eiga, t.d. umboðsmanns Alþingis, ríkisendurskoðanda og Vinnueftirlitsins.

Mannauðsstefna Samskipa

Samskip eru kraftmikill og líflegur vinnustaður. Hjá Samskipum á Íslandi starfa um 500 starfsmenn í fjölbreyttum störfum. Við leggjum áherslu á jákvæð og góð samskipti og við berum virðingu fyrir störfum hvers annars. Það er okkur mikilvægt að búnaður á starfsstöðvum okkar sé til fyrirmyndar. Lögð er áhersla á að viðhalda og bæta við þekkingu og hæfni starfsfólks með markvissri endurgjöf, fræðslu og starfsþróun.

Hér fyrir neðan getur þú lesið nánar um vinnustaðinn okkar og skoðað laus störf sem eru í boði.

Flýtival fyrir um Samskip

Afgreiðslustöðvar og
skrifstofur í Reykjavík

Kjalarvogur 7-15
104 Reykjavík

Afgreiðslustöðvar um
land allt

Upplýsingar um starfsstöðvar og afgreiðslustaði

Bílaport Samskipa

Holtavegi 6 (Baka til).
Ekið niður meðfram Holtagörðum.

Siglingaáætlun

Áætlanir brottfara og komu skipa til og frá Íslandi.

Hvar erum við?

Aðalinngangur (skrifstofur og móttaka) og vöruafhending innanlands eru vestanmegin á hafnarsvæðinu, merkt A og B á kortinu, á meðan inngangur starfsfólks og hafnarhlið eru austanmegin við vöruhúsið okkar, merkt G.

Til að komast í bílaport Samskipa merkt J á korti þarf að aka niður meðfram Holtagörðum að ofanverðu og þar niður með að hafnarbakkanum.