Afhending á tómum gámum
- Þegar gámum er skilað til Samskipa eiga þeir að vera tómir og hreinir. Þá ber að skila öllum sjóbúnaði, svo sem spansettum (borðastrekkjara), loftpokum, keðjum og yfirbreiðslum.
- Allir gámar eru skoðaðir af bílstjórum þegar þeir eru sóttir og við komu inn á hafnarsvæðið.
- Bílstjórar hafa ekki heimild til að taka gáma sem eru ekki tómir. Kostnaður vegna auka aksturs greiðist af þeim sem pantar gámaakstur.
- Séu gámar ekki tómir eða hreinir leggst á aukakostnaður vegna hreinsunar og, eða förgunar á brettum eða rusli, samkvæmt verðskrá.
- Sé sjóbúnaði ekki skilað leggst aukakostnaður á viðskiptavin vegna vöntunar á búnaði,samkvæmt verðskrá.
- "Open Top" gámum á að skila til Samskipa með segli og sperrum uppsettum.
- Hitastýrðir gámar eiga að vera með tengisnúru uppgerða og gengið frá henni í þar til gert box á vél.
- Ef tjón verður á gámum Samskipa í vörslu viðskiptavinar, er það á ábyrgð viðskiptavinar sem greiða þarf fyrir tjónið.
- Aðgengi að gámum skal vera fullnægjandi.
- Sé gámum skilað skemmdum leggst aukakostnaður á viðskiptavin samkvæmt viðgerðaráætlun.
- Ef tjón verður á gámum Samskipa í vörslu viðskiptavinar, og/eða búnaði tengdum þeim, ber að tilkynna slíkt til Gámastýringardeildar Samskipa með tölvupósti cdr@samskip.com eða í síma 458 8483 eða 458 8602.
- Sé gámum ekki skilað leggst aukakostnaður á viðskiptavin samkvæmt verðskrá á gámaleigu.
