Fullkomnar kæli- og frystigeymslur í Ísheimum

Í Ísheimum reka Samskip tæknivæddar kæli- og frystigeymslur fyrir bæði minni og stærri farma. Geymslurnar eru hannaðar fyrir frystar afurðir, með bæði rekkakerfum og frístöflun, og taka samtals allt að 6.500 tonn / 6.500 palla. Aðstaðan hentar jafnt reglubundnum sendingum sem heilförmum.

Sveigjanleg afgreiðsla og mikil afkastageta.
Í Ísheimum er öflug afgreiðsluaðstaða sem tryggir skilvirka móttöku og útkeyrslu. Hægt er að afgreiða allt að 10 gáma eða flutningabíla samtímis, auk þess sem boðið er upp á fjölda gámatengla fyrir geymslu í kæli- og frystigámum. Afgreiðslurými er samtals 1.000 m², með 500 m² þjónusturými fyrir sýnatöku, skoðun og sérþjónustu.

Ísheimar í Kjalarvogi á hafnarbakkanum við Vogabakka:

  • Heildarþjónusta við frysti- og fjölveiðiskip ásamt meðhöndlun á söltuðum og ferskum fiski

  • Hægt er að landa beint inni í geymsluna, því hluti hennar í sömu hæð og bryggjan

  • Öll bretti eru vigtuð, plöstuð og strikamerkt

  • Öll móttaka og afhending er skráð rafrænt um leið og varan fer inn og út úr miðstöðinni

  • 500 m² þjónusturými þar sem gert er ráð fyrir sýnatöku og skoðun

  • Mögulegt er að afgreiða allt að 10 gáma eða flutningabíla samtímis

  • Tollsvæði

Löndun og
sjávarútvegur

Heildarþjónusta við frysti- og fjölveiðiskip. Togaralöndun beint inni í geymsluna, því hluti hennar er í sömu hæð og bryggjan.

Kæli- og frystigeymslur

Örugg geymsla á frystivörum, fyrir verslanir og sjávarútvegsfyrirtæki, og almennar kæligeymslur fyrir matvæli í vöruhúsi.

Rafræn skráning

Öll móttaka og afhending er skráð rafrænt um leið og vara fer inn og út úr vöruhúsi eða Ísheimum.

Tollsvæði

Ísheimar eru með tollsvæði fyrir geymslu á vörum og er afgirt og vaktað allan sólarhringinn.

Heildarþjónusta fyrir matvæli og
hitastýrðar vörur

Í kæli- og frystigeymslum okkar þjónustum við heildsala og verslanir, sjávarútvegsfyrirtæki og aðra matvælaframleiðendur með geymslu og umsýslu bæði fyrir inn- og útflutning.

Viðskiptavinir geta geymt til skamms- eða langtíma vörur sínar í frystum og kælum og fengið þær afgreiddar eftir þörfum eða látið vöruhúsaþjónustu okkar og innanlandsdeild sækja eða senda þær hvert á land sem er.

Kæli- og frystigámar

Samskip bjóða upp á alla þjónustu fyrir kæli- og frystigáma, bæði geymslu á tenglum sem og alla aðra umsýslu eftir þörfum. Í bland við langtímageymslu í Ísheimum eru ýmsar aðrar lausnir í boði og hægt er að afgreiða gáma að hluta eða heild til viðskiptavina eftir þörfum.

Hafðu samband við okkur fyrir frekari fyrirspurnir varðandi kæli- og frystigáma og þjónustu tengda þeim eins og afgreiðslu og aðra vörumóttöku.

Sérþekking í sjávarafurðum og lausnir

Samskip búa yfir áralangri sérþekkingu í meðhöndlun og flutningum sjávarafurða. Við bjóðum sérsniðnar lausnir fyrir frysti- og fjölveiðiskip, hitastýrða geymslu og samþættingu við áframhaldandi flutninga innanlands og til útlanda. Með öflugu alþjóðlegu neti tryggjum við að afurðir haldi gæðum sínum frá móttöku til afhendingar.

Gæði, eftirlit og öryggi

Í Ísheimum eru sérútbúin skoðunarherbergi fyrir gæðaeftirlit og aðstaða fyrir ytra landamæraeftirlit með matvælum á Evrópska efnahagssvæðinu. Svæðið er afgirt og vaktað allan sólarhringinn og starfar jafnframt sem tollsvæði, sem veitir aukinn sveigjanleika við innflutning og afgreiðslu.

Þjónusta Samskipa

Frá innkaupum til afhendingar sjáum við um allt flutningsferlið og bjóðum upp á heildarlausnir fyrir flutningsþarfir viðskiptavina á sjávarafurðum innan okkar kerfis sem og áframflutnings á kæli- og frystivörum með þriðja aðila eftir þörfum.

Það getur verið flókið að rata í gegnum tollreglur, sérstaklega þegar kemur að vörum sem eru viðkvæmar fyrir skemmdum eins og sjávarfangi og ferskvöru. Teymið okkar sér um alla tollafgreiðsluferla og tryggir greiðan og vandræðalausan flutning á þínum farmi.

Hafðu samband við okkur til að fá nánari leiðbeiningar og ráðgjöf.

Floti okkar af kælibílum, vögnum og gámum er sérstaklega hannaður til að flytja sjávarafurðir á öruggan og skilvirkan hátt og viðhalda fullkomnu hitastigi frá upphafi til enda.

Við þekkjum mikilvægi þess að vera upplýst á hverju stigi flutningsferlisins með háþróaðri eftirfylgni- og eftirlitskerfum. Uppfærslur í rauntíma tryggja yfirsýn og gagnsæi í gegnum allt flutningsferlið og veita viðskiptavinum hugarró með vitneskju um að vörurnar eru í góðum höndum.